Vikan


Vikan - 12.10.1967, Page 24

Vikan - 12.10.1967, Page 24
Morfil á fistiriaiin lam Framhald af bls. 13. forstjórinn hikaði eitthvað áð- nr en hann svaraði, og Alstadt skildi strax að það var engan veginn auðvelt að þurfa að segja frá því, þótt honum hefði þótt einhver gesta sinna grun- samlegur. — Ég hef verið að velta þessu fyrir mér, en ég get ekki bent á neinn sérstakan, sagði for- stjórinn loks. Nokkrir gestir sátu í af- greiðslusalnum og blöðuðu óþreyjufullir í gömlum blöðum. Lögregluþjónn, sem greinilega var frá Lillehemmer, stóð við afgreiðsluborðið, en sneri sér strax við, þegar þeir komu inn. — Þessa leið, sagði forstjór- inn, og gekk á undan honum upp tröppurnar. Líkið lá í sömu stöðu og það hafði verið, eftir að næturvörðurinn hafði ýtt því um koll . . . Alstedt stóð drykklanga stund og horfði á það. Annar sérfræðinganna kom með brunaöxina. Á annarri hlið skaftsins var axarblað, en á hinni hliðinni var hamar. Það þurfti ekki sérfræðing til þess að sjá, til hvers hún hafði ný- lega verið notuð, en samt fund- ust ekki nýleg fingraför á henni. Bremann forstjóri sagði, að eng- inn hefði snert á öxinni, fyrr en í nótt. Alstedt rannsakaði varlega vasa Krinners. Hann fann sígarettuveski, munnstykki, kveikjara og nokkra peninga- seðla. Og í öðrum vasa fann hann umslag. Hann tók það og hristi. Bréfmiði féll úr því og á gólfið. Hann setti upp hanzka tók bréfið og breiddi úr því. Hann las: Þér eruð víst hrifnir af pen- ingum konu yðar, ekki satt? En það er ekkert vit í því, að þér sitjið einir að þessu. Ég, t.d., vil gjarnan fá eitthvað af þeim, svo sem eins og 5000 kr. eða svo. Viljið þér biðja konu yðar að útfylla tékka, og hafa eina línu auða, svo að ég geti fyllt út mitt nafn, þegar ég fram- vísa honum. Þér skuluð seinna fá að vita, hvar þér eigið að skilja tékkinn eftir. Ef þér gerið þetta ekki, fær konan yðar að vita um ástarsambönd yðar. Það var auðvitað engin undir- skrift, ekki einu sinni X eða eitthvað í þá áttina. — Óvenjulega heimskulegt, sagði Alstedt. — Hvað er þetta, spurði for- stjórinn ákafur. — Hvað er heimskulegt? -— Æ, ég tók nú heldur mikið upp í mig, svaraði Aistedt. — Athugaðu, hvort það eru nokk- ur nothæf fingraför á þessu, bætti hann síðan við, sneri sér að öðrum hjálparmanni sínum og rétti honum umslagið og bréf- miðann. — Jæja, sagði hann svo og sneri sér aftur að forstjóranum. — Hvað gerðist hér á hótelinu í gærkvöldi? Hefur eitthvað sér- stakt átt sér stað, meðan þessir gestir hafa verið hér. — Ég hef talað við nokkra gesti, sagði Bremann, og það hefur sýslumaðurinn líka gert. Lögregluþjónninn frá Lille- hammer situr nú með þeim inni í borðsalnum og tekur skýrslu. Sérfræðingurinn kom í því aftur með bréfið, og tiikynnti Alstedt, að það væru engin fingraför í því, nema hins látna. Hins vegar sagði hann, að það væri ilmvatnslykt af því. Anstedt fékk svo að vita um þann orðróm, sem hafði farði af sambandi Krinners og leik- konunnar. Hann bað um að fá að tala við leikkonuna. Honum var sagt að hún sæti í borðsaln- um eða í reykslnum. Alstedt gekk niður og heils- ði sýslumanninum og lögreglu- þjóninum frá Lillehammer, og lét síðan kynna sig fyrir Rósu Lind. Það var eins og leikkonan væri hrædd. — Ég vildi gjarnan fá að tala við yður einsiega, sagði Alstedt, — á herbergi yðar. Hún kink- aði kolli og lagði af stað. Herbergið var snyrtilegt og þar var allt í röð og reglu. Al- stedt tók upp umslagið og bréf- ið. — Vilduð þér vera svo góð- ar að lykta af þessu, sagði hann. Alstedt fylgdist vel með því að henni brá ekki við að sjá bréfið, en henni brá, þegar hún fann lyktina. —• Þetta er sama ilmvatnsteg- und og ég nota, hvíslaði hún og horfði niður á snyrtiborðið. — Einmitt það. En þekkið þér þá þetta umslag og þetta bréf? Hafið þér séð það fyrr? — Nei, svaraði leikkonan. Hún talaði lágt, en það hljóm- aði sannfærandi. — Þér vilduð ekki vera svo vænar að skrifa nafnið yðar með blokkskrift, spurði Alstedt. — Gjarnan á þetta umslag. Hún tók við umslaginu, — og