Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 3
mm
'vXvX
VfSUR VIKUNNAR
Frá útlöndum krían er komin í bæinn
kvik oinsog forðum og tíguleg enn,
í klassiskri sönglist á sjómannadaginn
hún sigraði íslenzka Hrafnistumenn.
En fólkið það stritar og fram af sér gengur
svo framleiðslan aukizt og bankanna traust,
og þeir eru fáir sem fagna því lengur
þó fuglarnir syngi hér endurgjaldslaust.
í annríki nútimans athafnasviða
er ábyrgðarleysi að taka sér hvild,
og hamingju okkar og menning skal miða
við mál eða tunnur af útfluttri síld.
SfiSSSSc
RsXJssy
Það er mikil gróska í myndlistinni á Islandi um þess-
ar mundir og nálega eru samtímis á ferðinni sýningar
hjá ungum mönnum, sem mála gersamlega abstrakt
og huglægt eða líkt og gömlu meistararnir. Þegar
abstrakt-myndlistin barst hingað, urðu miklar deilur og
allt að því trúarhiti og margir frumherjanna hafa lát-
ið allt annað um sig spyrjast en hvika. Einn þeirra sem
um langt skeið hefur málað abstrakt er Sverrir Har-
aldsson. Um tíma hefur lítið frá honum heyrzt, en nú
Í NttSTll VIKII
heldur hann sýningu á vegum Listafélags Menntaskól-
ans og kemur á óvart með því að varpa abstraktinu
fyrir róða og snúa sér að náttúrunni og landslaginu á
ný. Við erum með myndir úr vinnustofu Sverris og
spjall við hann í næsta blaði.
Annað efni í blaðinu: Þriðji hluti sumargetraunarinnar,
þar sem vinningarnir eru hundrað þúsund króna virði
af allskonar ferðaútbúnaði. Jarðarfarir hjá heiðingj-
um, mjög fróðleg grein eftir sr. Jóhann Hannesson,
prófessor, um jarðarfarir hjá Kínverjum og fleira fólki,
siði, sem í okkar augum eru sjálfsagt heldur undarleg-
ir, þótt þeir séu það Iíklega ekki í augum hlutaðeigandi
þjóða. Skemmtileg smásaga og framhaldssögurnar
báðar. Frásögn af Barbru Streisand, sem nú kvað vera
dýrasti ammtikraftur heims. Grein um íslenzkan hag-
leiksma sem sett hefur saman einskonar jeppa úr
bílahlutur> frá ýmsum heimshornum. Myndir af fjórða
þátttakanda fegurðarsamkeppninnar. Vikan og heim-
ilið og sitthvað fleira.
Í ÞESSARIVIKU
SUMARGETRAUN VIKUNNAR. VINNINGAR:
FERÐAÚTBÚNAÐUR Á 100.000 KR. Annar
hluti.............................. Bls. 4
LOFTLEIÐAHÓTELIÐ NÝJA. Myndafrásögn . . Bls. 10
FULLKOMIÐ MORÐKVENDI. Smásaga Bls. 12
EFTIR EYRANU ....................... Bls. 14
ANGELIQUE OG SOLDÁNINN. 16. hluti . Bls. 16
HEILAÞVEGINN í KÍNVERSKU FANGELSI.
Þriðji og síðasti hluti greinaflokksins . Bls. 18
LEITAÐ AÐ KRABBAMEINI. Blaðamaður Vik-
unnar í krabbameinsrannsókn ............. Bls. 20
HÆTTAN Á KRABBAMEINI VEX EFTIR FER-
TUGT. Rætt við Bjarna Bjarnason, lækni . . Bls. 23
MODESTY BLAISE. 10. hluti............. Bls. 24
FEGURÐARSAMKEPPNIN. Þriðji þátttakandi. Bls. 25
Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.). Blaðamenn: Sigurð-
ur Hreiðar og Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri
Friðriksson. Auglýsingar: Ásta Bjarnadóttir.
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Símar 35320,
35321, 35322, 35323. Pósthólf 533. Afgreiðsla og dreifing:
blaðadreifing, Laugavegi 133, sími 3G720. Dreifingar-
stjóri: Óskar Karlsson. Verð í lausasölu kr. 30. Áskrift-
arverð er 400 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram.
Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Rafgraf h.f.
FORSÍÐAN
Það er heldur lógt risið á rómantíkinni nú tii dags,
og er það líklega óvíða nema I hestamennskunni
inni við Elliðarár og víðar, sem hún á sér athvarf
ennþá. Af því tilefni er þessi teiknimynd, sem Hall-
dór Pétursson hefur gert.
HIÍKiíiR í VIKUBYRIUH
Nei, nú verð ég að hætta, ég er að bera'
inn hádegismatinn.
Svefnleysi mitt ágerist — nú get ég ekkl
einu. sinni sofið þegar komiö er áð *
íótaferSartíma.
Þér takið 1 kúbik af vatni .10 kúbikað
wiský og .hundrað microgrömm-af
> sítrónusafa.
A
Hve oft á ég að segja þér að washington
er með mikið, grátt hár og Lincoln er með
skeggið.
Eruð þér.eitthva'ð vem,' —■ auðvifað hafðí
hann þetta skeggþegar hann kom.
VIKAN 22. tbl. g