Vikan


Vikan - 10.08.1967, Page 26

Vikan - 10.08.1967, Page 26
illKftN HEIMSffiKIR expo’67 máli og myndum, sem fyrir augu og eyru bar, hvernig Expó ‘67 kemur fslendingum fyrir augu. EXPO heitir hún, EXPO ‘67. Það er dregið af franska heitinu á svona sýningum, „expo- sition universelle“. Og er ekki að undra, því 65% borgarbúa í Montreal telja sig frönsku- mælandi, þótt að sögn séu um 80 % þeirra jafn hraðmæltir á enska tungu. Expo stend- ur á tveimur eyjum, Ile Sainte-Helene (eyju heilagrar Helenu) og Ile Notre-Dame (eyju vorrar frúar). Þegar EXPO var fyrst ákveð- in árið 1963, var Ile Notre-Dame ekki til og Ile Sainte-Helene ekki nema hálf á móti því sem hún nú er, en Kanadamenn settu það ekki fyrir sig. Þarna, úti í St. Lawrence River skyldi sýningin standa og þá var bara að búa henni stað. Er ekki að orðlengja það; í júnílok 1964 var Helenareyja orðin helmingi stærri og Vorfrúareyja, sem er álíka stór, risin úr öld- um. í þetta fóru 15 milljón tonn af grjóti, möl og jarðvegi. 6.825.000 tonn þar af voru graf- in upp úr heilags Lárentíusarfljóti, en af- gangurinn var tekinn undan borginni sjálfri; Þannig slógu Montrealmenn tvær flugur í einu höggi: Bjuggu sér til neðanjarðarbraut um borgina sína og notuðu uppmoksturinn til landvinninga. Alls er brautin um 26,5 km og mest í gegnum kletta að fara, stöðvarnar fjölmargar og stórglæsilegar. Farartækin sjálf eru furðu þægileg af slíkum brautavögnum að vera, enda er þetta eina neðanjarðarbraut- in í heimi, sem rennur eingöngu á gúmmí- hjólum. Það eina, sem að henni má finna fyrir farþegann, er það að eitthvað gekk úr- skeiðis með loftræstinguna, hún blés heitu í staðinn fyrir köldu svo að það getur orðið æði þrúgandi í henni loftið. Annað, sem Montreal gerði beinlínis fyrir Expo og kemur borginni að gagni síðar meir, { / * J J K k V' í - M m~ i *Æ w 1 vljjH IRB * J / { \ mmm :: . Yzt til vinstri: Einsporinn geng- ur gegnum bandarísku kúl- una. Þeir, sem nennt höfðu að standa í biðröð til að komast í hann sögðu, að það eina sem sæ- ist þar inni vœri flennistórt skilirí af Clark Gable. 0 Rauður hvoftur með gulum tann- garði yfir skær- litum, yddum flötum. Frá lista- sýningu USA. Kvikmynda- kempur á mynd- um, stórum og smáum. Að ofan er John Wayne í nokkrum sinnum eðlilegri stærð.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.