Alstedt til mikillar ánægju setti hún nokkur fingraför á það í leiðinni. Það var svo miklu skemmtilegra, þegar slíkt kom af sjálfu sér. Síðan tók hún sjálf- blekung upp úr veskinu hjá sér. Hún skrifaði nafnið sitt hægt og örugglega. Hann leit á skriftina. — Skrifið þér oft slíka skrift? — Nei aldrei, — næstum aldr- ei, hvíslaði hún hrædd. Hún var frískleg. Alstedt skildi Kinner vel, þegar hann hugsaði um lýsingarnar á frú Kinner. — Takk fyrir, þetta er nóg, — í bili, sagði hann og kvaddi. Forstjórinn beið fyrir utan. — Getið þér sagt mér, hvar ég get fundið frú Kinner? spurði Alstedt. — Hún hefur fengið taugaá- fall og er uppi á herbergi sínu og neitar að tala við nokkurn mann. — Ég þarf að tala við hana, sagði Alstedt stuttlega. Frú Kinner lá á legubekk og horfði upp í loftið. Hún anzaði ekki bankinu, en Alstedt gekk engu að .síður inn í herbergið, og forstiórinn á hæla honum. — Frú Kinner, sagði Bre- mann, — Alstedt yfirlögreglu- þjónn vill tala við yður. Þá sneri hún höfðinu að þeim og leit á þá tómum augum. Á borðinu við hliðina á henni var sódavatnsflaska, kúlupenni og nokkrar töflur. Hún virtist vera talsvert þung, en forstjórinn hafði sagt að hún væri góð á skíðum. Hún horfði nú fast á Alstedt, og augnalok hennar titr- uðu. — Hafið þér nokkra peninga á yður? spurði Alstedt. — Nei, svaraði hún, og reis á fætur. — Ég er vön að borga með tékkum. — Já, einmitt það, sagði bá Alstedt. — En þér vitið, frú Krinner, að ef maður yðar hefði beðið yður um þúsund króna á- vísun, og sagt, að það ætti ekki að gefa hann út á neinn sérstak- an, þá hefðuð bæði þér og hann getað fengið að vita í bankan- um, hver hefði leyst tékkann út, eftir að hann hefði verið útfyllt- ur. — Já, auðvitað, sagði hún dáuflega, og leit á Alstedt. — En hann hafði hreina samvizku, og þess vegna bað hann mig ekki um peningana til þess að borga fiárkúgaranum. — Hvaða fjárkúgara? —- Þessum, sem skrifaði bréfið, sagði hún ákveðið, en skildi á sama augnabliki, að hún hafði talað af sér. — Það eru aðeins ég og fingrafarasérfræðingurinn sem vitum hvað stendur í bréfinu. Ég tók það úr vasa Krinners, sagði Alstedt og lagði áherzlu á hvert orð. — Hann... hann fór svo illa með mig... ég var eins og fífl framan í öllu fólkinu. Hann var skepna ... Hann átti þetta skil- ið... æpti hún allt í einu upp. — Hún er verzlunarkona og á að vita allt um ávísanir. Það var sérstaklega heimskulegt að biðja um tékka, sem, ekki var stílaður á neinn sérstakan. Og enginn, — ekki einu sinni leik- kona, — myndi setja ilmvatnið sitt á kúgunarbréf. Hins vegar gæti afbrýðisöm eiginkona gjarnan notað ilmvatn ástkonu eiginmannsins og keppinautar síns sem undirskrift undir slík bréf. Á þessu hóteli er lítill vandi að komast inn á herbergi annarra gesta, því það er venju- lega ólæst. Og enn eitt atriði var það. að undir venjulegum kringumstæðum drepur fjárkúg- ari ekki þann sem hann vill kúga. Hann vonast eftir að fá peningana, og í versta falli kem- ur hann upp um það, sem var grundvöllur kúgunarinnar, í þessu tilfelii framhjáhald, sagði Alstedt við Bremann forstjóra og Eriksen lögregluþjón, þegar þeir sátu að snæðingi skömmu áður en flugvélin átti að leggja af stað til Osló. — Ég verð að kannast við, að sambandið milli gestanna hefur verið sérstaklega frjálslegt hér á hótelinu, sagði Bremann og brosti. — Það verður víst á hvers manns vörum innan skamms. — Það var gott að lögreglu- þjónarnir snertu ekki á neinu, áður en þeir komu frá Osló, sagði hann við Eriksen. — Yfir- lögregluþjónar eiga það nefni- lega til að verða talsvert sár- ir, þegar embættismenn standa upp frá skrifborðunum og leysa vandamálin. — Já, yfirlögreglumenn hafa líka þau sérréttindi að mega vera svolítið sárir, sagði Al- stedt, og bað um aðeins meira af reyktum lax. — Reyktur lax er það bezta, sem ég fæ, •—• og staða yfirlögreglumannsins jafn- ast ekki á við slíkt sælgæti. En staða lögreglumannsins, gerir hún það? ☆ 24 VIKAN «■ tbI'

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.