Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 16.04.1964, Qupperneq 3

Vikan - 16.04.1964, Qupperneq 3
I ÞfSSMtl VIKU: Útg'efandi Hilmir h.f. Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.). Auglýsingastjóri: Gunnar Steindórsson. Blaðamenn: Guðmundur Karlsson og Sigurður Hreiðar. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson. Ritstjórn og auglýsingar^Skipholt 33. 'Simar: 35320, 35321, 35322, 35323. Pósthólf 149, Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími 36720. Dreifingarstjóri Óskar Karisson. -Verð i lausasölu kr. 25. Áskriftarverð er 300 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram. Prentun Hilmir h.f. Mynda- mót: Rafgraf h.f. I NÆSTA BLAÐI HVE SKÆRT LOGAR Á PERUNNI? Við verðum mcð stórskemmtilegt gáfnapróf, sem allir geta tekið þátt í — gáfnapróf, sem eitt- hvað er að marka. Við höfum líka prófað ýmsa skóla, og skýrum frá því í þessari grein. VERÐA STÖKKBREYTINGAR Á GÁFNA- FARI MANNA? Sérfræðingar í gáfnafari halda því fram, að slíkt sé ekki ólíklegt á næstunni, vegna þess hve margir gáfaöir menn og konur eru samankomin á litlum svæðum eins og geimvísindastöðvum o.fl. BARN í VÆNDUM. Kvikmyndasaga. Athygl- isverð þýzk kvikmynd, sem fjallar um frjóvg- un og fæðingu nýrra einstaklinga. FRÍ FRÁ SKRIFSTOFUNNI. Spennandi smá- saga um fólk, sem vinnur saman á skrif- stofu allan dagiun, en á samt sitt eiknalíf, og verður ástfangið — rétt eins og allir aðrir. RÉTTLÆTIÐ SIGRAR AÐ LOKUM. Fjórði hiuti frásagnarinnar um Dreyfusmálið. Emile Zola skrifar greinina „Ég ákæri“ og heldur fram sakleysi Dreyfusar. KVENNAEFNI. Við birtum myndir af ýmsu prjónlesi með skýringum, sem allar konur hafa vafalaust mikinn áhuga á að sjá. DOKTOR NO. Framhaldssagan okkar, sem hyrjar í þessu blaði. Þessi saga varð heims- fræg á skömmum tíma, enda óvenju spenn- andi og sérstæð að mörgu leyti. Auðvitað verður HERRA PIMM þarna lfka eins og vant er, og ýmislegt smærra efni, sem of langt yrði upp að telja, en sem cr ekkert verra fyrir það. Nótt í Nausti Eins og kunnugt er, hafa menn í Nausti oröið varir við ýmsan slæðing þar á næturþeli. í síðasta blaði var viðtal við þá Naustmenn um þetta efni, en VIKAN lét ekki þar við sitja, heldur gisti sjálf og ein í NAUSTI eina nótt. Og árangurinn — þið skuluð sjálf dæma um hann! Dr. No. VIKAN hefur fengið einkarétt á íslandi fyrir sögur eftir hínn fræga leynilögreglusagnahöfund Ian Fleming. Söguhetja hans, James Bond, er orðin fræg um allan heim, og hvarvetna bíða menn þess f ofvæni, að frétta meira af honum. Eitt mesta ævintýrið er saga sú, sem hér byrjar sem framhalds- saga: DR. NO. VIKAN heimsækir Jón Engilberts VIKAN hefur heimsótt Jón Engilberts, listmálara, og rabbað við hann um veðrið, Maríu Callas, Ragnar í Smára, stelpurnar á Canarí, Jóga og trúarbrögð, mis- munandi málningarpensla, blóðtappa, Gulldropann og sitthvað fleira. Og Jón er hress og reifur að vanda, og tunguhaftið er löngu týnt. „Ég ákæri“ — Dreyfusarmálið, 3. hluti — Þessi grein um Dreyfusar- málið er samnefnd ákærugrein Emile Zola, þeirri sem varð þess valdandi, að mál Dreyfusar var tekið upp að nýju. Zola réðist í grein sinni að þeim mönnum, sem hæst höfðu hrópað móti Dreyfusi vegna þeirrar sakar hans, að vera Gyðingur. CnDCIll All Vtö* höldum áfram að birta myndir af þátttakendum | U ll U I D #4 Pi * Fegurðarsamkeppninni á forsíðunni. Einhver sagði um þessa mynd, að þar væri ný Mona Lisa á ferðinni. Ef eitthvað er sem minnir á listaverk Leonardos, þá á Óli Páll Kristjánsson, ljósmyndari heiðurinn af því svo og stúlkan að sjálfsögðu. Hún heitir Gígja Hermannsdóttir og er úr Reykjavík. VIKAN 16. thl. 3

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.