Vikan - 04.04.1968, Blaðsíða 29
„Heyrið þér mig! Þér skuluð
ekki lóta alla þessa peninga liggja
svona á glámbekk! Það er ekki
öruggt að geyma peninga á svona
stað.“
Hún tofaði Jerry, að hún skyldi
setja þá í öryggishólf gistihúss-
ins, en sagði honum ekki, að hún
treysti ekki slíkum öryggishólf-
um — ekki frekar en öryggi sinn-
ar eigin framtíðar. Þegar Jerry
var farinn og þjónn kominn með
eggin og teið, tók hún til matar
síns og naut sérhvers munnbita.
Hún reyndi að horfa ekki á verð-
skrána, sem stóð á borðinu og
minnti hana óþyrmilega á hversu
óheyrilega mikið svona títil mál-
tíð kostaði. Loks stóðst hún ekki
mátið lengur, stóð á fætur, reif
verðskrána í tætlur og fleygði
henni í ruslakörfuna.
Hún var eins og unglingstúlka
á leið í fyrstu skógarferðina sína
og spjallaði glaðlega við hr. Mc-
Grath um leið og þau stigu um
borð í bátinn. Það var óvenju
heitur júnímorgunn. heiður him-
inn og glaða sólskin.
„Ég var farinn að óttast, að
þér kæmuð ekki,“ sagði McGrath
um leið og þau settust á aftur-
dekk bátsins.
„Voru miðarnir dýrir?“ spurði
hún.
„Ferð'r á töfrateppum eru allt-
af dýrar,“ sagði McGrath glað-
lega. „En þær eru peninganna
virði.“
Síðar tók hún eftir áhvggju-
fullu glotti á rndliti hans oe var
í þann veginn að vekja máls á
því, þegar skipsflautan var þeytt
og báturinn mjakaðist hægt frá
bryggjunni. Þau sigldu niður
Hudson-fljót og inn í mynni út-
hafsins, þar sem frelsisstyttan
stóð tíguleg álengdar og hafskip-
in komu og fóru allt í kring.
Litlu síðar sigldu þau upp East
River, snæddu pylsur, hölluðu
sér fram á handriðið og virtu fyr-
ir sér freyðandi slóð bátsins.
Hún tók eftir því, að McGrath
glotti enn, en þegar hann varð
var við, að hún gaf honum gætur
í laumi, brosti hann og reyndi að
segja eitthvað skemmtilegt. Hann
•sagði meðal annars, að eyjan
hefði einhvern tima verið seld
fyrir aðeins tuttugu og fjóra doll-
ara. Einnig spurði hann hana,
hvort hana langaði ekki til að
bregða sér í froskmannabúning
og kafa niður á hafsbotn. Hún
hafði gaman af þessu, sérstak-
tega hinu síðarnefnda.
En ferðin tók brátt enda;
báturinn lagðist að bryggju og
þau stigu fimlega í land.
„Ég þakka kærlega fyrir, hr.
McGrath," sagði hún. Þau stóðu
á bryggjunni í heitri sólinni og
urðu allt í einu bæði vandræða-
leg; vissu ekki almennilega hvað
þau ættu af sér að gera.
„Ég hafði gaman af að fara
þessa ferð og skemmti mér mjög
vel,“ sagði hún hraðmælt.
VIKAN EK HEIMILISBLAÐ OG I ÞVI ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á IIEIMILINU, — UNGA OG
GAF.ILA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O. FL., O. FL.
KLIPPIÐ HER-----------------------------------------KLIPPIÐ HER
□
□
r
i
i
i
L
Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift
3 MANUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 400,00. Hvert blað á kr. 30,77.
6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 750,00. Hvert blað á kr. 28,85.
Gjalddagar: 1. febrúar — 1. maí — 1. ágúst — 1. nóvember.
SKRIFIÐ GREINILEGA
PÓSTSTÖÐ
HILMIR HF.
VIKAN
PÓSTHÖLF 533
SfMAR:
36720 - 35320
SKIPH0LTI 33
REYKJAVfK
PÉR SPARID
MED ÁSKRIFT
ÞÉR SPARIÐ TIU KRÓNUR Á HVERJU BLAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ VERA
ÁSKRIFANDl AÐ VIKUNNI
OG ÞÉR ÞEKKIÐ EFNIÐ
i3. tw. VIKAN 29