Vikan


Vikan - 16.04.1964, Síða 33

Vikan - 16.04.1964, Síða 33
Ricardo mælti enn: „Ég lýsi yfir því, að þetta sé skorpningsþrúða, en ekki venju- legur skorpningur. Við eyðum því tímanum til einskis, ef við stöndum hér lengur. Komdu graf- ari sæll, haltu þangað sem þitt heima er. Góða nótt, börn, góða nótt, Filomena frænka“. „En hann? Hvað um hann?“ Grafarinn hreyfði sig ekki úr sporum og benti yfir að veggnum. „Hafðu ekki neinar áhyggjur af honum", sagði Ricardo. „Hann hleypur varla langt. Ef þú skyld- ir þrátt fyrir allt halda lagaleið- ina í þessu máli, þá verður hann vís þarna. Eða sérðu þess nokkur merki, að hann hyggi á flótta? Nei, ég geri ekki ráð fyrir því. Góða nótt, góða nótt“. Hurðin féll að stöfum. Þeir voru horfnir áður en Filomenu gafst tóm til að rétta út hönd- ina til að kveðja eða þakka. Hún hvarf þangað sem manns- myndin stóð í skugga sínum og þögn. Nú er þetta helgimynd, hugsaði hnú og kveikti á kerti hjá henni. „Þið skuluð ekki vera hrædd, bömin mín“, mælti hún lágt. „Farið þið að sofa, farið þið að sofa“. Og þegar þau voru lögzt útaf, lagðist hún sjálf fyrir og starði um hríð í flöktandi bjarm- ann af kertinu og hún sá fyrir sér langa fylkingu ókominna daga. Á morgun, hugsaði hún, þegar bandarísku ferðamennirn- ir aka um bæinn, hleypur Filepe í veg fyrir þá, og á hurðinni stendur, málað stórum stöfum: „Safn — aðgangur 30 centavos“. Og ferðafólkið kemur hingað, vegna þess að kirkjugarðurinn er hátt uppi í fjallinu, og bíl- arnir aka hérna framhjá á leið- inni þangað. Og fyrir peningana, sem þeir greiða í aðgangseyri, getum við látið laga þakið, — keypt fyrir þá korn og kannski ávexti handa börnunum. Og hver veit nema við flytjum einhvern- tíma öll til Mexíkóborgar, þar sem skólarnir eru, og allt eig- um við að þakka því, sem gerzt hefur í nótt“. Því að svo sannarlega er Juan Diaz kominn heim aftur, hugs- aði hún. Hann stendur þarna og bíður þess að gestirnir komi til að heilsa upp á hann. Við fætur hans set ég svo skál, þar sem ferðafólkið getur lagt þá pen- inga, sem það lætur af hendi rakna við hann, meira fé, heldur en honum tókst að vinna fyrir alla ævi. Juan. Hún festi á hann augu. Hlýddi á heitan andardrátt barna þeirra. Juan, sérðu okkur? Veiztu hvað hefur gerzt? Skilurðu það? Fyrirgefur þú það, Juan, fyrir- gefur þú mér? Ljósið blakti á kertinu. Hún lokaði augunum. Hún hafði séð bros færast yfir andlit honum. Og hvort heldur það var bros dauðans, eða bros, sem ein- göngu var til í hennar eigin ímyndun, um það gat hún ekki sagt. Það skipti heldur ekki máli, fyrst að hann stóð þarna og héit vörð um þau. Hundur spangólaði í myrkri næturinnar, sem grúfði yfir ónefndri borg. En enginn heyrði það nema grafarinn í kirkjugarði sínum. Hann einn vakti ... 'ú’ DREYFUSMÁLIÐ Framhald af bls. 21. — Já, en maðurinn er saklaus! hrópaði Picquart ofursti, skelf- ingu lostinn. Gonse hershöfðingi gerði ein- ungis að yppta öxlum. Skömmu síðar sendi hann Picquart ofursta til austurlandamæranna, til eftir- lits með upplýsingaþjónustunni þar, og enn síðar sendi hann þennan erfiða ofursta sömu er- inda til Alsír. f fjarveru Picquarts, gegndi Henry majór embætti hans sem æðsti maður upplýsingaþjónust- unnar. Hann lá ekki á liði sínu frekar en endranær, og hófst þeg- ar handa um að safna sönnunar- gögnum gegn Picquart — opnaði bréf til hans, og falsaði gögn til sönnunar á sekt Dreyfusar, sem gerðu Picquart ofursta tortryggi- legan um leið. Þetta var eins- konar verndarráðstöfun, varð- andi Esterhazy greifa, einkavin Henrys majórs. PICQUART HEFST IIANDA. Picquart ofursta var stöðugt haldið í „útlegð" í Alsír. Ein- hverntíma í aprílmánuði, 1897, gerðist það, að hann féll af hest- baki, hlaut slæma byltu, án þess þó að hann slasaðist að ráði. En sá atburður varð honum áminn- ing um stöðuga nálægð dauðans. Hann hafði áður látið svo um- mælt við Gonse hershöfðingja, að hann skyldi sjá svo um, að Dreyfusar-leyndarmálið færi ekki með sér í gröfina. Og nú tók hann rögg á sig og reit sjálf- um Frakklandsforseta eftirfar- andi bréf: — Ég undirritaður, Marie- Georges Picquart, áður yfirmað- ur upplýsingaþjónustu hermála- ráðuneytisins, leyfi mér að vekja athygli á eftirfarandi staðreynd- um, sem ég ábyrgist, og legg þar við drengskap minn, að sannar séu. Og þó að reynt hafi verið að búa svo um hnútana, að þess- ar staðreyndir yrðu aldrei heyr- inkunnar, skal það ekki takast... Því næst gerði hann nákvæm- lega greip fyrir þvi, hvernijg hann hefði komizt að raun um hver væri hinn raunverulegi höf- undur „borderausins", og endaði bréfið á þessum ályktunum: VXKAN 16. tbl. 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.