Vikan - 02.06.1966, Page 15
RÁO HANDA
BYRJENDUM
Rhyttama-
gítarar
JOHN
LENNON
BEATLES
Ég hef aldrei leikið eingöngu á
rhythmagítar. Það er fátt erfið-
ara en að reyna að skýra út,
hvernig á að leika á rhythma-
gítar og hvert mitt hlutverk er
í hljómsveitinni. Þótt alltaf hafi
verið látið í það skína, að ég
sé rhythmagítarleikari hljóm-
sveitarinnar, er sannleikurinn
sá, að við skiptumst allir á um
að leika rhythmann. Ég hef gam-
an af að leika sóló við og við,
og ég býst við að Georg sé því
feginn. Þegar við þyrjuðum að
leika saman, sagði ég aldrei að
mig langaði til að leika á rhyth-
ma gítarinn. Þetta æxlaðist ein-
faldlega þannig, að Georg var
betri sólóleikari en ég, þannig
að hann var sjálfkjörinn til að
leika sóló. En til þess að tryggja
mér, að ég fái við og við tækifæri
til að leika sóló, sem ég lög.
Auðvitað sem ég líka gítarsólóið
í huganum og það er augljóst, að
það fer best á því, að ég leiki
sjálfur, það sem ég hef samið.
Ráð: Hafðu ekki gítarinn þinn
það hátt stilltan, að hann spilli
fyrir sólógítarnum.
Reyndu að þróa með þér stíl og f
hljóm, sem fólk mun þekkja sem
þinn eigin. Flestir rhythma gít-
arleikarar hafa sama hljóminn.
Undanteknir eru þó Bruce Welch
hjá The Shadows og John Lenn-
on. Gítarspil John Lennons er
alltaf auðþekkt. Ég slæ á streng-
ina upp á við og fæ þannig slitr-
ótta hljóma. Leiðinlegasta hlut-
verk í hverri hljómsveit er að
leika á rhythmagítar og eina á-
stæðan til þess að ég spila rhy-
thma er sú, að ég er ekki hæfur
til að spila sólóið. Það er ekki
annað en að slá hljóma — það
sama aftur og aftur. Annars er
hverri hljómsveit nauðsynlegt að
hafa rhythmagítar með í spil-
inu. Rhythmagítarinn er mjög
áberandi í mörgum laga okkar,
til dæmis í laginu „Good bye,
my love“.
BRIAN
JONES
ROLUNG
STONES
í síðasta þætti voru gefnar
ráðleggingar varðandi sóló-
gítarinn. Nú er röðin komin
að rhythmagítarnum. Það
eru kannski undarleg sann-
indi, að rhythmagítarleikur-
um fer sífellt fækkandi og
virðist þessi „kynstofn“ satt
að segja að vera að líða und-
ir lok. Margar brezkar hljóm-
sveitir hafa alls engan
rhythmagítar, aðrar hafa
rhythmagítar að nafninu til
en í slíkum tilvikum eru
sólógítarar í rauninni tveir.
En hér eru nokkur heilræði
til byrjenda í rhythmagítar-
spili frá beztu rhythmagítar-
leikurum Bretlands.
Ég spila mikið sóló og hef
sérstakan áhuga á rhythmagítar.
Við Rollingarnir höfum oft tvo
sólógítara í gangi og við notum
aldrei hreinan rhythma eins og
tíðkaðist í gamla daga, þegar
The Shadows voru upp á sitt
bezta. Fyrst við höfum á annað
borð tvo gítara er engin ástæða
til annars en að nota þá eins og
kostur er.
JOHN
McNALLY
'fw
L SEARCHERS
GRAHAM
NASH
HOLLIES
Þegar við leikum á hljómleikum,
notum vað alls ekki rhythma-
gítar. Það er alls ekki hægt að
heyra í honum og auk þess spill-
ir hann fyrir hljómnum. Ég leik
að vísu á rhythmagítarinn með-
an ég syng, en ég set hann bara
ekki í samband við magnarann!
Það er hinn misjafni hljómburð-
ur í hinum ýmsu samkomuhús-
um, sem veldur þessu. Öðru máli
gegnir þegar við erum að leika
inn á hljómplötu. í upptöku-
salnum er hægt að einangra öll
hljóðfærin og þá get ég að öllu
leyti ráðið, hvernig rhythma-
gítarinn á að hljóma í samræmi
við hin hljóðfærin. Áður fyrr lék
ég á sólógítar og söng, en það
er mjög erfitt að sameina þetta
tvennt. Á gítarnum mínum er
sérstök plata, sem mörgum verð-
ur starsýnt á. Allir vilja vita,
hvaða tilgangi hún þjónar. Ég
hef hana bara til þess að koma
í veg fyrir rispur!
RAY
DAVIES
KINKS
Ég vildi ráðleggja byrjendum
að reyna að öðlast sjálfstæðan
stíl og hlusta á hljómplötur.
Sóttu gííar-
leikarann til
Færeyja
Hinn vinsæli söngvari, Engil-
bert Jensen, sem áöur lék á
trommur og söng með Hljóm-
um, hefur nú um nokkurt skeið
lcikið með hljómsveitinni Óð-
menn. Hljómsveitin lét fyrst í
sér heyra í febrúar s.l. og hefur
smám saman áunnið sér slíkar
vinsældir. að piltarnir gera
ekki annað nú orðið en að
leika á dansiböllum á kvöldin
og æfa sig á daginn. ÓÖmenn,
sem allir eru búsettir í Kefla-
vík, heita Jóhann G. Jóhanns-
son, Eiríkur Jóhannsson, Valur
Eiríksson og auk þeirra er sem
fyrr getur Engilbert Jensen.
Jóhann leikur á bassagítar og
var áður með hljómsveitinni
Straumar frá Borgarnesi. Auk
þess sem hann leikur á hassa
leikur hann á orgel, þegar svo
ber undir. Eiríkur er bróðir Jó-
hanns og leikur á sólógítar.
Þegar hljómsveitin var stofn-
uð, var Eiríkur sóttur alla leið
til Færeyja, en þar hafði hann
starfað um langt árabil. Valur
leikur á rhythmagítar og Eng-
ilbert á trommur — og allir
geta þeir sungið.
Og að lokum má geta þess,
að sjö liljómsveitir munu nú
vera starfandi í Keflavík og er
þ?.ð áreiðanlega met — miðað
við höfðatölu!
Mánar frá
í mörgum lögum spila ég aðeins
með í vissum köflum. Stundum
syng ég bara og hvíli gítarinn
þá algerlega. Ég leik líka á sóló
gítar og þannig byrjaði ég raun-
ar minn hlj ómlistarf eril. Mér
finnst gáfulegt að hafa byrjað
Framhald á bls. 34.
Þetta er hljómsveitin Mánar frá Sel-
fossi. í tíðindabréfi, sem okkur
barst frá velunnurum hljómsveitar-
innar, segir, að piltarnir hafi eink-
um leikið í heimahögum en einnig
hafi þeir brugðið sér milli bæja og
komið fram í Reykjavik og Kópa-
vogi og hlotið hinar beztu undir-
tektir. Síðan þeir komu fyrst fram
á dansleik austanfjalls ásamt
Hljómum, hafa þeir verið tíðir gest-
Framhald á bls. 33.
VIKAN 22. tW.
15