Vikan


Vikan - 04.04.1968, Side 11

Vikan - 04.04.1968, Side 11
4 En svo einn morguninn kom Hús- bóndinn ( íbúðinni fyrir neðan mig og bað mig um að haetta þessu, því bæði hann og konan hrykkju venjulega upp við dynkina. Ég varð vel við og lofaði þessu. En næst, þegar ég kom slompaður heim, gleymdi ég loforðinu, tók af mér annan skóinn og tókst sérlega vel upp með að kýla honum ( gólfið. En um leið mundi ég eftir krana- stjóranum á hæðinni fyrir neðan og konunni hans, og í staðinn fyrir að lóta hinn skóinn fylgja, lagði ég hann lúsvarlega á gólfið. Svo fór ég að sofa. Ég var ekki nema rétt búinn að festa blundinn, þegar ég hrökk upp við stöðugan són ( dyrabjöllunni og ákafa barsmíð á hurðina. Mér varð ekki um sel, og kjarkurinn ekki meiri en það, að ég þorði ekki að opna, heldur kallaði fram: „Hvað gengur á?" Og þá buldi við æva- reið þrumuraust frammi á gangi: „Flýttu þér að grýta hinum skón- um, mannfjandi, svo maður geti farið að sofa afturl"" „Auðunn Austan" sendir þessa sögu: „Ég og konan mín komum í bæinn í október í haust og heim- sóttum systurdóttur konunnar minn- ar, sem er nýgift og býr í blokk í Reykjavík. Eldhúsið f (búðinni ligg- ur upp að borðkróknum í fbúðinni við hliðina, og áður en langt um leið spurði konan mfn: Hvaða ein- kennilega naghljóð er þetta í veggn- um? Það eru þó ekki rottur í svona nýbyggðu húsi? Nei, svaraði frænka hennar. Það er bara fólkið f íbúðinni við hlið- ina. Það á sumarbústað með garði, og í allt haust hefur það haft gul- rætur í alla mata." Fleiri sögur um hljóðbærar blokk- © ir verða að bíða betri tíma, og kannski verður þá komið meira ( safnið. [ staðinn skulum við taka fyrir nokkrar barnasögur. Við get- um byrjað á sögunni um strákana tvo, sem voru að grobba af feðr- um sfnum. Þeir voru komnir svollt- ið af stað í landafræði í skólanum, og þv( sagði annar: Veiztu, af hverju pabbi minn er alltaf með alpahúfu? Það er af þv( að hann byggði Alpana. Með þetta þóttist hann heldur góður; hafa ærlega stungið upp í hinn. Sá þagði um hríð og spurði svo: — Ertu búinn að læra um Dauðahafið? Já. — Það var pabbi minn sem drap þaðl Önnur saga segir frá föður, sem var að lesa fyrir konu s(na f vfs- indalegu tímariti. Hann segir: — Nú eru þeir búnir að finna upp sjón- auka, sem fylgir lögun hnattarins. Þá gellur við Óli, 9 ára, og seg- ir: — En sniðugt, þá getur maður kikt aftan á sjálfan sig! „Vala" sendi okkur þessa sögu: „Sex ára frændi minn, Snorri að nafni, fæddur og uppalinn ( Reykja- vík og einbirni, fékk að koma hing- að norður til okkar ( fyrrasumar og vera um tíma. Ég á sjálf stelpu, jafn gamla honum, sem heitir Magga, og tvo yngri stráka. Ég baða oft börnin mín öll ( einu og það þykir engum hér athugavert, svo mér fannst ekkert sjálfsagðara en bæta litla frænda m(num f baðhópinn. Þegar þau voru háttuð, tók ég eft- ir því útundan mér — án þess að veita því sérstaka athygli — að Snorri litli starði á Möggu. En það rann upp fyrir mér Ijós, þegar hann sagði allt f einu með fyrirlitningu: „Þessar stelpur! Allt þurfa þær að eyðileggjal"" „Móðir" f Reykjavfk segir frá syni sínum, sem var að leika póst- inn. Hann bankaði og spurði eftir pabba sínum með nafni, það væri bréf til hans. „Jú," svaraði ég (segir „Móðir"), og til að gera leikinn sennilegri, bætti ég við: „Er þetta nýr póstur? Gömlu póstarnir vita allir, að NN á heima hér. Ég hef heldur ekki séð þennan póst áður." þá kemur litli karlinn minn alveg til mín og segir: „Jú, mamma mín, þú hefur víst séð mig áður. Manstu ekki, að þú hnepptir upp um mig áðan?" Og við skulum klykkja út með barnasögur á einni stuttri: — Mamma, mamma, hrópaði Sigga litla á afmælinu sínu og kom þjót- andi fram f eldhús. — Hún amma gaf mér voða f(na bók með fallegri mynd á skorpunni! Næst eru nokkrar sögur úr við- skiptaKfinu. Þessi er tæpast fslenzk: Konan kom með kjölturakkann sinn inn f búðina og hann fór að sleikja eplin, sem stillt var út í gluggann. Kaupmaðurinn benti henni kurteis- lega á athæfi hundsins, en hún hljóp til jesúandi sig og sagði: Fídó, Fídó, Fídó þó! Eplin eru óhreinsuð! Maður nokkur kom inn ( hatta- verzlun og bað um hatt. — Hvaða stærð? spurði afgreiðslustúlkan. — Ég veit það ekki, svaraði maðurinn, — en ég tók höfuðið með til vonar og vara. Annar var á ferð f Eng- landi og átti að kaupa brjóstahald- ara á frúna. — Hvaða stærð, spurði afgreiðslustúlkan. Maðurinn hugsaði sig um, því hafði hann alveg gleymt. Svo rétti hann fram holan lófa, horfði á hann gagnrýnisaug- um og sagði: Svo sem sirka svona. Sá þriðji átti að kaupa skó á frúna f Þýzkalandi og mundi heldur ekki númerið. Hann benti á afgreiðslu- stúlkurnar í röð og sagði: — Ekki eins breiðar lappir og þessi, ekki eins langar og þessi, ekki eins sver- ar og þessi og pfnuKtið lengri stóru- tær en þessi. Ljúkum svo þættinum að þessu sinni með rakarasögum. Maður sat á rakarastól með þykkt sápulöður framan f sér. Allt ( einu kemur æst- ur maður í dyrnar og æpir: Jón, Jón, komdu eins og skot, konan þ(n datt út um ganggluggann á fjórðu hæð ofan á gangstéttina! Maðurinn með sápulöðrið þeyttist upp úr stólnum og spanaði út á götu. Þar snar- stanzaði hann og sagði: — Andskot- inn sjálfur, ég heiti alls ekki Jón! Siggi rakari, sem margir þekkja, var um tíma f Danmörku og vann á rakarastofu þar. Einu sinni var hann sem oftar að ganga frá kúnna, þeg- ar hann tók eftir heldur ófrýnileg- um hárvexti á eyrum mannsins: — Skal jeg klippe af örene ogsá? spurði hann hann lágt og í trúnaði. Maðurinn tók mikið viðbragð, en svaraði svo með drynjandi bassa- röddu: — Næh, ellers tak, dem vil jeg gjerna beholde pá! Skopsögusöfnunin er f fullum gangi. Við tökum öllu með þökkum, en áskiljum okkur rétt til að velja og hafna. Utanáskriftin er: Með bros á vör, Vikan, pósthólf 533, Reykja- vfk. ís.tbi. vikan 11

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.