Vikan - 09.06.1966, Síða 47
Það á ekki að stinga með
gaffli í kjöt eða annað, því
að við glóðarsteikingu mynd-
ast húð utan á matnum, en
það má ekki gsra gat á
hana, svo að vökvinn renni
út og maturinn verði þann-
ig þurr og skorpinn.
Þegar matur er þræddyr
upp á spjótin, er kryddinu
stráð á rétt áður en hann
er fullsteiktur. Stönginni er
svo snúið eftir þörfum, en
hún verður að vera það ’.öng,
að ekki verði of heitt á hend-
urnar. Þótt hver gestur hafi
sína stöng, á ekki að borða
beint af henni, heldur setja
matinn á disk.
Handgrind, gaffall og spjót, allt
með löngu handfangi með basti á
endunum.
Hafið helzt ekki fleiri gesti en svo, að
hægt sé að steikja matinn næstum allan
[ einu. Gafflar, spjót og grindur verður
allt að vera með löngum handföngum.
Nauðsynlegt er að hafa stóra svuntu,
því að stundum vill slettast fita eða neist-
ar úr glóðinni. Þykkir grillhanzkar eru
sjálfsagðir, en þá má fá hér öðru hverju,
en auðvitað er líka hægt að sauma þá
sjálfur. Þeir verða að vera vel fóðraðir,
þannig að ekki hitni mikið í gegnum þá
og skemmtilegt er að hafa þá skrautlega
í sterkum litum.
Skjólveggur úr timbri, en
ar glóðarsteikt er.
á honurn eru hankar og hillur fyrir allt, sem þægilegt er að hafa við höndina, þeg-
Hennar grilllianzki, mcS
blúndu þvert yfir.
Hans grilllianzki, legging á
efri hlutanum, sem lítur út
eins og hnepping.
Hér í Reykjavík hef ég séð útigrillofna af þremur gerðum, en
vel getur verið að fleiri tegundir séu til. Sá dýrasti var á hjólum
og hægt var að ýta grindinni upp og niður á stöng í miðjunni,
en lítið borð úr sama efni fylgdi með, sem hægt var að láta
standa upp við ofninn. Þessi ofn kostaði kr. 807.—. Heldur minni
ofn á háum fótuin kostaði kr. 421.— . Brúnin utan með náði ekki
alia leið í kring, heldur var opin að framan og grindina var
hægt að færa í fjórar misjafnar hæðir með því aö stinga henni
i misháar raufir. Þann ofn mátti taka alian í sundur og fæturna
undan honum, þannig að auðvelt var að hafa hann með á ferða-
lögum eða geyma yfir veturinn í litlu plássi. Sá ódýrasti var af
svipaöri gerð. nema mcð lágum fótum og ætlaður til að standa
á borði eða öðru i réttri hæð, og kostaði hann kr. 285.—. Gafflar
hafa veriö hér tll með skafti, sem hægt var að lengja og stytta,
og kostuðu þeir rúmar tuttugu krónur, en spjót ca. fimmtan
kr. Handgrind lief ég ekki séð hér, en hugsanlegt er að þær fá-
ist hér samt. Á sama stað og ofnarnir eru seldir, fengust viðar-
kol og kostar 10 punda poki kr. 72.—, en íkveikjulögurinn 18 kr.
brúsinn. Þar var líka hægt að fá margs konar krydd, sem heppi-
legt er við glóðarsteikingu og kostaði glasið kr. 45.— .
VIKAN 23. tbl. 47