Vikan - 12.10.1967, Síða 40
Ronson
HARÞURRKA HEIMILANNA
EINKAUMBOÐ:
■■■ ■
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK
40 VIKAN «■ tbl-
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr(l):
Það verður ýmislegt sem veldur þér erfiðleikum og
töfum, fyrri hluta vikunnar. Þú átt mörg verkefni
hálfgerð. Ljúktu við þau svo þau verði ekki sífellt
að valda þér angri.
Nautsmsrkið (21. apríl — 21. maí);
Sennilcga verður þessi vika nokkuð erfið en það
er ekkert að gera fyrir þig nema að vera bjartsýnn,
og sýna jafnaðargeð. Framundan eru miklar breyt-
ingar á högum þínum.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Sitthvað skemmtilegt og spennandi gerist í vikunni
en samt ertu ekki ánægður, eitthvað, sem þú bíð-
ur eftir, lætur á sér standa. Reyndu að fitja upp á
einhverri nýjung til tilbreytingar.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Aætlanir langt fram í tímann kunna að vera ágæt-
ar, en það verður að vera vel til þeirra vandað. Þú
skalt hafa þetta hugfast, smáatriðin geta valdið
miklu. Þú kemst að góðum kjörum.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst):
í vikunni færðu tækifæri til að framkvæma nokk
uð, sem þú hefur lengi þráð. Þú ert fremur blank-
ur, og þú iendir í mikilli freistingu. Fimmtudagur
er heilladagur.
&
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september);
Þú ættir að íylgjast betur með starfi þínu, í því
hafa komið fram nýjungar, sem þú mátt ekki missa
af. Þú átt góðra kosta völ, en þú gætir samt hæg-
lega leikið af þér í fljótfærni.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Vikan verður mjög rómantísk fyrir unga fólkið. —
Heimilislíf verður ánægjulegt og þú nýtur þess að
vera innan um ættingja og fjölskyldu. Þú átt frem-
ur náðuga daga og hvílir þig vel.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Vikan verður í flesta staði mjög róleg, og þú ættir
að notfæra þér rólegheitin og koma persónulegum
málum í lag. Leggðu áherzlu á, að fjármál þín séu
eins og þú vilt hafa þau.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.):
Það eru ýmsar blikur á lofti og ættirðu ekki að
flana að neinu. Þú selur hlut sem þú átt, mjög vel.
Sýndu vinum þínum og málefnum þeirra meiri
áhuga en verið hefur. Happatala er þrír.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar);
Stofnaðu ekki til rökræðna við fólk, sérstaklega
ekki við þá, sem eru þér nákomnir. Það gæti ver-
ið, að hreyft yrði við málum sem þú vildir að væru
gleymd. Þú verður fyrir einhverju happi.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Tími þinn fer mikið í tafir, vegna þess, hve óljósar
allar upplýsingar og leiðbeiningar eru, sem þú hef-
ur. Þú færð kærkominn gest, sem dvelur hjá þér
um nokkurn tíma. Gerðu þér dagamun um helgina.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú verður að bera vitni í máli, sem þér er mjög
ógeðfellt, en gerðu hreint fyrir þinum dyrum. Vik-
an verður að mörgu leyti hagstæð til framkvæmda.
Hafðu vitra menn í ráðum með þér.