Vikan


Vikan - 12.10.1967, Síða 8

Vikan - 12.10.1967, Síða 8
ENSKAR postulíneveosílísar ★ Úrvalið aldrei meira en nú. yfir 30 lilir. ★ llerð bveroi haostæðara. LITAVEH SF. Grensósvegi 22 og 24 (horni Miklubrautar). — Simar 30280 og 32262. Svefnsóli - Svefnsófi Þennan tveggja sæta sófa er hægt aS stækka i eins manns svefnsófa með því að draga út annan arminn og leggja aðra pulluna við. Sængurfatageymsla er undir dýnunni. Hægt er að fó stóla í stíl. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Nvia Bólsturoerðin Laugavegi 134. - Sími 16541. BALLETTDANSARINN SEM STRAUK AB HEIMAN Hann heitir Rudolf Nurejev, 28 ára gamall rússneskur bóndason- ur og þekktasti ballettdansari vorra tíma. Hann var á forsíð- um virtra blaða um víða veröld, þegar hann strauk frá Kirov-ball- ettinum, er þau voru á sýningar- ferðalagi í Frakklandi árið 1961. Síðan þetta átti sér stað, hefur hann heldur betur verið upp- götvaður sem stjarna, og nú er það æðsta ósk flestra þeirra á- hugamanna um ballett, sem ekki hafa séð hann dansa, að fá bætt úr því sem allra fyrst. Og með dansinum túlkar hann auðveld- lega trylling, frumstæði og fín- leika. Vinnan hafði lengi verið honum allt, en svo fór hann að fá dálítinn áhuga á veika kyninu. Hann sást stundum á götum úti í New York í fylgd með Jac- queline Kennedy. Það var nóg til þess að koma sögusögnum af stað. Það þarf svo sem ekki að hafa verið náið samband til þess að orðrómur byrji, — hún, sem hefur lengi verið umtalaðasta kona veraldar, — og hann, sem fæstar konur hafa mikið á móti. Og nýjasta ævintýrið hans var í sambandi við útistöður, sem hann átti við lögregluna í San Francisco. Þá var hann grunað- ur um notkun eiturlyfja. Ásamt hinni heimsfrægu ballettdans- mær, sem lengst af hefur dansað með honum, Margot Fonteyn, fór hann inn á krá í hverfinu i San Francisco, þar sem „the hippies“ halda sig. Eins og flestir vita hefur þetta hverfi mikið aðdrátt- arafl fyrir ferðamenn, en þar býr fólk, sem neytir eiturlyfja og aðhyllist frjálsar ástir, en þó safnast frjálslyndir stúdentar gjarnan saman þarna. Þau skötuhjúin voru sem sagt komin þarna til þess að skoða sig um, en þau fengu ekki mik- inn tíma til þess, því lögreglan kom strax aðvífandi og handtók þau fyrir að neyta eiturlyfja. Þegar átti að fara að prófa, hvort þau væru undir áhrifum, steig Nurejev nokkur balletspor og Fonteyn flissaði eins og skóla- stúlka. — Það er ekki hægt að gera hvort tveggja, sögðu þau, — að neyta eiturlyfja og dansa 8 VIKAN «■tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.