Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 16.04.1964, Qupperneq 21

Vikan - 16.04.1964, Qupperneq 21
an stauragerðisins þar sem engan skugga bar á, er skýldi honum fyrir brennandi sólargeislunum. Eftir að þessar öryggisráðstafanir voru upp teknar, þraut Dreyfus þrek til að skrifa reglubundið í dagbók sína. — Ég er svo þreyttur og úttaugaður, bæði á sál og líkama, að ég lýk hér dagbók minni, skrifar hann þann 10. september, 1896. -—■ Ég veit ekki hve lengi mér end- ist það litla þrek, sem ég á enn, eða hvenær allar þessar þjáningar ræna mig allri hugsun. Og dagbókinni lýkur hann með bæn til franska forsetans um það, að rannsókn máls hans verði haldið sleitu- laust áfram, þangað til sá seki hafi fund- izt. PICQUART GERIST ERFIÐUR. Þessar ströngu varúðarráðstafanir áttu rætur sínar að rekja til atburða heima á Frakklandi. Lýðveldið hafði fengið nýjan forseta og nýja ríkisstjórn. Mercier hermálaráð- herra hafði orðið að víkja úr embætti fyrir öðrum hershöfðingja, Billiot, og Sandherr ofursti verið sviptur yfirstjórn upplýsingaþjónustunnar. Henry majór hafði gert sér vonir um að verða eftir- maður Sandherr, en það varð Picquart ofursti, sem hreppti embættið, harðdug- legur maður. í marzmánuði, 1896, komst upplýsinga- þjónustan yfir lítið blátt póstbréfspjald, sem bar utanáskrift til majórs Ester- hazy greifa, en sendandinn vinkona þýzka hermláaráðunautsins. Hafnaði póstspjald þetta á skrifborði Picquarts. Hann bauð tafarlaust að fylgzt skyldi náið með Ester- hazy greifa og öllu hans athæfi. Það eftir- lit leiddi brátt í ljós grunsamlegar stað- reyndir. Þessi foringi fótgönguliðsfylkis- ins í Rúðuborg var að vísu hugrakkasti hermaður — en hann var fjárhættuspil- ari og mjög bendlaður við allskonar leyni- brask og óreiðumál. Skömmu síðar sendi Esterhazy greifi umsókn um að fá aftur stöðu við her- foringjaráðið. Picquart hafði athugað leyniskjölin, sem snerti Dreyfusarmálið, og áður er getið, og þegar hann virti fyrir sér rithöndina á umsókn greifans, fannst honum sem hún kæmi sér kunnug- lega fyrir sjónir. Hann dró enn fram umslagið með leyniskjölunum, fann þar „bordereau“-ið, og þegar hann hafði bor- ið rithöndina á því saman við rithönd Estarhazy á umsókninni, kallaði hann Bertillon rithandarsérfræðing umsvifa- laust til fundar við sig. Og Bertillon lýsti yfir því, eftir skamma athugun að bæði þessi plögg væru skrifuð af einum og sama manni. Picquart þóttist þess nú fullviss, að þarna hefði hann fengið í hendur sönn- un þess, að Dreyfus væri saklaus, en Esterhazy greifi sekur um svik þau og landráð, sem Dreyfus hafði hlotið dóm fyrir. Hann lagði málið fyrir Gonse hers- höfðingja og einn af æðstu mönnum her- foringjaráðsins, sem var því að vísu sízt mótfallinn, að Esterhazy greifi yrði lát- inn svara til saka, væru sannanir fyrir hendi — en Dreyfusarmálinu væri endan- lega lokið; við því mátti ekki hrófla fyrir nokkurn mun, eða vekja vafa um sekt Dreyfusar. Þann mann mátti ekki einu sinni nefna á nafn; það bar að þegja hann í hel. Framhald á bls. 38. Skáldið Emile Zola. Honum blöskraði málsmeðferðin, spill- ingin og virðingarleysið fyrir sannleikanum. Hann reit ákæru, þrungna geislandi mælsku og reiði í senn. Sú ákæra varð til þess að Dreyfusarmálið var tekið upp að nýju. Samtíma skopmynd af Dreyfusi kapteini, senni- lega ríðandi á hesti réttvísinnar. í baksýn er brjóst- mynd af skáldinu Emile Zola og á henni áletrun: „J‘accuse“, „Ég ákæri‘. o ' ■ . . ' Mannúðleg meðferð á föngum var ekki komin á dag- skrá á árum Dreyfusarmálsins og þegar um var að ræða Júða og föðurlandssvikara, hefði hún þótt hlægi- leg. Hér er samtíma teikning af Dreyfusi í hlekkjum í fangelsinu á Djöflaey. Það átti að vera alveg öruggt, að Júðinn og föður- landssvikarinn Dreyfus gæti ekkert gert illt af sér. Hann var fluttur í útlegð á svonefnda Djöflaeyju og teikningin sýnir fangelsið, sem hann var hafður í þar. Fyrst er há girðing, síðan hervörður og loks fangelsið. Fáni Frakklands blaktir yfir. VIKAN 16. tbh — 21

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.