Vikan


Vikan - 19.11.1964, Blaðsíða 44

Vikan - 19.11.1964, Blaðsíða 44
NYTT! NYTT! MEÐ ÁSTARKVEÐJU FRÁ RÚSSLANDI Framhald af bls. 21. greiðslumaðurinn hneigði sig djúpt um leið og hann opnaði dyrnar á Rollsinum. Var einhver samsæris- vottur bak við stöðuga sektarvit- undina í þessum augum? Bond ákvað að láta sig engu varða, þótt svo væri. Hver sem leikurinn var, varð að leika hann. Ef herbergis- skiptin hefðu verið upphafsleikur- inn, þá var það bara betra. Ein- hversstaðar varð að byrja spilið. Meðan bíllinn þaut niður hæð- ina, snerust hugsanir Bonds aftur að Darko Kerim. Hvílíkur maður var foringi T stöðvarinnar! Stærð hans ein, í þessu dvergalandi, hlaut að gefa honum vald, og hin ofsalega lífsorka hans og ást á lífinu hlaut dð g'era alla að vinum hans. Hvaðan kom þessi stóri og slóttugi sjóræningi? Hvernig hafði það atvikazt, að hann fór að vinna fyrir leyniþjónustuna? Hann var sjaldgæf manntegund, sem Bond þótti vænt um, og hann var reiðu- búinn að bæta Kerim við þessa fimm eða sex raunverulegu vini, sem hinn „vinalausi" Bond var reiðubúinn að taka sér í faðm. Bíllinn fór aftur yfir Galatabrúna og stanzaði fyrir framan boga- hvelfingarnar á kryddmarkaðinum. Ökumaðurinn vísaði veginn, upp slitin þrepin, inn í mettað krydd- loftið, meðan hann hrópaði for- mælingar að betlurunum og þeim, sem báru sekkina. Þegar þeir voru komnir inn fyrir sneri bílst jórinn til vinstri, hætti formælingunum og sýndi Bond lítil göng í þykkum veggnum. Þar lágu hringlaga stein- þrep upp á við. — Effendi, þér munuð finna Kerim Bay í herberginu lengst til vinstri. Þér þurfið aðeins að spyrja, það þekkja hann allir. Bond klöngraðist upp svalan stigann, að litlu forherbergi, þar sem þjónn nokkur tók á móti hon- um, án þess að spyrja um nafn, og leiddi hann í gegnum mörg litrík hvelfingaherbergi þangað sem Kerim sat við hornborð yfir innganginum á kryddmarkaðinum. Kerim heilsaði honum hjartanlega og sveiflaði glasi með mjólkurlit- um vökva og ísmolum. — Þarna ertu, vinur! Nú skulum við fá okkur raki un<^ir eins. Þú hlýtur að vera uppgefinn, eftir skemmtiferðina. Hann gaf þjónin- um fyrirmæli. Bond settist niður í þægilegan armstól og tók við litla glasinu, sem þjónninn rétti honum. Hann skálaði við Kerim og smakkaði. Þetta var mjög svipað ouzo. Hann drakk í botn. Þjónninn fyllti glas hann aftur undir eins. — Og nú er bezt að panta mat- inn. Hér í Tyrklandi er ekkert étið annað en úrgangskjöt, soðið í þrárri olívuolíu. En úrgangskjötið í Misir Carsarsi er bezt. VIÐURKENNDAR HERRABUXUR HERRADEILD P & Ö /J/J •— VIKAN 47. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.