Vikan - 08.09.1966, Blaðsíða 25
KONUNGSGARBUR
í KEIDUBH
Ljósmyndír
Þorvaldur
Ágústsson
Ekki vantar aS fjölgi merkjunum um
það að Islendingar séu nú skemur
fró öðrum þjóðum en fyrrmeir; túr-
istar streyma hingað í æ stríðari
straumum og sjá þetta furðulega
eyland elds og ísa og Gullfoss og
Geysi, og þar á ofan eru erlend
kvikmyndafélög farin að sækja
hingað til að nota okkar hrikalega
landslag sem ramma utan um bíó-
myndir, hverra mótíf er sótt í álíka
hrikalega fortíð germanskra þjóða.
Nú eru hérna staddir Þjóðverjar
til að taka kvikmynd af Sig-
urði Fáfnisbana og Brynhildi, og
undanfarið hafa danskir listamenn
verið önnum kafnir norður í Hljóða-
klettum við að filma þá gullfögru
sögn um Hagbarð og Signýju. Að-
alhluthafi í þvi fyrirtæki er ASA-
film, en hið íslenzka Edda-fi'm og
hið sænska MEA-film eiga þar einn-
ig nokkurn hlut að máli. Leikstjóri
er Daninn Gabriel Axel, en leik-
endur eru valið lið af ýmsum þjóð-
um; Svíar, Danir, Rússi, Þjóðverji
og Islendingar. Myndagerðarfólkið
og leikararnir búa í félagsheimil-
unum Skúlagarði og Lundi í Keldu-
hverfi, en myndatakan fer að mestu
leyti fram í Hljóðaklettum, sem fyrr
er sagt. Hefur þar verið reistur heill
konungsgarður í þeim stíl, sem ætla
má að tíðkaður hafi verið á öldun-
um áður en ísland byggðist. —
Myndin verður með íslenzku, dönsku
og sænsku tali, og er gert ráð fyr-
ir, að hún verði frumsýnd i Reykja-
vík, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi
snemma á næsta ári.
Sögnin um Hagbarð og Sig-
nýju, sem myndin er gerð
eftir, er ein hinna frægari úr
fornum heimi germanskra
þjóða. Hún er ekki yngri en
frá því á víkingaöld, því
að Þjóðólfur úr Hvini, sem var eitt af
skáldum Haralds hárfagra, vitnar
í hana í kveðskap sínum; trúlega
er hún miklu eldri. Þá vitnar Snorri
í hana í Skáldskaparmálum og í
Fornaldarsögum Norðurlanda er
vikið að henni á fleiri stöðum en
vuiiiiiUL
ý Signý (Gitte Hænning)
og einn bræðra hennar.
Gunnar Björnstrand fær sér
liér hressingu í kaffihléi.
Við fætur hans liggur tíkin
Friggja, sem leikur úlf í
myndinni. Hún er líka svo
grimm, að hafa verður sér-
stakt fólk til að gæta þess,
að hún lifi sig ekki inn í
hlutverkið um of.
Eva Dahlbeck ásamt einni af að-
stooarstúlkum myndatökumannanna.
Hið illfúsa gamalmenni Bölvís er hér
á hökti milli húsa í kóngsgarði.
Sigarr konungur eða Sigvarður, eins og hann
er látinn heita í myndinni, sést hér á reið
með liði sínu.
Lisbetli Movin í hlutverki þernunnar.
Hildigísl (Manfred Reddemann).
O
Oleg Vídoff í lilutverki Ilagbarðs.
<Zy Leikstjórinn, Gabriel Axel (t.h.) og Oleg
Vídoff í gerfi Hagbarðs ræðast hér við á
myndatökustaðnum. í baksýn eru hús í
kóngsgarði og starfsmenn að slá upp palli
fyrir kvikmyndavélar.
24 VIKAN