Vikan


Vikan - 16.04.1964, Blaðsíða 43

Vikan - 16.04.1964, Blaðsíða 43
og hávaða, eins og þegar skolað er niður í salerni. „Stjáni er að skola niður", hugs- aði ég. „Stjáni er að skola niður . . . Stjáni er uppi . . . Stjáni er niðri . . . Stjáni er . . . HVAR ER STJÁNI?" Ég kipptist við, eins og mér hefði verið gefinn löðrungur, og fann að stáltaugarnar titruðu eins og strengir í biluðum gítar. Annað hvort var Stjáni niðri, og fótatakið uppi ekkert í sambandi við hann, — eða að Stjáni var uppi og niðurskolið ekkert í sambandi við hann!!! Það fór um mig hrollur, þegar ég skildi að hér var eitthvað að gerast, sem ég skildi ekki, og hlaut í rauninni að vera dularfullt. Ég stóð upp og gekk að dyrunum, sem lágu fram á ganginn, og bjóst til að opna þær, þegar ég heyrði að einhver gekk niður stigann ofan af lofti. Ég opnaði dyrnar og gekk fram. „Stjáni?" spurði ég hægt og var- lega. Ekkert svar. ,,STJÁN!!!!!" öskraði ég eins og ég gat, og hélt mér dauðahaldi i dyrakarminn. Svo heyrði ég að hann svaraði NEÐAN ÚR KJALLARA. Ég gat ekki hreyft mig. Ekki þótt ég hefði átt lífið að leysa. Og svit- inn rann niður eftir bakinu í stríð- um straumum. Ég starði út í loftið eins og vitfirringur, en sá ekki neitt, nema rökkrið í ganginum. ÞAR VAR ENGINN MAÐUR. Loksins — loksins, heyrði ég að Stjáni opnaði dyr niðri og kom upp stigann, með vasaljósið í hend- inni. Hann var hinn rólegasti, með pípuna í munninum, og horfði á mig undrandi á svip, þegar hann kom upp stigann: „Hvað er að, maður. Ertu eitthvað að leika þér, eða hvað. Ertu farinn að leika drauga?" „Ég? Hvað áttu við? Ég hélt að þú værir uppi á lofti". „Þú ert orðinn vitlaus, maður. Gengur hér um húsið og bankar á allar hurðir eins og átómatískur teppabankari. Þú hræðir mig ekk- ert með því, góði". „Ég að banka? Ég hef ekkert bankað. Ég hefi hvergi bankað. En þú varst uppi á lofti . . . var það ekki?" „Nei, ég hafði nóg að gera niðri . . . af hverju spyrðu að því?" Ég heyrði umgang uppi á lofti, og hélt að þú værir þar. Ég var á leiðinni þangað, þegar þú komst. Ég heyrði einhvern ganga niður stigann og fór fram, en sá eng- an . . . !" „Ég hef ekki hreyft mig af kló- settinu niðri. En ég heyrði að ein- hver gekk niður stigann niður í kjallara, og bankaði á allar hurðir þar. Llka á hurðina þar sem ég var inni. Ég spurði hvað þú vildir, en fékk ekkert svar. Ég þóttist viss um að þú værir að reyna að hræða mig . Við skildum báðir að hér hafði eitthvað gerzt, sem var ofar okk- HOMG K«K Heildsölubírgðir: Sfmi 11409 EGGERT KRISTJANSSON & CO HF ar skilningi. Hér höfðum við strax fengið áþreifanlega sönnun fyrir dulrænum fyrirbrigðum á staðnum. Það var aðeins eitt að gera. Við fórum aftur fram í eldhúsið, kveiktum þar Ijós og opnuðum (s- skápinn. Ég tók viskíflöskuna og skenkti okkur báðum í glas. Við hvolfdum úr þeim og settumst nið- ur til að jafna okkur. Svo setti ég flöskuna aftur í skápinn og við gengum fram í salinn til að vita hvað þar hefði gerzt. Ég var orðinn illur við sjálfan mig að verða hræddur við innantómt fótatak — og kannske hefur innihald glassins hresst mig og veitt mér aftur kjark. En ég var alls óhræddur — held ég — þegar ég gekk fram í salinn föstum skrefum og alla leið að myndavélinni, með Stjána alveg á hælunum. Straumnum hafði verið hleypt á, og vélin hafði tekið myndl Ég leit upp á stýrið — og sá að það hafði hreyfzt um ca. 30° til austurs . . . Stjáni tók eftir þessu hvoru- tveggja jafnfljótt og ég, og áður en ég gæti nokkuð sagt, hafði hann gripið vélina, beint henni að suð- austurhorni salarins og hleypt af. Svo hljóp hann um eins og óður maður og tók myndir í sífellu, eins og hann sæi eitthvað . . . „Sérðu nokkuð, Stjáni?" spurði ég í hálfum hljóðum. Hann svaraði ekki lengi vel, því hann var svo niðursokkinn við myndatökuna, hljóp til og frá, rýndi í myndavélina eins og hann væri að miða á eitthvað, smellti af í óða önn, en hætti svo aftur skyndilega og hristi höfuðið. „Maður verður bara að taka nógu mikið af myndum . . ." „Sástu nokkuð?" „Nei, ég bara skaut eitthvað út I bláinn. að kemur svo í Ijós hvort ég hef hitt á eitthvað". „Stjáni . . . !" „Já". „Færðu stýrið aftur og stilltu það af" „Færð þú það". „Nei, þú kannt betur á að stilla það af, í sambandi við myndavél- ina". „Það þarf ekkert að stilla. Bara færa það aftur til baka eins og það var. Ég set vélina aftur upp á meðan". „Ég . . . ég næ ekki almenni- lega upp í stýrið . . „Nú hvað er þetta, maður . . . stattu upp á stól". „Ókey . . . ókey . . . ef þú villt hafa það á samvizkunni, að hafa stuðlað að ótímabæru andláti bezta blaðamanns landsins — tilvonandi". „Það er allt í lagi. Þú getur þá orðið frægur strax, ef bezti Ijós- myndarinn tekur mynd af því . . . fyrir utan það, að Island má ekki við því að missa mig, það veiztu sjálfur. Hefurðu enga föðurlands- ást, maður?" „Ég brenn . . . ég brenn. Jæja, skíttolago. Ég færi stýrið . . . ha?" „Já, stattu þá við það. Færðu stýrið", svaraði Stjáni kæruleysis- lega ,eins og honum væri rétt sama hvort ég væri lífs eða liðinn, og fór að bjástra við að setja vélina upp aftur. Mér hryllti við hugarfari hans og skorti á náungakærleika. En svona er það, það geta ekki allir verið eins tilIitssamir og hjarta- hlýir og ég. Svo náði ég í stól og færði stýr- VIKAN 16. tbl. —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.