Vikan - 04.04.1968, Blaðsíða 51
Hún ætlaði að hitta
sinn fyrrverandi
Framhald af bls. 24
ið vissum við að eitthvað hafði
komið fyrir dóttur okkar. Þetta
hafði aldrei komið fyrir áður. Þeg-
ar henni dvaldist lengur en hún
hafði gert ráð fyrir, hringdi hún
alltaf og lét vita af því.
Hansenhjónin vissu ekki hvar
fyrrverandi maður Myrnu bjó, ann-
ars hefðu þau haft samband við
hann.
A miðvikudaginn hringdi svo
maðurinn og spurði eftir henni. Frú
Hansen svaraði:
— Þið hafið þó sézt á sunnudag-
inn!
En eiginmaðurinn fyrrverandi
harðneitaði að hafa hitt Myrnu og
ekki einu sinni mælt sér mót við
hcna. Hann hefði verið í Trelle-
borg á laugardagskvöldið og á
sunnudaginn ekið til og frá um
Skán.
FJARVISTARSÖNNUN EIGINMANNS-
INS FYRRVERANDI.
Lögreglunni var gert viðvart. —
Fjarvistarsönnun sokkasalans var
pottþétt. Hann hafði á sér aðgöngu-
miða að knattspyrnukeppni í Sve-
dala, hafði heimsótt kunningja í
Staffanstorp, tekið bensín á þar til
ætlaðri stöð og rabbað lengi við
eigandann, borðað á veitingahúsi
í Ystad og hringt þaðan. Um kvöld-
ið hafði hann komið heim til for-
eldra Myrnu. Þau voru ekki heima.
Frú Hansen skoðaði fataskáp
dóttur sinnar og komst þannig að
því hvernig Myrna hefði verið
klædd, þegar hún hvarf að heim-
an. Hún hafði verið í sæblárri kápu,
sem hún hafði nýlega stytt til sam-
ræmis við siðustu tízku, og gráum
kjól gullbróderuðum.
— Bara að hún hefði farið í
rauða kiólinn sinn, segir móðirin.
Þá hefðu fleiri tekið eftir henni.
Allt benti til að Myrna hefði
hugsað sér cð koma heim þá um
kvöldið.
Lögreglumenn rannsökuðu lika
nákvæmlega eyðibýli norður í Smá-
landi, þar sem eiginmaður Myrnu
fyrrverandi hélt oft til. Það var
grafið í lóðina en ekkert fannst.
— Myrna lifði rólegu lífi, segir
móðir hennar. — Hún var hlédræg
að eðlisfari. Það er sárt að maður
heyrir stundum talað illa um hana
og fullyrðingar um að hún hafi
verið einhver ævintýramanneskja.
Hún gat skemmt sér ef hún vildi;
karlmenn sóttust mikið eftir henni.
Henni var oft boðið út, en kaus oft
fremur að vera kyrr heima. Hún
fór á fætur klukkan sjö á morgn-
ana til að hjálpa Kim í skólann,
vildi því fara snemma að hátta.
Þau Kim voru vön að fara með
okkur t frí, hún vildi helzt vera
með honum og okkur.
☆
m/fl/SAfí MBÐ AÐE/NS FMN! YfíRPUmUN
... hreinsar
MBLRÐJI VEOGI, VflSKfl, BAKflROFNfl,
GÓLF, betur, hraðar, auðveldar!
Límkennd óhreinindi? Fitukennd óhreinindi? Leðjukennd óhreinindi? Handy
Andy hreinsar öll óhreinindi á brott með aðeins einni yfirþurrkun. Nútíma
húsmæður, hvar sem er, eru sammála um það að hann sé bezti alhliða
hreinsunarlögur, sem völ er á. Handy Andy hefir öflugan styrkleika til að
hreinsa allskonar heimilishluti betur, hraðar, auðveldar. Notið hann annð-
hvort eins og hann kemur úr flöskunni, eða þynntan með vatni ef hreinsa
skal stærri svæði. Þér þurfið ekki að nota nema lítið í hvert sinn — Handy
Andy er svo kröftugur, svo drjúgur! Kaupið hann strax í dag!