Vikan


Vikan - 12.10.1967, Side 20

Vikan - 12.10.1967, Side 20
 ■ ■II IPPARNIR glingurverzlun. Þar er ekki margt ó boðstólum: einhverjir skartgripir, heilmikið af perluhálsböndum, svo- lítið af bókum, eitthvað af flugritum og svo hinir bráðnauðsynlegu hnappar. Bak við þessa verzlun er tjald. Við göngum þangað og Allan lyft- ir tjalddúknum. Þar inni liggja nokkrir hreyf ingarlausir mannslík- amar á teppum. Það er dauf fýla inni í tjaldinu. — Þetta kemur í staðinn fyrir hugleiðingar, segir Allan. Jenta heitir sú sem rekur þessa verzlun. Húr\ segir okkur að hún ætli einnig cð fara að loka vegna þess að búizt sé við uppþotum. Hins vegar mættum við vera, ef við vildum. Hugleiðingafólkinu var umsvifa- laust kastað út. Á skilti einu stóð: ,,good spirits". Undir því lá maður og stundi. Allan gengur til hans. Maðurinn er í ferð. Allan reisir hann á fæt- ur. Hann hefur blóðhlaupin augu og gefur frá sér alls kyns óhljóð. Stúlkan í verzluninni brosir til hans, þá tekur hann að hlæja þessum tilgangslausa hlátri og reikar út á götuna. Stúlkan segir að það hafi verið drepinn maður í húsinu, svo nú sé bezt að fara. Enginn velti meira vöngum yfir þeirri staðreynd að það hefur verið drepinn maður. Svo er skyndilega brotinn gluggi. Og á sama augnabliki er lögreglan komin. Sex bílar og tíu mótorhjól. Þremur var stungið inn í lög- reglubílinn. Hin standa og horfa á. Það er eins og lögreglan vilji ekk- ert fremur en hressilegt uppþot. Einn hippinn kemur með hátalara og hrópar nokkur brjálæðisleg orð í hann. Honum er líka stungið upp í lögregiubílinn. Að lokum fer lögreglunni að leið- ast þófið, svo hún gefst upp og fer. Þá er kominn tími fyrir þá hippa, sem ekki eiga sér vísan næturstað að fara að taka til sinna ráða. Tvær stúlkur ganga að tveimur piltum og spyrja, hvort þær megi sofa hjá þeim. — Ef þið viljið, svara piltarnir. Eldri hipparnir, þeir, sem eru giftir, hafa litlar íbúðir. Aðrir skipta stórum íbúðum á milli sín. Það er líka alltaf hægt að finna nætur- stað fyrir hvern sem er, jafnvel þótt það þýði að það verði að vera fleiri en einn í sama rúminu. Og ef það eru karlmaður og kona, sem lenda saman í rúmi er ekkert á móti því að elskast svolítið. Og ef ekki er hægt að finna næturstað, þá má alltaf notast við garðana. Svo er stundum spurt, hvers vegna þetta fólk sé hér saman komið. Því er auðsvarað. Það var einmana, áður en það kom hingað. Það veit að það er á móti veröld- inni fyrir utan, eins og hún nú er. Lausnir þeirra á vandamálum mannsins eru einfaldar en öfga- fullar. Hverfum aftur til náttúrunnar, stöðvum öll stríð, og gefum Kín- verjum nóg að borða. Læra eitt- hvað svolítið, mynda lítinn félags- skap og til andskotans með allar borgir. Lausnirnar eru mörg hundruð. Aðeins eitt er að: Þau geta hvergi í heiminum fundið þá staði, sem er eins og sá sem þau dreymir um. Sama kvöld tala ég við Lynn, snotra stúlku, sem lítur út fyrir að vera 18 ára, en er 23. Framhald á bls. 44. V -öi- Elskendur skreyta sig, aSállega með því að mála á líkama sinn og föt. Ó Hipparnir cru lífsins gleðifólk, og þeir geta stigið dans hvar sem er og hvenær sem er. Til að líkja eftir hljóðum og litum, sem þeir upplifa í „skynvillu ferðum“ sínum, hafa dansarar málað sig og skreytt sig fjöðrum í öllum regnbog- ans litum. horfa á hreyfanleg- ar myndir og hlusta á æðis- gengna pop-hljómlist. O Þessi piltur sýnir með hláturgusum, hvernig hægt er að ná hátindi sælunnar. 20 VIKAN «•tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.