Vikan - 09.06.1966, Síða 20
Rnssnesk
HidirstÍfla
amerísk vál
íslenzk vtirbygging
Menn eru löngu hættir að snúa sér við
þótt nýjar gerðir af bifreiðum sjáist á göt-
unum, það er svo aigengur viðburður.
Hinsvegar hefur mörgum orðið starsýnt á
jeppa einn all sérkennilegan og sumir hafa
gizkað á, að nú væru Japanir komnir á
markaðinn með einn 1 viðbót. Að vísu
gætu fallegar línur bílsins og frágangur
bent til þess að hann væri japanskur, en
svo er þó ekki; hann er í rauninni ís-
lenzkur en tilbúinn úr ýmsum gerðum
bifreiða.
Höfundur bílsins er Stefán Árnason,
ungur maður, sem nú mun vera kominn
til Bandaríkjanna til þess að vinna þar
fyrir Loftleiðir. Hann hefur áður verið í
Bandaríkjunum kom þá við á þeim stöð-
um, sem selja hluti úr ónýtum eða af-
lögðum bílum. Þar tíndi hann saman eitt
og annað og flutti með sér heim til fs-
lands. Hann hóf verkið með því að útvega
sér grind af rússajeppa, ásamt öxlum
fjöðrum, hjólum og millikassa. Rússajepp-
inn hefur vakið athygli fyrir góða fjöðr-
un og prýðilega eiginleika á vegi. Hann
hefur líka þann kost að vera hjólastór,
svo hátt verður undir hann. En meira not-
aði Stefán ekki af Rússanum. Mótorinn
er 6 strokka V-155 hestafla Buickvél af
árgerð 1965. Sjálfskipting er einnig frá
Buick. En Stefán vildi haida í þá kosti
jeppans að geta notað bæði hátt og lágt
drif svo og framhjóladrif og varð hann
því að færa millikassann til að koma sjálf-
skiptingunni fyrir á réttan hátt.
Yfirbyggingin er smíðuð úr prófílastáli
og það gerðu þeir Ingólfur og Hjörleifur
Herbertssynir. Verk þeirra er svo vel af
hendi leist, að fæstum dettur annað í
hug en að yfirbyggingin sé gerð í bíla-
verksmiðju. Gluggarnir eru mjög stórir
eins og myndirnar bera með sér og litað
gler í þeim. Framsætin eru úr Thunder-
bird, framstuðarinn af Falcon, afturstuð-
ari af Thunderbird, mælaborð úr Mercury
Comet, framrúða og stýri einnig úr Com-
et. Bólstrun á mælaborði hefur verið unn-
in hér heima, sömuliðis á aftursætinu sem
er sérsmíðaður hringsófi. Grillið að fram-
an er af Mercury og sagað utan af því
báðum megin. Vélarlokið er hinsvegar af
Willysjeppa. Stefnuljósin eru af Thunder-
bird, ílöng og blikka þrjú, hvert í fram-
haldi af öðru. Öryggisljós eru í öllum
hurðum. Bensíneyðslan er um 16—17 lítr-
ar á hundrað km. en ókunnugt er um há-
markshraða.
Grindin og hjólin eru af Rússajeppa. Hér sýnir
Stefán hvað jeppinn getur klifrað.
Afturendinn er opnanlegur eins og myndin sýn-
ir. Stuðarinn er af Thunderbird, yfirbyggingin
íslenzk.
Stýri og mælaborð úr Comet. Milli framsætanna
er stokkur með allskonar aukamælum, sjálfskipt-
ingin og stengur fyrir háa og lága drifið.
Framsætin eru úr Thunderbird og framúrskar-
andi þægileg. Aftursætið er sérsmíðað og bólstr-
að.
Stefán Árnason, höfundur jeppans, sem sést á
myndinni og vakið hefur mikla athygli.
2Q VIKAN 23. tbl.