Vikan


Vikan - 25.07.1968, Blaðsíða 36

Vikan - 25.07.1968, Blaðsíða 36
# KARNABÆR TÍZKUVERZLUN UNGA FÖLKSINS - TÝSGÖTU 1 - SÍMI 12330 K A R N A B Æ R DÖMUDEILD: DÖMUSPORTBUXUR DÖMUSÍÐBUXUR KÁPUR KJÓLAR PEYSUR BLÚSSUR F R Á 0 K K U R VERÐ FRA KR. 640.- - - - 980,- - - 1980— - - - 730— _ - - 350,- - - - 525— Hötflð áltri Á NÝJUSTU TÍZKU VANDAÐAR VÖRUR ÍIAGSTÆÐ VERÐ GÓÐ ÞJÓNUSTA VERIÐ VELKOM IN SPORTBUXUR BUXUR TERRILINE JAKKAR SKYRTUR PEYSUR Rollingarnir Framhald af bls. 17 hafði í fórum sínum talsvert magn eiturlyfja. Er þetta í ann- að skipti að Brian lendir í klandri vegna þessá, og má bú- ast við, að honum verði stung- ið í svartholið, er dómarar hafa fjallað um málið. Brezka músikblaðið New Musical Express efnir á ári hverju til mikillar tónlistarhá- tíðar á Wembley leikvanginum í London. Koma þar jafnan fram allar vinsælustu’ hljómsveitir í Bretlandi, svo og söngvarar. Slík samkoma var haldin fyrir skömmu, og er skemmst frá því að segja, að Rollingarnir hlutu lang beztar viðtökur. Geta má þess, að þarna kom líka fram hljómsveitin Herd, sem sögð hefur verið efnileg, en áheyr- endur létu sitt álit í ljós með pípi og öðrum miður uppörvandi hljóðum. Nokkur þúsund ungl- inga sóttu þessa hljómleika, og ætlaði allt um koll að keyra, er Rollingarnir upphófu leik sinn. Þykir þetta renna enn sterkari stoðum undir þá kenningu, að Rollingarnir séu aftur að öðlast sínar fyrri vinsældir. Nokkrum tíðindum þykir það sæta, að Mikka Jagger hefur verið boðið að fara með aðalhlutverk í kvikmynd, sem á að heita „The Performess“. Myndin verður að líkindum dregin í dilk með svo- kölluðum stórmyndum. Verður hún í litum og sýnd á breiðustu tegundum sýningartjalda. Verð- ur þetta frumraun Mikka á sviði leiklistarinnar, en mótleik- arinn er James Fox. Myndin á að fjalla um ungan pop-músi- kant, sem Mikki mun leika, og er ungi maðurin álitinn úrhrak með því að lífsvenjur hans eru með nokkuð öðrum brag en samferðamanna hans. En upp rofar þó, þegar á vegi hans veð- ur ófyrirleitinn skúrkur, sem James Fox mun leika. Ná- kvæmari upplýsingar höfum við því miður ekki um efni og inni- hald myndarinnar, en hitt vitum við, að Mikki hefur þegar sam- ið alla tónlist, sem flytja á í myndinni. Sagt er, að hann muni þó ekkert syngja sjálfur — ut- an kannske einu sinni. Hvernig hinir ríku . . . Framhald af bls 23 ara, og þá er flugferð fram og aftur, Paris-lschia, talin með. í París er það mjög mikið ( tízku að taka saunaböð oð anda að sér súrefni. Annars er það víða sem súrefnisöndun er orðin algeng, þá andar maður að sér súrefni ( fimmtán til tuttugu mínútur. Marg- ar snyrtistofur og rakarastofur, v!ða um heim, hafa súrefnistæki við hendina, ef viðskiptavinirnir vilja nota það. (Innöndun súrefnis er álit- in mjög góð við venjulegum timb- urmönnum. „Þrjátíu mínútna inn- öndun jafnast á við þriggja daga fjallaferð", er sagt, og nú er hægt að fá lítil súrefnishylki, sem kom- ast fyrir í handtöskum kvenna og skjalatöskum karla. (Þau fást þó líklega ekki ennþá hér á landi). í Vevey í Sviss er mjög athyglis- verð og um leið umdeild stofnun, sem helgar sig yngingu og við- haldi mannlegs líkama. Þetta er „La Prairie", sjúkrahús og heilsu- stofnun dr. Paul Niehans, þar sem frægt fólk hefur dvalið sér til heilsubótar, fólk eins og Somerset Maugham, Konrad Adenauer. Glor- ia Swanson, Pernard Baruch og Pius páfi XII. Það kostar um það bil 1.285 dollara á viku að vera þarna og fá aðgerðir og aðbúnað, sem aðallega er fólginn í því að endurnýja frumur líkamans og fyr- irbyggja hrörnun. Kenningar dr. Niehans eru byggð- ar á því að þar sem frumur líkam- ans eldast og deyja, þá sé hægt að endurbyggja líkamann með því að taka lifandi frumur úr líffærum dýra og sprauta þeim inn ( Kkam- ann. Þessar lifandi frumur eru sagðar þrífast vel í líkama sjúkl- ingsins og endurnýja hið hrörn- andi líffæri. Aðgerðirnar f Vevey byrja með því að það er nákvæm- lega rannsakað, hvar hrörnunin er mest og ( mestri þörf fyrir nýjar' frumur, — nýtt líf. Það eru yfirleitt\ fjórtán líffæri sem koma til greina, 36 VIKAN 29- tbI'

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.