Vikan - 10.08.1967, Síða 24
VIKAN HEIMSeiR
EINN ÐflGBB
HJfl TUEIHUB
SIIRVELDUM
Skærir litir, birta og glaðlegt fólk — þetta er ein
kennið á Heimssýningunni miklu í Montreal,
Expó ‘67. Tónlist kveður við úr mörgum áttum
í senn og ekki ævinlega í samræmi, upplýsingar
og tilmæli gella úr hátölurum og vagnalestir renna
hjá bæði á spori og á hjólum með gagnorðar týsingar
leiðsögumanna um það sem fyrir augun ber. Bílar
eru hér sjaldgæfir nema einstaka bíll sem er í að-
dráttum fyrir sýningarskálana eða lögreglubíll og
sjúkrabíll með rauðu, blikkandi Ijósi, farandi ekki
nema tæplega fetið, enda er varla að manngrúinn
beri sig að víkja. Einu teigufarartækin eru reiðhjól með
tveimur farþegasætum að framan og innan um annan
klið blandast ómur hjólbjöllunnar. En fyrst og fremst
blasir hvarvetna við auganu fólk og aftur fólk, létt-
klætt í björtum litum.
Expó ‘67 hefur stundum verið kölluð í gamni 30
milljón manna afmælispartý, af því að Kanada sótt-
ist eftir að halda heimssýninguna einmitt núna, árið
1967, til minningar um aldar afmæli sitt sem samein-
aðrar heildar. Greinarkornið, sem hér er að hefjast,
er fyrsta frásögnin af Expó og Kanada, en fleiri
eru væntanlegar fram eftir haustinu. Við heimsótt-
um Expó fyrst í júlí, og vorum þar á sjálfan af-
mælisdaginn og dagana þar í kring, þegar aðsóknin
var orðin 17 milljón manns í staðinn fyrir 10 millj-
ónir, eins og áætlað hafði verið, og þessa dagana kom
milljónarfjórðungur gesla á svæðið á hverjum degi.
— í þessari fyrstu grein fjöllum við aðeins um hluta
af undirbúningi Kanadamanna og sérstaklega Mont-
realborgar undir sýninguna, og lýsum sýningarskálum
stórveldanna, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, — en
höldum síðan áfram í komandi blöðum að lýsa því í
Eftirliking af tungllandslagi með bandarískum geimförum. Nær
er líkan að Surveyor I., sem lenti á tunglinu árið 1966, cn
fjær er eftirlíking af farartækinu, sem á að flytja fyrstu
mennina til tunglsins og aftur frá t>ví út að geimfarinu. Þessi
kassi verður líka heimkynni þeirra meðan á tungldvölinni
stendur.