Vikan


Vikan - 16.04.1964, Síða 50

Vikan - 16.04.1964, Síða 50
ÁVALLT NÝTÍZKU KVÖLDKJÓLAR VÖNDUÐ EFNI þingholtsstræti 3 simi 11987 8. KAFLI. Chateau Barcelona hafði ekki verið valinn fyrir þetta kvöld- verðarboð af einskaerri tilviljun. Þetta var turnum skrýddur kast- ali með hengibrúm og öllu til- heyrandi, sem gnæfði glæstur yfir Cap dAil og hafinu. Veitinga- salurinn var eins glæsilegur og frekast varð á kosið. Á kvöldin lék strengjakvartett rólega, hug- ljúfa tónlist fyrir gestina. Vegg- irnir voru skreyttir með mál- verkum eftir Monet, Cézanne og Utrillo. Gluggarnir voru stórir, salurinn lýstur upp með kerta- ljósum, og með veggjunum lágu þykk flauelstjöld. Og þarna var líka yfirþjónninn Hercule, fyr- irmannlegur og fær í sínu starfi, og auk þess góðvinur Mr. Pimms. Mr. Pimm hafði komið þangað 15 mínútum áður en von var á gestunum til þess að tala við Hercule og sjá um að borðið, sem alsett var kertum, blómavösum, silfurborðbúnaði og orkideum, væri eins glæsilegt og á væri kosið, rétt undir stærsta glugg- anum. Nokkrum mínútum áður en von var á Matildu frænku og hinum, gekk hann fram í forsal- inn og beið þeirra. Klukkan á mínútunni 8,30 kom dyravörðurinn og sagði að bíll Mamselle Mehaffey hefði verið að koma og Mr. Pimm kallaði: — Hvar ertu, Hercule? Hercule, hvar ertu? Og Hercule stóð reiðu- búinn við hlið hans. — Ah, þarna ertu. Jæja þá, þið verðið að standa ykkur eins og hetjur í kvöld, Chateau Barcelona verð- ur að sýna hvers hann er verð- ugur. Mr. Pimm lækkaði rödd- ina. — Og gleymdu ekki að gefa mér merkið þegar hinn gestur- inn kemur. Skilurðu það? — Fullkomlega. — Fullkomlega. — Prýðilegt. Og hérna eru þau. Kæra Miss Matilda, hróp- aði Mr. Pimm og gekk á móti henni með miklum fleðulátum, —- þér eruð guðdómlega fögur í kvöld, það veit mín trúa. Annabelle, kæra Annabelle. Kæri Mr. Green. Þetta er mér mikil ánægja. Þeir tókust í hend- ur. — Og hver er þetta? sagði Mr. Pimm, — hver er þarna? Matilda frænka sagði: —- Hún er gjörbreytt, er það ekki? ■—- Almáttugur minn, sagði Mr. Pimm. — Peggy, elsku barn, ég ætlaði ekki að þekkja þig. Peggy var í bláum kniplinga- kjól. Hún var búin að taka nið- ur hornspangagleraugun og sömuleiðis hnykilinn í hnakkan- um. Hún hafði greitt hárið nið- ur, gullið og ljómandi, og hún var í fíngerðum, háhæluðum skóm. Green sagði: — Þú hefðir átt að sjá Soames í morgun. Hann labbaði framhjá henni í fordyr- inu, það var ekki fyrr en löngu seinna að hann snarsneri sér við eins og hann hefði orðið fyrir skoti. Þau hlógu öll, og Mr. Pimm skælbrosti framan í Matildu frænku, og Annabelle; sem var í hvítum chiffon-kjól með langa demanta-eyrnalokka og hálsfesti í stíl við eyrnalokkana, fékk einnig alúðarbros. — Hvílíkur dýrindishópur, sagði hann, síðan bauð hann Matildu arminn. Hann sá í hendi sér, að þetta kvöld- verðarboð myndi takast með ein- dæmum vel. Þau fengu sér fyrsta kokkteil- inn í því sem kollað var proven- cal-therbergið, síðan annan úti á svölunum í hlýju kvöldloftinu, þar sem allir hrópuðu og and- vörpuðu af fögnuði yfir hinu dá- samlega útsýni. Síðan kom Her- cule inn og sagði þeim að mat- urinn væri tilbúin, og Mr. Pimm sá til þess að Annabelle sat með bakið að glugganum. Salurinn var þegar þéttsetinn. Það var verið að taka kvikmynd í Nice um þetta leyti, og stúlkurnar könnuðust við tvo eða þrjá leik- ara við næstu borð. Strengja- kvartettinn var að leika eitthvað eftir Gershwin. Næstum því um leið og þau voru búin að koma sér fyrir, var Mr. Pimm gefið merki. Andúmsloftið var nota- legt, dauf birtan frá kertunum, allt var fullkomið. Dásamlegt, dásamlegt. Sex þjónar komu inn með Bisque, og Hercule stóð hjá og smellti fingrunum. Síðan komu filets de sole Normande. Vínið var síðan borið fram með mikl- um tilþrifum, og Hercule sjálfur gekk í fararbroddi þegar borið var inn barquette jambon aux champignons périgourdine. En þegar þau höfðu neytt matar síns, var Annabelle ekki ennþá farin að taka eftir manninum, sem sat einn við borð sitt skammt þar frá. Mr. Pimm fór allur að iða, og vonaðist til þess að þurfa ekki að draga athygli hennar að litla borðinu, og það var ekki fyrr en Hercule kveikti í crépes Lamenn- ais, að Annabelle lifnaði við. Hún hafði verið að lýsa skemmti- snekkju sinni, sem lá við Long Island Sound, en skyndilega hætti hún í miðri setningu og sagði: — Ég vona að ég sjái rétt, Peggy, en sérðu nokkurn þarna, sem við þekkjum? Framhald í næsta blaði. f FULLRI ALVÖRU Framhald af bls. 2. heiminum hafa menn gripið til þess ráðs að búa til draugagang, þegar önnur ráð dugðu ekki. Draugahræðslan getur nefnilega ýmsu áorkað. Þess eru dæmi, að ibúar hafa verið flæmdir úr hús- um, ábúendur af jörðum og skip seld fyrir slikk, vegna þess að einhverjir hugvitssamir náungar höfðu notað sér þá skilyrðis- lausu viðurkenningu, sem alltaf er á öllu af þessu tagi. Til eru menn, sem gizka á að eitthvert samband sé milli lé- legrar kirkjusóknar hér á landi og andakuklsins hinsvegar. Þrátt fyrir allt vilja menn halda dauðahaldi í þá von, að eitthvað sé hinumegin. Kirkjan hefur brugðizt þeim í þessu; þeir hafa ekki sannfærzt fyrir hennar mátt og þá er leitað annarra meðala. Það mun dagsatt, að hverskonar hindurvitnatrú á erfiðara uppdráttar þar sem kirkjan hefur sterk ítök eins og til dæmis í kaþólskum löndum. Hvernig væri nú að vera við- búinn, þegar næsta Sauramál stingur upp kollinum og láta hreinlega fara fram nákvæma lögreglurannsókn áður en út eru gefnar yfirlýsingar um „yfirskil- vitlega atburði". GS ðdýrar fermingargjafir Jarðlíkan Minningabækur Sjálfblekungar Mynda-albúm Gjafapappír Hinar einstöku Vasareiknivélar ísafoldar gQ — VIKAN 16. tW.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.