Vikan - 08.09.1966, Blaðsíða 17
Ámundi Ámundason.
Ámundi aér
fyrlr öllu
Mick JagBcr — kcmur hann hingað
ásaml hinum Bollingunum?
Á nafnspialdinu stendur:
Ámundi Ámundason, um-
boðsmaður skemmtikrafta.
Aðeins þeir, sem hafa spiald
þetta undir höndum, vita,
hvar hægt er að komast í
samband við manninn. Það
þýðir ekkert að leita í síma-
skrónni. Enginn veit, hvar
hann hefur skrifstofu sína.
Hann auglýsir aldrei starf-
semi sína. Það vita allir,
hvort sem er, að Ámundi
Ámundason er umboðsmaður
skemmtikrafta.
Eða eigum við kannski að
segja bara „hljómsveitamiðl-
ari"? Hingað til hefurÁmundi
einkum fengizt við að útvega
hljómsveitum atvinnu og
danshúsum hljómsveitir — en
hann segist vera að færa út
kvíarnar. Hann er farinn að
sýsla með „óperusöngvara
og svoleiðis". Hann ber nafn-
ið umboðsmaður skemmti-
krafta með réttu.
Og það verður ekki af
Ámunda skafið, að hann er
ötull umboðsmaður, þótt ung-
ur sé að órum, fæddur 14.
aprll 1945. Fljótt ó litið virð-
ist næsta ótrúlegt, að svona
strákpjakkur skuli vera fær
um að standa í stórræðum.
Stundum sýslar hann með 10
hljómsveitir og hann lætur
sig dreyma um þann dag, er
hann tekur á móti Rolling-
unum á Reykjavíkurflugvelli.
Hann hefur haft þetta sýsl að
aðalstarfi undanfarin þrjú ár
og hann játar hreinskilnis-
lega, að það var ekki eins
auðvelt í fyrstu og það er
nú.
— Þeir voru margir, sem
trúðu þvi ekki, að ég væri
umboðsmaður, þegar ég byrj-
aði á þessu, segir hann. Fólk
hélt, að ég væri að grinast!
Nú er þetta orðið auðvelt.
Þetta gengur eins og smurð
vél.
Ámundi er Reykvíkingur.
Á frumbernskuárunum seldi
hann blöð á götum borgar-
innar og vann í síldinni fyr-
ir austan. Hugurinn hneigð-
ist snemma til verzlunarstarfa
og um skeið starfaði hann
við afgreiðslu í Hreyfilsbúð-
inni hjá Pétri Péturssyni, sem
einnig hefur starfað sem um-
boðsmaður skemmtikrafta.
Hjá Pétri kynntist Ámundi
skemmtanaiðnaðinum.
Fyrsta hljómsveitin, sem
Ámundi tók að sér umboð
fyrir, var Hljómar, en þeir
voru þá nýbyrjaðir að láta
að sér kveða. Þeir léku í
fyrsta skipti í Reykjavík á
Hljómsveitin Thc Scarchcrs kom til Rcykjavíkur á sinum tíma
á vegum Ámurnla Ámundasonar. Ásamt þeim á þessari mynd cr
hljómsveitin Sóló, sem kom fram á hljómleikum þeirra. Mynd-
ina tók Sigurgcir Sigurjónsson í Austurbæjarbíói.
EFTIRI
KbMH
Andrés Indrlðason
hans snærum i Sigtúni og í Iðnó. Ámundi hefur
alla tíð verið umboðsmaður Hljóma og lætur
mjög vel yfir samvinnunni við þá. Segir hann
enga hljómsveit jafn gott að auglýsa og Hljóma
og þurfi þar engin lýsingarorð heldur sé nóg að
segja „Hljómar í kvöld". Uti á landsbyggðinni
hlýtur engin hljómsveit jafn góðar viðtökur og
Hljómar að sögn Ámunda. Hann hefur ótal sinn-
um farið í reisur um landið með hljómsveitir,
þar af þrisvar sinnum með Hljómum, og er nú
nýkominn úr tveggja mánaða reisu með þeim
um Norður og Austurland. Á slíkum ferðum þarf
Ámundi í mörg horn að líta.
— Það þarf að útvega samkomuhús, auglýsa
í útvarpi og festa upp spjöld á stöðunum sjálf-
um og jafnvel víðar, fá leyfi yfirvalda á við-
komandi stöðum og sjá síðan um miðasölu,
þegar dansleikurinn hefst. Framhald á bls. 29.
I»egar brezka hljómsveitin The Animals var
að leika lagið „Inside Looking Out“ á hljóm-
plötu, kvartaði söngvarinn Eric Burdon yfir
því, að hann heyrði ekki nógu vel undirleik-
inn. Félagar h?.ns í hljómsveitinni urðu skelf-
ingu lostnir og álitu, að Eric væri farinn að
missa heyrnina — og umboðsmaður hljóm-
sveitarinnar fór þegar í stað með Eric á
næsta sjúkrahús, þar sem þekktur heyrnar-
sérfræðingur var kvaddur til.
Þegar liann fór að rannsaka vinstra eyrað, ætl-
aði hr.nn vart að trúa sínum eigin eyrum, þeg-
ar hann sá, að pappírsuppvafningur sat fast-
ur i eyrnagöngunum. Það tók hann langan
tíma, ?.ð ná pappírnum úr eyra Erics.
Dagblaðsræman liafði setið í eyranu í þrjá
mánuði. Þegar erfitt var að sofna kvöld eitt
sökum fyrirgangs í aðdáendum fyrir utan
liótel citt, þá tók liann til þess bragðs að
stinga pappírsuppvafningum í eyrun — en
hann gleymdi bara ?.ð taka þá úr aftur!
VIKAN 17