Vikan


Vikan - 16.04.1964, Síða 16

Vikan - 16.04.1964, Síða 16
VIKAN hefur fengið einkarétt á sögum Ian Flemming, leynilögreglusagna höfundarins kunna, og fyrsta sagan, sem við birtum eftir hann sem framhaldssögu, er hvorki meira né minna en Dr. No, sem er einna mest spennandi og þekkt. Þar fylgjum við leynilögreglumanninum James Bond úr þokunni í London til sólarinnar í í Jamaica, og þar æsist leik- urinn. Óvinurinn þekkir Bond og veit um tilgang hans, en Bond hefur ekkert við að styðjast, nema það sem hann grunar — og reynist loks rétt. Við fylgjum honum og aðstoðarmanni hans, Quarrel, til dularfullrar eyjar í Carabia- hafi, þar sem þeir rekast á stúlkuna Honey, og síðan rekur hver stórviðburðurinn annan, og er útlitið stundum harla dökkleitt fyrir vini vora. Dr. No er svo spennandi, að þýðandinn hefur neyðzt til að læsa bókina niðri í skúffu, svo hún yrði ekki bókstaflega lesin upp til agna. Og það er sama sagan alls staðar. Classics Illustrated hefur gefið söguna út í myndarformi, og United Artists hefur gert eftir henni kvikmynd, þar sem Sean Connerey leikur Bond, Ursula Andress leikur Honey, og John Kitzmiller Quarrel. Og auðvitað kemur myndin hingað, þegar sagan hefur birzt í VIKUNNI, og verður sýnd í TÓNABÍÓI. HEYRUM SKÝRT OG GREINILEGA. A slaginu klukkan sex hneig sól- in í síðustu gullnum geislum bak við Blófjöllin og alda fjólublórra skugga helltist yfir Richmond Road þar sem skordýrin og trjófroskarnir í velhirtum görðum fóru að suða og tísta. Ekkert hljóð heyrðist ó breiðri, auðri götunni, annað en suðið í skordýrunum. Ríkir eigendur stóru húsanna, sem stóðu dólítið fró göt- unni, — bankastjórarnir, forstjórarn- ir og hóttsettir embættismenn, — höfðu verið heima síðan klukkan fimm, og nú voru þeir að ræða dægurmólin við konur sínar, baða sig eða hafa fataskipti. Eftir hólf- tíma mundi gatan vakna ó ný þeg- ar tími var til kominn að fara í coctailboðin, en nú sem stóð ríkti spenna auðs leikssviðs yfir ,,Pen- ingagötunni", eins og Richmond Road var kölluð meðal Kingston- búa, og þungur jasmínuilmurinn mettaði loftið. Richmond Road er ,,bezta" gat- an ó allri Jamaica. Það er Park Avenue Jamaica, Kensington Palace Garden Jamaica, Avenue D'lena Jamaica. „Bezfa" fólkið býr í stóru húsunum, sem hvert um sig stend- ur ó grasflöt, sem er næstum of vel hirt og skreytt með beztu trión- um og fallegustu blómunum sem þar finnast. Þessi langa beina gata er svöl og kyrrlót og gerólík hinni mollulegu og tilbreytingarlausu Kingston, þar sem íbúarnir vinna sér fyrir lífsnauðsynjunum og hin- um megin við krossgöturnar er Kings House þar sem landsstjórinn og æðsti maður Jamaica býr ósamt fjölskyldu sinni. A Jamaica er ekki hægt að hugsa sér virðulegra hverfi. Austan við krossgöturnar stend- ur húsið númer 1 við Richmond Road, virðulegt tveggja hæða hús með breiðum, hvítmóluðum svölum umhverfis á bóðum hæðum. Fró götunni liggur malborinn stígur upp að súlnagöngunum gegnum víð- óttumikla grasflötina, með tennis- völlum þar sem skordýrin nú eins og ó hverju kvöldi höfðu brugðið ó leik. Þetta virðulega hús er Mekka samfélagsins í Kingston. Það er drottningarklúbburinn sem hefur um hólfrar aldar skeið gortað af óhrifavaldi sínu og því hve oft hann hefur neitað mönnum um meðlims- rétt. Svona þvermóðskufull fyrirtæki munu ekki lengi lifa ó Jamaica nú ó tímum. Einn góðan veðurdag verða gluggarnir brotnir í Queens Club og húsið ef til vill brennt til grunna en eins og er er það mjög nytsamur staður ó svona hitabeltis- eyju, vel rekinn með góðu starfs- liði og bezta mat og vínum í öllu Karabiska hafinu. A þessum tíma dags, flest kvöld órsins, aaf að líta sömu fjóra bílana standandi ó götunni fyrir utan klúbbinn. Þetta voru bílar bridgefélaganna, sem komu saman nókvæmlega klukkan fimm og spiluðu til miðnættis. Það var hægt að setja úrið sitt efth þessum bílum. Eigendur þeirra voru, í þeirri röð sem þeir nú stóðu upp við gangstéttarbrúnina, yfirmaður varnarliðsins ó Karabiska hafinu, helzti sakamólasérfræðingur King- ston og stærðfræðiprófessor við Kingstonhóskóla. Aftast í röðinni stóð svartur Sunbeam Alpine, eign John Strangways, sem bar titilinn svæðiseftirlitsforingi, en var ein- faldlega umboðsmaður brezku leyni- þjónustunnar ó staðnum. Rétt fyrir klukkan sex fimmtón, var þögn Richmond Road lítillega rofin. Þrír blindir beiningamenn komu fyrir hornið og gengu hægt niður eftir gangstéttinni í óttina að bílunum fjórum. Þeir voru Kínnegr- ar — Kínverskir negrar — stórir menn, en gengu ólútir og börðu gangstéttarbrúnina með hvítum stöfum. Þeir gengu í einfaldri röð. Fyrsti maðurinn, sem var með bló gleraugu og gat ef til vill séð ein- hverja skímu, hélt tinkrús í sömu hendi og hann hélt á stafnum. Hægri hönd næsta manns hvíldi á öxl hans og hægri hönd þriðja mannsins á öxl annars. Augu ann- ars og þriðja mannsins voru lokuð. Þeir voru tötralega klæddir, með gamlar baseballhúfur með löngu skyggni. Þeir sögðu ekkert og eng- inn hávaði heyrðist frá þeim, nema mjúkt klappið í stöfunum þegar blindu mennirnir þreifuðu fyrir sér með þeim á leið sinni að bflunum. í Kingston hefði enginn tekið eft- ir þessum þrem blindingjum, þar sem að vanskapningar voru algeng sjón, en á þessu auða og þögla stræti stungu þeir í stúf við um- Jg — VIKAN 16. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.