Vikan - 12.10.1967, Side 53
hans. Hún ætlar bráðurn að
eignast hvolpa. Ekki frú Hack-
ett — Gertrude. Ég get útvegað
þér hvolp ef þú vilt. Herra
Hackett lætur mig áreiðanlega
fá hann ódýrt . . Hugsa ég.
Það kom löngun í röddina. —
Ef þig langar í hund, get ég far-
ið með hann út fyrir þig, næst-
um á hverjum degi. Það væri
ekkert óþægilegt.
Adrienne hafði hugsað sér að
eignast hund. Það gæti verið
skemmtilegur félagsskapur af
hundi á löngum gönguferðum
yfir holt og hæðir, sérstaklega
þegar veðrið yrði betra, en hún
þorði ekki að láta sjá á sér mik-
inn áhuga einmitt nú.
— Er . . hm . Gertrude
spaniel?
Jamie fletti aftur á bak að
myndinni að greifingjahundi,
sem þefaði af trjástofni. — 'Hún
er svolitið lík þessum, sagði
hann. — En hún er með svo-
lítið lengri fætur. Styttri rófu.
Hún er ógurlega góður hundur,
þótt hún sé svolítið skrýtin,
þegar maður sér hana. Hún er
með síð og lafandi eyru og
krullað hár á rófunni. en hún
veiddi tvo héra í síðustu viku.
Ég get beðið um hvolp, bara
ef þú vilt.
— Þakka þér fyrir, Jamie.
En ég þarf að hugsa um það.
— Af hverju? Vill ekki pabbi
þinn heldur lofa þér að eiga
hund?
— Það er ekki beinlínis þess-
vegna, en ég er ekki alveg bú-
in að ákveða hvort ég ætla að
eiga hund eða ekki, en ef ég
ákveð að fá mér hund, vil ég
helzt fá bolabít, eða kannske
kjölturakka.
— Hvernig eru þeir?
Adrienne fann mynd. Jamie
gretti sig fyrirlitlega.
— Uss! Svona krili! Svona
hund er ekki hægt að eiga.
Svona vesalingur gæti ekki einu
sinni veitt mús. Ég þori að veðja,
að hann yrði meira að segja
hræddur við Cuthbert.
— Ef ég fengi mér hund,
væri það til að hafa skemmtun
af honum.
— Það er hægt að hafa mikla
skemmtun af veiðihundi. Líka
í Labrador — eða einum af
þessum feitu, loðnu, sem geta
borið tunnur í hálsbandinu.
Þeir eru fallegir, og það er hægt
að hafa mikla skemmtun af
þeim.
Það er ekki bara stærðin,
sem skiptir máli. Svoleiðis
hundur borðar heilt kíló af
hráu kjöti á dag eða meira. Við
skulum geyma þetta í eina
viku eða svo, eða þar til ég
hef hugsað mig um. Adrienne
slökkti í sígarettunni og leit á
klukkuna. — Veit pabbi þinn,
hvar þú ert?
Jamie yppti öxlum. — Hann
kemur ekki heim nærri strax.
Hann fer næstum altaf í krána
og er þar fram á kvöld. Hann
lokaði bókinni og hallaði sér
fram á stólbríkina hjá Adrienne.
Adrienne tók eftir því, hve
peysan var orðin þunn á köfl-
um, og önnur skyrtuermin hans
var rifin og þar skein í storknað
blóð í gegnum. Þrátt fyrir svalt
veðrið var hann ekki í jakka.
Hann fylgdi augnaráði hennar
með hátíðlegum svip: — Ég reif
skyrtuna, þegar ég var að fara
niður úr eplatrénu þínu, sagði
hann. Þessi einfalda skýring var
hvorki ásökun til hennar sem
eiganda eplatrésins eða afsökun
hans sjálfs fyrir að hafa verið
þar. í hans augum var þetta
bara óhapp, sem hafði orðið á
einum venjulegum degi og hann
viðurkenndi það með þessari
undarlegu, heimspekilegu ró,
sem oft er áberandi hjá sjö ára
gömlum strákpöttum.
Á ég ekki að þvo skeinuna fyr-
irir þig?
— Á baðinu þínu? Er steypi-
bað þar?
— Já komdu upp. Ég skal
setja plástur á það svo það verði
ekki óhreint.
Hann fylgdi henni upp í glæsi-
legt baðherbergið við hliðina á
svefnherbergi hennar, og andlit
hans fyltist af lotningu og virð-
ingu, þegar hann kom inn og
sá skínandi bláar flísarnar og
röð af krómuðum krönum.
— Er það hér sem þú þværð
þér?
Adrienne kinkaði kolli og
bretti upp skyrtuermina. Hún
strauk varlega með svampi yfir
skrámuna.
— Baðarðu þig á hverjum
degi?
— Já, gera það ekki allir?
— Jú, það gera víst allir.
Hún horfði á spegilmynd hans
og sá ekki betur en að hann
bæri nokkrar brigður á það.
Hann fiktaði með lausu hend-
inni við sturtukranann.
— Sprautast mikið vatn ef
maður skrúfar hérna?
Adrienne dró hann í hæfilega
fjarlægð. — Töluvert, já. Þú
mátt einhvern tíma prófa það,
ef þig langar til.
— Á morgun?
— Ég held að við ættum að
bíða, þangað til við þekkjumst
betur. Adrienne lagði snyrtilega
skyndiplástur á skrámuna. —
Nú verður þetta gott.
— Hvað verðum við að þekkj-
ast vel, áður en ég má leika
mér að steypibaðinu þínu?
— Töluvert vel. Kannske get-
urðu þá lika fengið lánaðan
svampinn minn. Það er ekki
hægt að sýna öllu meira vin-
áttumerki.
Jamie virti baðkerið hugsi
fyrir sér. — Allt í lagi, sagði
hann að lokum. — Þú mátt fá
lánaðan svampinn minn, ef þú
kemur einhvern tíma að heim-
sækja okkur.
Framhald ó bls. 56.
Kirkjustræti
«. tbi. VIKAN 5S