Vikan - 22.08.1968, Blaðsíða 18
■ ■
FJÖLBÝIISHÚS FBAMTÍBABMNAR
r n
Arkitekt og féiagsfræðingur í Vestur-Þýzka-
landi hafa í sameiningu gert teikningu að
sambýlishúsi, sem er einstakt í sinni röð.
Hugmynd þeirra er að veita hinum almenna
borgara framtíðarinnar fullkomið heimili,
sem geti orðið honum sannkölluð paradís.
Roland Frey arkitekf og Norbert
Schmidt-Relenberg félags-
fræðingur, báðir til heimilis í Stutt-
gart, Vestur-Þýzkalandi, hafa [ ný-
útkominni bók komiS fram meS
byltingarkenndar tillögur í bygg-
ingamálum, lagt fram hugmynd og
teikningu að íbúðablokk, sem ekki
á sér sinn líka. Og þetta er engin
útópía, segja þeir, við vitum að
þetta er einkar auðvelt í fram-
kvæmd. Hugmynd þeirra er að
veita hinum almenna borgara fram-
tíðarinnar fullkomið heimili, heim-
ili sem geti orðið honum sannköll-
uð paradís og séð honum fyrir
hæfilegri einangrun frá skarki og
forvitni umheimsins.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að þróun í [búðamálum stór-
borga beinist mjög f óheillaátt.
Flestir vilja helzt búa í úthverfi,
fjarri skarkala miðborgarinnar, en
þar er slegizt um hvern lóðarblett,
svo að verðlagið fer upp úr öllu
valdi. Menn neyðast því til að leita
sér lóða eða íbúða æ fjær borg-
armiðjunni og eru því dag hvern
klukkustundum saman á leið í og
úr vinnu. Og þar að auki þetta stöð-
uga ónæði, sem nágrannarnir á
hæðinni fyrir ofan eða neðan valda
með óæskilegum hávaða. Heimilis-
friðurinn getur því orðið næsta tak-
markaður. Þar á ofan vinnur hús-
móðirin trúlega úti, og hvernig [
ósköpunum á hún auk þess að gera
innkaup, koma börnunum f leik-
skóla og ná f föt úr hreinsun? Öll
þessi vandamál segjast þeir Frey og
Schmidt-Relenberg nú geta leyst á
einu bretti. Til þess að koma í veg
fyrir að borgirnar þenjist von úr
viti, hlaða þeir lóðunum einfald-
lega hverri ofan á atSra. Sambýlis-
húsið þeirra á að vera ( fimm eða
sex hæðum og til að sjá minnir það
dálítið á kínverska pagóðu eða
tröppupíramtda. (búðirnar verða
verðlagðar eftir stærð [ fermetrum,
en hvað innan þeirra á sér stað,
kemur aðeins íbúunum við. Að vísu
er verönd íbúðarinnar jafnframt
þak næstu íbúðar fyrir neðan, en
það þak verður tvöfalt og með ein-
angrun á milli og algerlega hljóð-
helt. Og ekki þýðir heldur að reyna
að kíkja niður til nágrannans: þétt-
ur plöntugróður á jaðri verandar-
innar kemur f veg fyrir slfkt hátta-
lag. Ekki er heldur hægt að líta
yfir á verönd nágrannans við hlið-
ina, því háir veggir skilja að ver-
andir á sömu hæð.
Tveir nefndir framúrmenn [ bygg-
ingalist bjóða framtíðar-viðskipta-
vinum sínum ekki aðeins upp á
hliðstæð þægindi og eigendur ein-
býlishúsa njóta. Menn þurfa ekki
lengur að vera í vandræðum með
að finna sér autt stæði fyrir bílinn
og neyðast að lokum til að skilja
hann eftir einhvers staðar órafjarri
heimilinu: í iðrum hinnar nýju
undrabyggingar verða bæði bíla-
stæði og bílastöðvar. Húsmóðirin
losnar líka við þennan venjulega
þrældóm, sem kvenfólk af þeirri
stétt þekkir svo vel af eigin reynd,
því að á hverjum morgni fer um
íbúðirnar eins konar stormsveit hús-
hjálparliðs, sem í einum hvelli
klárar allt uppvask, sem fyrir ligg-
ur, býr um rúmin, burstar skó og
fleira og fleira. Það tekur einnig
með sér föt í þvott og viðgerð. Við
dyr hverrar íbúðar verður sérstak-
ur skápur, þar sem sendlar frá mat-
vörukjörbúðinni skilja eftir nauð-
synjar, en þær eru pantaðar ( síma.
Þetta „hús allra húsa" hefur líka
eigin vöggustofu og barnaheimili,
svo að húsmæður þær sem úti vinna
þurfa ekki að standa í miklu um-
stangi vegna ungviðisins. í barna-
heimilum fá börnin miðdegisverð
og tilsjón er þar höfð við skóla-
vinnu þeirra. Og vilji foreldrar
bregða sér út að kvöldlagi, sér sér-
stök þjónusta þeim fyrir barnfóstru.
En verður ekki dýrt að búa í
slíkri paradís? Höfundar hennar
segja, að framan af muni aðeins
tekjuháar fjölskyldur geta leyft sér
það, en líklega vonast þeir til, að
með tímanum verði vegna aukinn-
ar reynslu af rekstri slíkra blokka
hægt að lækka búsetukostnaðinn.
[ fyrstu sambyggingunni af þessari
gerð, sem fljótlega verður reist svo
fremi engir nýir tæknilegir erfið-
leikar komi í Ijós, verða (búðir fyr-
ir áttatíu til hundrað fjölskyldur.
☆
18 VIKAN 33-tbl'