Vikan

Tölublað

Vikan - 08.04.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 08.04.1965, Blaðsíða 32
HÚSMÆDffR! £001, eldhúsrúllan er fram- leidd sérstaklega fyrir notkun i eldhúsum ykkar og hjálpar ykkur viö dagleg störf. ELÐHÚS RÚLLAN ELDHÚSRÚLLAN GEGNIR1001 HLUTVERKI Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. npjlij; Vertu ekki mikið á ferli seint um kvöld. Þú átt á hættu að mæta einhverju úr fortíðinni sem þú vilt ekki rifja upp. Á laugardag gerist atburður sem er aðeins byrjunin á nokkru mikilvægu og stórkostlegu fyrir þig. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þetta verður fremur þægileg vika, bæði fyrir þig og fjölskylduna þína. Miðvikudagurinn verður mik- ill fjármáladagur. Vinur þinn endurvekur áhuga þinn á máli sem þið unnuð mikið að fyrir nokkru. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú skalt ekki vera mikið með í skemmtunum og ferðalögum að sinni. Þú ættir að reyna að koma persónulegum málum þínum í betra horf og búa betur um þig að öðru leyti. Sinntu fjölskyldu þinni. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þeir sem fæddir eru frá 10.-18. júlí mega eiga von á einhverju sérlega óvæntu. Yfirleitt verður vik- an þá nokkuð minnisstæð þeim sem fæddir eru undir þessu merki. Heillatala er 3. Heillalitur blár. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú ert nokkuð óþolinmóður og ýtinn við meðbræð- urna. Þú ættir að reyna að skipta um umhverfi og hvíla þig á þessu striti í nokkurn tíma. Maður sem þú hefur nokkur kynni af kemur mjög við sögu þína. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Viksn verður fremur bragðlaus en þó má hún heita þægileg. Þú færð heimsókn kunningja þinna og tekst mjög vel. Þú ættir að reyna að þroska persónuleika þinn meira og betur við ýmis skilyrði. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú hefur lítinn áhuga á verkefnum þeim sem þér bjóðast og ert að hugsa alvarlega um breytingu á högum þínum. Þú hefur nokkra möguleika á að gera góða verzlun. Vertu ekki of óframfærinn við að koma hlutunum í kring. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Það má segja að þú sért nokkuð rólegur, þegar vissir hlutir eru annarsvegar. Þú getur reitt þig á að þessi seinagangur verður ekki liðinn endalaust. Þú skalt bíða með allar stórframkvæmdir. Heilla- tala 8. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Einhver breyting í sambandi við heimili þitt er væntanleg, líklega í sambandi við bústaðaskipti. Þú uppgötvar margar nýjar leiðir sem þér voru ekki ljósar fyrr en nú. Þú ættir að gera meira fyrir einn frænda þinn. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Vikan er sérstaklega fyrir þá sem unna útilofti og ferðalögum. Það hefur ekkert að segja þótt veðrið sé vott, mundu það. Bréfaskriftir virðast skipta þig nokkru eins og er og vandaðu þig vel, það er áríðandi. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Gegn freistingum gæt þín og falli þig ver, þetta ætti að vera einkunnarorð vikunnar, því enn er ekki rétti tímin upprunnin. Um helgina verðurðu í mjög skemmtilegum félagsskap sem lengi mun minnzt verða. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú fyllist af nærfærni og hjartahlýju 1 garð vissrar persónu er þú fréttir um örlög hennar. Dæmdu ekki vin þinn hart, hann er í fullum rétti Gakktu vasklega til verks og láttu engan letja þig. Heilla- litur rauður. 22 VIKAN 14. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.