Vikan


Vikan - 02.06.1966, Page 32

Vikan - 02.06.1966, Page 32
Rowenta. SJÁLFVIRK BRAUÐRIST _ m i^l ! vaíur ffáCj'jvrt & Co. Snorrabraut 44 - Sfmi 16242 STJÖRNÖSPÁ^ HrútsmerkiS (21. marz — 20. apr(I): Skemmtileg vika framundan. Þú færð að sjá, heyra og reyna ýmislegt sem þig hefur hingað til aðeins dreymt um. Þú umgengst kunningja þína og ætt- ingja í minna lagi. Heillatala er fjórir. Nautsmerkið (21. apríl — 21. mat): Þú ert mjög hamingjusamur og mjög þreyttur, bæði í sömu mund. Reyndu að fá einhverja aðstoð svo þú getir betur notið tilverunnar. Þú verður fyrir happi um miðja vikuna. Heillalitur er grænn. ff Ivíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú ferð í smá ferðalag sem hefur upp á ýmislegt að bjóða sem skemmtilegt má teljast. Þú eyðir miklu af frístundum þínum með kunningjum þínum. Eins og er ertu ekki mjög hlaðinn störfum. © Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú hefur nýlokið einhverju sem hefur reynt mjög á krafta þína og ættir þessvegna að slappa reglulega af og snúa þér að einhverju gerólíku. Þú verður fyr- ir nokkurri gagnrýni, en skalt ekki láta hana áþigfá. fír Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú ert dálítið kvíðinn vegna verks sem þú hefur tekið að þér en skortir þjálfun eins og er, svo þér takist að leysa það vel af hendi. Fáðu kunningja þína þér til aðstoðar, þeir ættu að geta haftgaman af. liF* Méyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):- Það ríður mikið á að þú sért prúður í framkomu og leggir þig fram við verkefni þín. Nokkrir kunningj- ar þínir bera upp við þig tillögu sem þú skalt íhuga vandlega. Þú ferð í ferðalag um helgina. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú hefur mikinn hug á að breyta ærlega til, sér- staklega hvað varðar húsnæðismái þín. Þú ert dálit- ið utan við þig og ef til vill nokkuð taugaóstyrkur. Vinir þínir verða mikið í kringum þig. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú ert nokkuð ósanngjarn og ættir að skera dálítið niður fullyrðingar þínar um ákveðið málefni. Þú nýtur þekkingar þinnar á einhverju sviði. Eldri kona leitar hjálpar þinnar og skaltu liðsinna henni. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú ert mjög niðursokkinn í nýfædda hugmynd. Eins og málin standa skaltu ekki gera of marga að trún- aðarmönnum þínum. Þótt þú teflir á tvær hættur eru miklar líkur á heppni þinni. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Annir þínar eru of miklar þannig að þú vinnur ekki verk þín svo vel sem ætlast er til. Forðastu að deila við dómarann og reyndu ekki að rökræða við yfir- boðara þína. Þú skemmtir þér vel á laugardag. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19 febrúa'r): Skin og skúrir skiptast á. Þú vinnur á þitt band persónu sem þér þykir mjög vænt um, en hefur fjarlægst þig af óhjákvæmilegum ástæðum. Þú átt í smá fjárhagslegum erfiðleikum. Fiskamerkið (20. febrúar — 20 marz): Óvenjumiklir frítímar og samband við kunningja þína hressa þig mikið og þú lítur bjartari augum á hversdagsleik tilverunnar. Þú ert nokkuð spenntur og eftirvæntingarfullur, en flýttu þér ekkert. 22 VXKAN 22. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.