Vikan - 10.08.1967, Qupperneq 39
Bragðið leynir sér ekks
MAGGI súpurnar frá Sviss
eru hreint afbragð
MAGGI súpurnar frá Sviss eru búnar tii eftir upp-
skriftum frægra matreiðslumanna á meginlandinu,
og tilreiddar af beztu svissneskum kokkum. Það er
einfalt að búa þær til, og þær eru dásamaðar af
allri fjölskyldunni. Reynið strax í dag eina af hinum
átján fáanlegu tegundum.
SÚPUR
FRÁ
SVISS
Umboðsmenn:
I. Brynjólfsson 8l Kvaran
• Asparagus
• Oxtail
• Mushroom
• Tomato
• Pea with Smoked Ham
• Chicken Noodle
® Cream of Chicken
• Veal
• Egg Macaroni Shells
• 11 Vegetables
• 4 Seasons
• Spring Vegetable
um talað að Sorello kæmi aftur.
En Sorrello kom ekki aftur,
því áður en af því yrði gerðist
nokkuð sem McGurn gat ekki
grunað. A1 Capone hafði frétt
hvað á seyði var, því hann hafði
njósnara alstaðar. Hann kom
boðum til vinar síns Lolordo og
gerði honum viðvart um sam-
særið. En mafíuleiðtoginn hélt
þetta vera uppspuna, og trúði
ekki þessum þrautreynda vini
sínum, Aiello, til að ætla sér illt.
AL CAPONE
HUGÐI Á HEFNDIR
En Lolordo komst samt að því,
þegar daginn eftir, að fátt er það
sem fulltreysta má, því Aiello
og Gusenbergbræður brutust inn
í hús hans daginn eftir og myrtu
hann. Mafíuforinginn hafði sett
lífvörð sinn á ýmsa mikilvæga
staði umhverfis hús sitt og í
grennd við það, en Aiello og
liðsmenn hans gátu yfirbugað þá
alla, hvern af öðrum. Lolordo var
skotinn inni í stofu sinni, en
kona hans var þá stödd í eld-
húsinu.
Meðan á þessu stóð var A1
Capone að halda fyrirmönnum
Chicago og æðstu stjórn borg-
arinnar dýrindis veizlu í bústað
sínum. Fréttin barst honum þegar
í stað, og varð honum mikið um.
Grátandi sór hann þess dýran eið
að vinar síns skyldi verða hefnt,
og sjálfur tók hann að sér fram-
kvæmdirnar.
En fyrst þurfti öðru að sinna.
Honum var sagt að Aiello, sem
óttaðist nú um líf sitt sem von
var, ætlaði að komast burt úr
borginni með hraðlest þetta
sama kvöld. A1 Capon laumað-
ist inn í vagninn, þar sem Aiello
vjjx* fyrir, og skar hann a hals með
rakhníf.
Svo tók hann til við að upp-
ræta það sem eftir var af bófa-
flokk Morans. Sorrello átti að
afhenda næsta brennivínsfarm
hjá Moran kl. 10,30 morguninn
14. febr. Allir forsprakkar bófa-
flokksins áttu að vera til staðar
í bílskúr þeim sem þeir geymdu
í hinn ólöglega varning sinn.
Capone ákvað að Sorrello
skyldi ekki aka vínflutningabíln-
um sínum inn í skúrinn, honum
hafði dottið miklu betra í að x
hug. Hann náði í fjóra lögreglu-
þjónsbúninga, og málaði bíl
nokkurn þannig að hann synd-
ist vera lögreglubíll. Svo lét
hann þennan flokk „lögreglu-
þjóna" aka út að bílskúrnum og
fara þar inn. Engan mundi
gruna neitt, fólk sem fram hjá
færi mundi halda að þarna væri
lögregla á ferð, en Moran og
menn hans mundu ekki veita
viðnám. Þeir höfðu samið við lög-
regluna, svo sem aður er sagt.
Það var mikilvægt fyrir Capone
að engum gæti dottið í hug að
bendla hann við málið, og dag-
inn áður en framkvæma skyldi
dáðina, fór hann til Florida og
settist þar að á hóteli, og skyldi
þetta vera fullgild sönnun þess
að hann væri ekki við málið rið-
inn.
„VINARGJÖFIN“
TIL MORANS
Svo rann upp sá dagur, sem
eftirminnilegastur varð. Það var
dagur heilags Valentínusar, en
á þeim degi er siðvenja í Banda-
ríkjunum að gefa gjafir og votta
vinsemd vinum sínum. A1 Capone
hafði fyrirhugað þeim manni sem
hann var einna minnst vinveitt-
ur, sérstaka sendingu, en sá mað-
ur var Moran. Félagar hans áttu
ekki að vera afskiptir. Hann hafði
til umráða íbúð nokkra hinum
megin við götuna, og sást þaðan
vel yfir að bílskúrnum. Þegar
bezt stæði á, áttu þeir að gefa
merki þeim sem í „lögreglubíln-
um“ voru, um að hefjast handa.
Moran og hans mönnum mátti
virðast sem þetta ætlaði að verða
happadagur, — þeir bjuggust við
að hafa hendur á stórum farmi
af ódýru brennivíni, — og að geta
selt það með miklum hagnaði.
Og voru þeir allir mættir í bíl-
skúrnum á tilteknum tíma.
Nema Moran. Það varð hon-
um til lífs. Hann kom á stað-
inn í sömu andrá og „lögreglu-
bíllinn" bar þar að, en í stað
þess að fara inn, fór hann yfir
í næsta veitingahús til þess að
fá sér kaffi. Hann ætlaði þann-
ig að hafa þennan ímyndaða lög-
reglubíl af sér, og það tókst.
Menn Capones fóru nú inn í
bílskúrinn, þar sem menn Mor-
ans voru fyrir, og voru nú höfð
hröð handtök, og þessum sjö
mönnum skipað að rétta upp
hendur og fara yfir að veggn-
um og standa þar kyrrir með
upplyftum höndum og snúa sér
að veggnum. Síðan var beint að
þeim vélbyssuskothríð og hnigu
þeir allir.
í sama mund og „lögreglu-
þjónar“ þessir hurfu burt, hljóp
Moran inn í skúrinn, en nú var
of seint að ætla sér að hafast
nokkuð að. Frank Gusenberg var
með lífsmarki, og var hann flutt-
ur á sjúkrahús ásamt Moran.
Hann hafði fulla meðvitund fram
32. tbi. VIKAN 39