Vikan


Vikan - 08.09.1966, Page 32

Vikan - 08.09.1966, Page 32
Winther þríhjói lást I þrem stærðum STJÖRNUSPÁ*^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú átt 1 mikilli baráttu við sjálfan þig og veizt ekki hvernig þú átt að snúa þér í ákveðnu máli. Enn um sinn verðurðu að þola þessa óvissu en í kringum næstu mánaðarmót rætist úr fyrir þér. W9 Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú verður fyrir miklum freistingum á einhverjum stað þar sem margt fólk er samankomið. Á föstu- dag gerist nokkuð sem þú hefur lengi beðið eftir, en sennilega sérðu eftir viðbrögðum þínum. *£• ff Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Orðrómur um kunningja þinn er gripinn úr lausu lofti, láttu ekkert slúður hafa áhrif á samband ykk- ar. Þú kemst. í kynni við persónu sem á eftir að hafa mikil áhrif á gerðir þínar í vissu máli. # Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú leitar ráða hjá persónu sem reynist þér mjög vel. Einhver veikindi eru í kringum þig og trufla þau eitthvað framkvæmdir þínar. Fimmtudagurinn er bezti dagur vikunnar. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Margt óvenjulegt gerist næstu kvöld, sérlega í lífi þeirra sem eru ástfangnir. Vikan verður vel fallin til að hressa upp á gömul kynni. Þú hefur mikið að gera en ættir samt að slappa svolítið af. kJ Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú kynnist nýju starfi sem á eftir að létta mikið tll með þér. Gömul vinkona þín reynist þér mjög vel. I Það verður nokkurt hik á persónulegum fram- kvæmdum en þú getur notað tímann mjög vel. & Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú verður fyrir nokkrum vonbrigðum en þau rista þó ekki djúpt. Þú ert dálítið argur, taugaspenntur og ráðvilltur. Berðu vandræði þín undir kunningja þína. Heillatala er fjórir. lT Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú hittir gamlan kunningja á óvæntum stað og mun hann verða þér kærkominn leiðsögumaður. Einn kunningja þinna er mjög óhamingjusamur og væri rétt af þér að reyna að hjálpa honum. ** Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú hefur srmvizkubit af því hve þú hefur trassað verkefni þln. I raun og veru ertu hætt kominn og verður að taka þig á ef þú vilt halda þeim. Þú skemmtir þér mjög vel eitthvert kvöldið. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. ianúar): Vinnufélagi þinn veitir þér ýmsar leiðbeiningar sem geta orðið þér til mikils sparnaðar, ef þú aðeins þylcist ekki of góður til að þiggja þær. Þú verður óvenjumikið einn, en þér leiðist ekki. -Sji Vatnsberamerkið (21. ianúar — 19. febrúar!: í vikunni festirðu kaup á ýmsum lilutum sem þú ætlar þó ekki handa sjáifum þér, en vafasöm verzl- un er að selja þá aftur. Þú dettur niður á góða hug- mynd sem þú og félagi þinn notfærið ykkur. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú eignast leyndarmál með öðrum sem verður til þess að þið haldið meir saman en áður. Vertu á- kveðinn og öruggur í framkomu, þá munu færrl freistarar leita á þig. Heillatala er þrír.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.