Vikan - 06.06.1968, Side 5
LÖGFRffiDlNGURINN BG
HIPPASTELPAN.
PETER SELLERS SÉST NÚ ÖLLUM STUNDUM MEÐ UNGRI OG
FALLEGRI STÚLKU, LEE TAYLOR YOUNG. HÚN LEIKUR MEÐ
HONUM í NÝJUSTU KVIKMYND HANS.
Síðustu mánuði hefur Peter Sellers sézt öllum stundum með ungri og fallegri stúlku, Lee
Taylor Young. Hins vegar hefur hann ekki sézt í fylgd með hinni sænsku konu sinni, Britt
Eklund í langan tíma. Hann hefur meira að segja heimsótt Lee Taylor Young á kvöldin undir
því yfirskini, að hann væri að kenna henni leiklist. Hún leikur á móti honum í kvikmyndinni
„Ég elska þig, Alice B. Toklas“. Gárungarnir í Hollywood hafa skírt myndina upp á nýtt og
kalla hana „Ég elska þig, Éee Taylor Young“. Orðrómurinn um ástarsamband þeirra hefur
gengið fjöllunum hærra.
Britt Eklund hefur hins vegar reynt að kveða orðróminn niður eftir beztu getu. Hún seg-
ir, að enginn skilnaður sé í uppsiglingu. Þvert á móti séu þau hjónin nú hamingjusamari en
nokkru sinni fyrr.
Þessu til staðfestingar hélt hún gríðarmikið samkvæmi nýlega. Hún bauð þangað hverjum
sem koma vildi og sjá hversu hamingjusöm hún og Peter Sellers væru. Hún sagði um Lee
Taylor Young:
Hún er gift og er nýbúin að eignast barn. Maðurinn hennar er leikarinn Ryan O'Neal,
og þau lifa í hamingjusömu hjónabandi. Sögusagnirnar hafa ekki við nein rök að styðjast.
Lee Taylor Young er ekki ósvipuð Britt Eklund í útliti. Hún er ljóshærð og gædd miklum
kynþokka. Fyrir þremur árum vakti hún athygli fyrir leik sinn í sjónvarpsleikriti, sem byggt
var á hinni frægu skáldsögu „Payton Place“.
í kvikmyndinni „Ég elska þig, Alice B. Toklas" leikur Peter Sellers lögfræðing, sem ákveð-
ur að gerast hippi. Hann tekur að klæðast skrautlegum fötum með blómamynstri og lætur
sér vaxa hár niður á herðar. Hann kynnist ungri og fallegri hippastelpu með tattóverað fiðr-
ildi á lærinu og verður afskaplega ástfangin af henni. ★
FALDI ÁSTMEY SÍNA HEIMA HJÁ KONUNNI í 28 DAGA
ÁHEYRENDUR, DÖMARAR OG LÖGFRÆÐINGAR Á SIKILEY SKEMMTA SÉR KONUNGLEGA YFIR
ÞESSU SPAUGILEGA MÁLI, SEM LÍKT ER VIÐ „DEKAMERON“ EFTIR BOCCACCIO
paugilegt mál kom fyrir
rétt i Sikiley ekki alls
fyrir löngu. Nýgiftur maður,
Sergio Sacco að nafni, faldi ást-
mey sína, Maríu Grazia Amari,
í 28 daga í lokrekkju í gesta-
herberginu heima hjá sér. Kon-
an hans, Elvira, hélt að Mafíu-
foringinn Ciccio Mazzara væri í
lokrekkjunni, þar til hún sá
hvíta sokka í gestaherberginu.
Réttarhöldin hafa verið fjöl-
menn og líkari gamanleik en
raunveruleika. Bæði áheyrend-
ur, dómarar og lögfræðingar
Ástmærin Maria Grazia Amari
tók með sér son sinn og Sergios
og hélt á honum við réttarhöld-
in. Barnið fæddist í kvennafang-
elsi fyrir sex mánuðum. Sitj-
andi er eiginkonan Elvira og til
hægri er sjálfur höfuðpaurinn,
Sergio Sacco.
hafa skemmt sér yfir þessu máli.
Því hefur verið líkt við „Deka-
merón“ eftir Boccaccio.
— Ég var 16 ára, þegar ég
kynntist Sergio Sacco í verk-
smiðju föður hans, segir ástmær-
in Maria Grazia AmarL Hans
vegna varð ég ósátt við föður
minn. Ég var lokuð inni á heim-
ili mínu og mér var misþyrmt.
Samt tókst mér að hitta Sergio
á laun á hinum ólíklegustu stöð-
um. Einu sinni gistum við á
móteli. Þá datt umslag upp úr
jakkavasanum hans. í því var
hjúskaparvottorð. Sergio spann
upp ótrúlega lygasögu. Hann
sagðist hafa verið neyddur til að
kvænast Elviru af því að hann
hefði átt barn með henni. Hins
vegar sagðist hann elska mig og
enga aðra.
Þegar Elvira og Sergio giftu
sig 15. desember 1966 fylltist ég
vonleysi og örvæntingu og
reyndi að svipta mig lífi. Ég tók
inn eitur. í viku lá ég á sjúkra-
húsi og Sergio heimsótti mig á
hverjum degi.
— Þú átt ekki að deyja, sagði
hann við mig. — Ekki þú.
Nokkru seinna smyglaði hann
mér inn á heimili sitt. Hann
Faldi mig í lokrekkju í gesta-
herberginu í 28 daga. Einn dag-
inn fékk hann mér skammbyssu
og kenndi mér að handleika
hana. Hann útskýrði fyrir mér,
að enda þótt ég skyti konuna
hans, þá yrði ég ekki dæmd, því
að ég væri ekki enn komin á
lögaldur. Mér mistókst í fyrslu
tilraim, en að kvöldi 1. desem-
ber, þegar Sergio, Elvira og son-
ur þeirra Roberto komu af
skemmtigöngu, skaut ég hana í
bakið. Sergio kyssti mig og
reyndi að hughreysta mig. Síð-
an fór hann með Elviru á sjúkra-
hús.
— Ég hef aldrei elskað neina
aðra en konuna mína, sagði Ser-
gio fyrir réttinum. Mér fannst
Maria Grazia að visu aðlaðandi
°g eggjandi, en það var aðeins
um líkmlega ást að ræða okkar
á milli. Ég bar engar aðrar til-
finningar í brjósti til hennar. —
Það er satt, að ég faldi hana
heima hjá mér og sagði konunni
minni, að ég væri að fela Ciccio
til þess að hann lenti ekki í
klónum á lögreglunni. En ég
kvæntist Elviru af því að ég
elskaði hana. Ég gerði það meira
að segja í óþökk föður míns. Ég
er góður eiginmaður og faðir, en
Maria Grazia lét mig aldrei í
friði. Hún er afbrýðisöm og vill
hefna sín.
— Sergio gæti aldrei gert neitt
Framhald á bls. 40.
22. tbi. YIKAN 5