Vikan


Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 44

Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 44
BLACK & WHFTE Fílter sígarettur iCOVITCH Mmmm' Willie. Þegar Pacco — lætur sér liða vel, ssgir hann mér marga hluti. Hann veit, að ég hlusta ekki og tek ekki eftir, svo hann talar. Hann er ónægður, ef ég segi jó og nei og hvernig þó, og ó, þú ert svo snið- ugur. — Ertu viss um, að þú takir ekki á þig áhættu? — Orugglega ekki, þetta verður auðvelt. — Allt í lagi. En farðu ekki svona stóreygð, eins og þú ert núna. Pacco gæti farið að velta því fyrir sér, hvað þú hefðir verið að gera í kvöld. — Poh! Þetta var fyrirlitning. — Pacco tekur ekki svoleiðis eftir mér. Síminn við rúmstokkinn hringdi, og hún teygði sig eftir honum, liggj- andi yfir magann á Willie. Annars hugar tók hann að ganga með tveimur fingrum upp eftir hrygg- lengjunni á henni. — Já, sagði hún inn i símatrekt- ina. — Aha! Modesty? Svo varð hún undrandi á svipinn. — En þetta er . . hún þagnaði og hlustaði, með at- hyglishrukku milli augnanna. — Já, en . . . já, hann er hjá mér . . . Viltu tala við hann? Þögn. — Allt í lagi. Eg skal segja honum það strax. Hún tók símann frá eyranu, starði á hann, og lagði hann svo á tæk- ið, og sneri sér við til að horfa á Willie. — Þetta var Modesty, sagði hún. — En svo skrýtin. Hún leyfði mér ekki að tala. Hún sagði mér að segja þér að koma starx aftur. Það er áríðandi. En Willie, hún nefndi ekki mitt nafn . . . hún kallaði mig alltaf „Jacqueline". Fingur Willies námu staðar göngu sinni upp eftir hrygglengjunni. — Jacqueline, bergmálaði hann lágt. — Það var engin undrun í rödd hans. — Hoppaðu niður, elskan. Hann sló léft á rassinn á henni. — Eg þarf að hreyfa mig. Hún stökk fram úr og fór í innislopp. Willie snaraði sér í skyrtuna og buxurn- ar. — Varðandi Pacco, sagði hann. — Eg vil fá að vita allt, sem hann veit um mann, sem heitir Gabríel, og allt, sem hann veit um stóra sendingu af demöntum. Ertu með? — Já, Willie. Gabríel og demant- ar. Ég man það. Einbeitingarhrukk- an kom aftur, og hún gekk yfir að glugganum til að laga sóltjöldin, svo meiri birta kæmist inn. — Leggðu samt ekki mikla á- herzlu á það, sagði Willie og fór í skóna. — Eg vil ekki að Pacco geti getið sér til . . . — Willie, komdu hingað! Hún gerði rifu á sóltjaldið til að gægj- ast út, og það var ákefð í rödd hennar. Willie flýtti sér til hennar og leif í gegnum rifuna. ibúðin var í blokkarenda, og í sundinu, sem lá upp með blokkinni og aftur fyrir, stóð rauð vespa. — Eg held, að þú hafir verið elt- ur, Willie! Rödd hennar skalf lítið eitt: — Þessi vespa. Einn af mönnum Paccos á hana. - Hver? — Chaldier. Hann er frá Alsír og Sígaretturnar, sem allir hafa beðið eftir eru nú loksins á markaðinum. Biðjið um „BLACK & WHITE“ MARCOVITCH PICCADILLY LONDON Í gekk i þjónustu Paccos, eftir að hann var orðinn einn. — Heldurðu, að hann haft elt mig? Eða er hann að líta eftir þér. — Onei. Pacco hugsar ekki þann- ig um mig. Ég er hrædd um þig Wiilie. — Ég veit, að Pacco gerir vonda hluti. — Hafðu ekki áhyggjur, elskan. Hann lagði handlegginn á öxl henn- ar og þrýsti henni róandi að sér. — Farðu og gáðu framfyrir húsið, hvort þú sérð náungann. Hún trítlaði berfætt burt. Willie tók upp jakkann sinn. Þetta var létt vindúlpa með rennilás að framan. Innan á brjóstinu vinstra megin voru tvöfaldar skeiðar úr þunnu leðri, sem héldu hnífunum hans tveim. Hann hélt á jakkanum, fór inn í baðherbergið og þvoði sér um hendur og andlit. Þegar hann renndi greiðunni í gegnum hárið, sá hann flösku á hillunni við hliðina á kló- settinu og tók að glotta. Þetta var saltsýruflaska. Nicole kom að baðherbergisdyr- unum. — Hann er þarna, Willie, andaði hún stóreyg. — Utan við kaffistofuna, hinum megin við göt- una. — Willie tók upp flöskuna og renndi henni í jakkavasa sinn. Hann tók í handlegginn á Nicole og gekk inn í stofuna. Þaðan sá hann gang- stéttina hinum megin við götuna, með nokkrum borðum úti á gang- stéttinni. Við eitt borðið var lítill maður með langt, mjótt og hör- undsdökkt andlit. Hann var í þröng- um, gulum buxum og dökkgrænum, þunnum jakka. Sítt hár hans var vandlega greitt. — Ég skal slá hann af mér stund- arkorn, sagði Willie. — Heldurðu ennþá, að þú getir komið Pacco til að tala í kvöld, kjúklingur? — Auðvitað, Willie. Hún hikaði. — En svo held ég að ég vilji fara burt. Það er ekki alltaf gaman að vera hjá Pacco. Mig langar að fara til Parísar. Kannske London. Hún tók um handlegg hans. — Heldurðu að ég geti fengið vinnu í London, Willie? — Ætli ég geti ekki séð þér fyrir einhverju til að drepa timann með. Svarið var ósjálfrátt, og hún sá að hann var um allt annað að hugsa. — Hvenær á ég að hitta þig, til að segja þér hvað ég hef veitt upp úr Pacco? spurði hún. — Segðu bara til, elskan. — Ég hætti seint í Le Gant Rouge. Vertu hjá Gamla Markaðinum hérna, klukkan tvö. Hann er auð- ur þá. — Sjálfsagt. Má ég fá lánaða vespuna þína? — Hvað sem þú vilt, Willie. Ég get tekið leigubíl í kvöld frá Juan les Pins. — Þú ert indæl. Hann tók um handlegginn á henni og kyssti hana. — Sjáumst þá í nótt. — Allt í lagi. Ég hefði ekkert á móti því að hitta Modesty líka, ef hún gæti komið. Hún var svo skrýt- in í símann, og kallaði mig Jacque- line. — Það þýðir, að hún er í vanda. Ég verð fyrst að sjá um Chaldier, og síðan sjá til. Bless á meðan elsk- an. — Bless Willie. Og viltu . . . Hann nam staðar við dyrnar og leit aft- ur. — Viltu vera fluga, sagði hún á- hyggjufull. Willie fór niður stigana og út í þröngan bakgarðinn. Hann gekk í gegnum hlið út í sundið, þar sem ^ VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.