Vikan - 10.08.1967, Síða 20
EFTIR
EVRflNU
Andrés Indriðason
Þeir láta ið
sér hvela
The Kiriks hafa heldur betur látið að sér kveða
að undanförnu. Fyrst kom hér á markaðinn lagið
„Mr. Pleasant“ á tveggja laga plötu, en þessi
plata var af einhverjum ástæðum ekki sett á mark-
að í Bretlandi. í staðinn kom plata með laginu
„Waterloo Sunset“, en það komst óðara í efsta
sæti vinsældarlistans. The Kinks hafa með þessu
sannað, að þeir eru í hópi fremstu hljómsveita í
Bretlandi — og þeir þykja ganga næst Bítlunum
sjálfum að vinsældum, ásamt The Hollies. Skömmu
áður en lagið Waterloo Sunset byrjaði að heyr-
ast, lýsti Ray Davies yfir því, að hann hyggðist
hætta hljóðfæraleik en helga sig í þess stað tón-
smíðum. Hann hefur nú horfið frá þessari fyrir-
ætlan sinni en hefur sannarlega í mörg horn að
líta þessa dagana. Hann er að semja músik fyrir
sjónvarpsþætti um hljómsveitina, en þeir munu
verða í svipuðum dúr og þættir The Monkees, sem
sjónvarpið okkar mun hefja sýningar á í ágúst-
byrjun The Kinks eiga það sameiginlegt með Bítl-
unum, að öll lög, sem þeir láta frá sér fara, eru
eftir þá sjálfr. eða réttara sagt eftir Ray Davies.
Þessa mynd af The Kinks tókum við uppi í Mos-
fellssveit á sínum tíma, og það fer víst ekki milli
mála að þeir líta heimasætuna á Reykjum hýru auga!
Lilu uu Siriuev Peitier
«
, h
Skozka söngkonan Lulu er nú aftur komin á vinsældalista með lagið sitt „The
boat that I row“. Hún hefur nýlega lokið við að leika í kvikmyndinni „To Sir
With Love“. Lulu fer með stórt hlutverk í þessari mynd, og mótleikari hennar
var enginn annar en Sidney Poitier. Hún syngur líka titillag myndarinnar, og svo
má líka geta þess, að hljómsveitin Mindbenders kemur einnig fram í myndinni.
Lulu lét vel af samstarfinu við Sidney Poitier og sagði, að hann hefði hjálpað
sér mikið meðan á kvikmyndinni stóð. Iíann er líka mikill fjörkálfur, sagði hún,
og hann þekkir alla helztu dansstaðina í London, en þangað fór hann oft með
okkur og við skemmtum okkur aldeilis konunglega.