Vikan - 14.04.1966, Qupperneq 8
ccnmiQnnnn® 'fp i
ðtUnilbHi ji! .lEI 1
HVERFISGÖTU 50. - SÍMI 18830.
Tveggja manna svefnsófi
Stærð: 120 x 186 cm.
Vorkíólar
í úrvali
ENSKIR,
DANSKIR
OG
HOLLENZKIR
DAGKJÓLAR,
KVÖLDKJQLAR
OG
SAMKVÆMIS-
KJÓLAR.
Laugavegi 59
Sími 18646
Misheppnað undrabarn
Þegar John Lindsay vann
— alveg óvænt — borgar-
stjórakosningarnar í New
York, töluðu margir um, að
þar hefðu Repúblikanarnir
bandarísku eignazt sitt undra-
barn af Kennedygerðinni.
Það er satt, að Lindsay mun
á margan hátt hafa reynt að
stæla hinn látna forseta, en
yfirdrepsskapur af því tagi er
víst ekki alltaf einhlítur, þótt
sumir virðist komast langt
með honum.
En Lindsay hefur gert hvert
glappaskotið öðru verra. Til
dæmis lofaði hann að eiga
ekki í neinu baktjaldamakki
við Mike Quill, foringja flutn-
ingaverlcamanna, sem verkfall
gerðu á dögunum. En ekki
leið á löngu áður en uppvíst
varð, að handgengasti maður
Lindsays, aðstoðarborgar-
stjórinn Robert Price, hafði
heimsótt Quill með leynd.
Þá hafði Lindsay lýst því
yfir, að hann væri sannfærð-
ur um að ríkið New York
myndi veita borginni New
York fjárframlag, sem næmi
sem svarar 25 — 30 milljón-
um ísl. kr. Lindsay var svo
sannfærður um að þetta
næði fram að ganga, að hann
fór sjálfur til Albany, höfuð-
borgar ríkisins, til að sækja
peningana. En Rockefeller
ríkisstjóri svaraði: „Kannske
einhverntima seinna. ... “
Þá hefur það nolckrum
sinnum komið fyrir, þegar
kviknað hefur í í New York,
að Lindsay hafi rokið út til
að hjálpa slökkviliðinu, svo
sem til að sýna, hve borgin
hans væri honum kær. En
einnig það fór heldur slysa-
lega. í nokkur skipti, þegar
hann varð heldur seinn fyrir,
héldu slökkviliðsmennirnir
nefnilega eldinum lifandi
þangað til hann kom á vett-
vang, til að borgarstjórinn
gæti sýnt hreysti sína gegn
eldinum og trúlega einnig til
að geta látið mynda sig með
honum. Blöðin komust á
snoðir um þetta og létu Lind-
say hafa það óþvegið.
Lindsay veit vel, að Frank-
lin Delano Roosevelt er vin-
sælasti stjórnmálamaður, sem
nokkru sinni hefur látið á sér
kræla í New York, og sem
von var, datt honum í hug
að nota sér ýmis herbrögð
þessa ástsæla leiðtoga. Eitt
þeirra var að tala til borgar-
búa frá einmanalegu lestrar-
lierbergi, þar sem allir veggir
væru þaktir bókahillum,
náttúrlega þéttsetnum af bók-
um. En þar sem borgarstjór-
inn var heldur fátækur af
bókum, keypti hann í snatri
nokkur bílhlöss af þeim og
lét stilla þeim upp á hentug-
um stað í ráðhúsinu. En aft-
ur komust blöðin á snoðir um
trikkið og tættu aumingja
Lindsay í sig.
En verst af öllu var þó
hneykslið með Katrínu Thom-
as. Þessi ungfrú, sem hefur
mjög fallega fætur og er skóla-
systir borgarstjórafrúarinnar,
fékk skyndilega atvinnu sem
opinber ljósmyndari New
Yorkborgar með tæplega
400.000 kr. launum um árið.
Launin áttu, samkvæmt til-
kynningu, að greiðast úr
sjóði, sem stofnaður var til
styrktar,, baráttunni gegn fá-
tæktinni“, sem nú er svo mjög
höfð á orði þar vestra. Nú er
ungfrú Thomas dável efnum
búin, enda varð hneykslun
manna gífurleg.
En verra er þó ef til vill
sú staðreynd, að á þeim tíma,
sem Lindsay hefur verið „kon-
ungur“ tíu milljóna New
g VIKAN 15. tbl.