Vikan


Vikan - 06.06.1968, Side 26

Vikan - 06.06.1968, Side 26
/ Lúxor, hin forna höfuðborg Egyptalands, sem Grikkir kölluðu Þebu; borgin með hundrað hlið. — Loksins er komið það veðurlag, sem búizt var við: glampandi sól á heið- bláum himni. Fyrir utan hótelið standa hest- vagnar í röðum. Eklarnir dotta yfir taumunum í morgunblíðunni. Skyldu þeir hafa sofið þarna í nótt? Þeir spretta á fætur um leið og sést til mannaferða. Þeir mega muna sinn fífil fegri. Venjulega er allt krökkt af ferðafólki á þessum árstíma. Sex daga stríðið hefur hins vegar gert það að verkum, að nú er slegizt um fáeina boðsgesti, sem eiga heima einhvers staðar norður í hafi. Slík heimkynni eru naumast raunveru- leg á þessum stað. Fyrir utan verzlanir standa kaup- menn og reyna að draga athygli að varningi sínum. Einn talar meira að segja íslenzku: — Mikki betra hér, segir hann og bendir brosandi á búðina sína. — Hann kveðst þekkja Norðurlanda- búa vel, einkum Svía, en einnig fs- lendinga og hafa lært nokkrar nauð- synlegar setningar í tungumálum þeirra. Við höfum þegar séð margt, sem festst hefur rækilega í minni, enda þótt jafnan séu stundir hraðfleygar á ferð um framandi lönd: Kairó og pýramídana, Assúan-stífluna og Karnak-hofið hér í Lúxor. Þó er okk- ur sagt, að enn sé eftir það, sem taki öllu þessu fram: Dalur kori- unganna. Þangað er ferðinni heitið á þess- um bjarta og sólríka degi. Við siglum yfir Nílarfljót á lít- illi skemmtisnekkju; sitjum á opnu dekki og hlustum á dökkleita Ar- aba leika þjóðlög. Tónlistin er til- breytingarlítil, en taktföst og seið- andi. Fyrr en varir sprettur ungur drengur fram. á gólfið, bindur klút um mittið, teygir báðar hendur til himins og tekur að stíga kynlegan dans. Hann tyllir öðrum fæti á tá, en dregur hinn á eftir; þannig fram og aftur um gólfið. Þetta er falleg- ur drengur, fínlega vaxinn með við- kvæmnislegan þjáningarsvip á and- litinu. Líklega kann hann illa hlut- skipti sínu að þurfa að dansa sí- sona; lífsgleði æskunnar fjötruð af brauðstriti strax í bernsku. Við fáum sykurreir að naga; langar, rauðbrúnar stengur. Þær hafna flestar að lokum hjá hljóm- sveitarmönnunum, sem gera þeim góð skil á augabragði: naga þær eins og dýr. SIIPMViailR Úll FEII IM EGYPTALAHI 3. ILITI TEXTÍ: GYLFf GRÖNDAL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.