Vikan - 22.08.1968, Qupperneq 2
V
COVER G!RL fæst í öllum snyrtivöruverzlunum.
Heildsölubirgðir: FRIÐRIK BERTELSEN Laufásvegi 12 - Sími 36620.
Varalitir,
12 fallegir tízkulitir.
Pressað púður,
4 fallegir beige litir.
Cleansing Lotion
hreinsar betur en sápa og
er mildara en krem.
Astrigent Tonic.
Andlitsvatn fyrir þurra og
feita húð.
COVER GIRL snyrtivörur
eru viðurkenndar af hin-
um vandlátu.
MAKE-UP,
3 fallegir litir.
(l nl
NOXZEMA yDEODORANT. NOXZEMA - DEODORANT
5 P R A Y á SVITAEYÐIR. REYNIÐ OG ÞÉR MUNUÐ SANN-
24 HOUR PROTECTI0N dries on contact FÆRAST UM AÐ BETRI SVITAEYÐIR FÁIÐ ÞÉR EKKI.
J 1
V /
Ættjarðarljóð
Þeir sem eru sannfærðir
um, að allt sé á hverfanda
hveli og bókmenntir og list-
ir hafi aldrei verið rislægri
hér á landi en nú, fengu held-
ur betur vopn í hendur hér
á dögunum: Virðuleg dóm-
nefnd á vegum háskólastú-
denta treysti sér ekki til að
verðlauna neitt af 35 hátíðar-
ljóðum í tilefni af hálfrar
aldar afmæli fullveldisins. 25
þessara óverðlaunuðu ljóða
hafa nú verið gefin út í bók
af framtakssömum pilti, svo
að alþjóð mætti ljóst verða,
hvort dómnefndin hefði rétt
fyrir sér eða ekki.
Það er skemmst frá að
segja, að útgáfa ljóðanna er
fullur stuðningur við niður-
stöðu dómnefndarinnar. Hins
vegar vekur það athygli, að
flestir eru höfundarnir komn-
ir til ára sinna, og öll eru
kvæðin ort í gömlum stíl. Þótt
tíu ljóð. vanti í bókina, er
bersýnilegt að nútímaskáld
okkar hafa ekki almennt tek-
ið þátt í þessari samkeppni.
Allt þetta ævintýri gefur
tilefni til að hugleiða, hvernig
á því standi, að ung skáld
skuli ekki lengur finna hvöt
hjá sér til að lofa ættjörðina
í ljóð við hátíðleg tækifæri.
Sé betur að gætt kemur í ljós,
að sum af ættjarðarljóðunum
gömlu, sem allir Islendingar
kunna, eru í rauninni ekki
ýkja mikill skáldskapur.
En þau voru nauðsynleg á
sínum tíma; þau voru ómiss-
andi þáttur í sjálfstæðisbar-
áttunni. Aftur á móti full-
nægir málfar þeirra og ytri
búningur ekki lengur tján-
ingarþörf ungs fólks. Sum
kvæðin í umræddri bók eru
sæmilega kveðin og ort á
sama hátt og ættjarðarljóðin
gömlu. En samt verka þau
ekki sannfærandi. Þau hljóma
andkannalega, og sum eru
jafnvel hlægileg.
Allt ber þetta að sama
brunni: Ættjarðarljóð í hin-
um gamla skilningi heyra
fortíðinni til. Sú kveðskapar-
list verður naumast endur-
2 VIKAN 33-tbl-