Vikan - 22.08.1968, Blaðsíða 50
IROPAST er ryðhreinsiefni, sem nýlega
er komið á markað erlendis.
Hinir einstæðu eiginleikar IROPAST
hafa þegar valdið byltingu á sviði
ryðhreinsunar, enda nýttir í stórum stíl
við hreinsun á ryði og gjallhúð.
IROPAST er borið á með pensli eða
spaða og síðan fjarlægt ineð vatni eftir
nokkrar klst..
IROPAST eyðir fullkomlega öllu ryði
en hefur þó hvorki skaðleg áhrif á
hreinan málm nó málningu.
RYÐHREINSIÐ MEÐ IROPAST OG ÞÉR
MUNUÐ NÁ UNDRAVERÐUM ÁRANGRI.
Einkaumboð: f U|
Laugavegi 178 Sími 38000
OSRAM
OSRAM
Geymið skemmtileg augnablik ferm-
ingarinnar til seinni ára.
— Notið OSRAM - leifturljós svo
myndin takist vel.
orðnar leiðar á stuttu kjólunum,
gætu notað þá sem slíka fl(k. Báð-
ar þessar buxnadragtir eru frá
Ricci, sú með síðu buxunum úr
svörtu Jersey, en með þeim stuttu
úr brunu tweed, hvorttveggja tízku-
efni, ekki stður en þykka jerseyið.
_ ☆
Greta Garbo
Framhald af bls. 29.
af einfaldleik og glæsilegum bún-
aði. Það glæsilegasta er fagrir
listmunir, höggmyndir eftir
þekkta listamenn, og nokkur
sænsk húsgögn, sem valin eru
með mikilli smekkvísi.
Hún lifir mjög einföldu lífi, að
því undanteknu að hún veitir sér
þann munað að borða, næstum
daglega, hádegisverð í Colony
Club, þar sem gamall vinur henn-
ar, Gaylord Hauser, hittir hana
oft.
Yfirþjónninn, sem deplar
varla augunum þótt hertogafrú-
in af Windsor, Jackie Kennedy
eða Margaret Bretaprinsessa láti
sjá sig, og er þekktur fyrir að
vera mjög stífur, svífur eins og
verndarengill í kringum borðið
hennar. Það er ekkert leyndar-
mál að hann hefir tilbeðið hana
í mörg ár.
— Hin dularfulla Garbo er á-
skorun á ævintýramanninn, sem
ennþá býr í Ameríkumanninum,
sagði þekktur sálfræðingur, fyrir
skömmu. — Ameríkumaðurinn
vill ennþá nema nýtt land, og
hún er tákn þess takmarks sem
ekki verður náð.
Hann viðurkennir að hann hafi
sjálfur elt hana í hæfilegri fjar-
lægð í fleiri klukkutíma, þegar
hún reikaði um Manhattan einn
daginn.
SKOÐAR GÖMLU
KVIKMYNDIRNAR SÍNAR
Hún veit vel um það þjóð-
sagnalega vald sem hún hefir, og
margan daginn flýr hún til for-
tíðarinnar, í safnið þar sem gaml-
ar kvikmyndir eru geymdar. Það
er gamall vinur hennar, Richard,
sem passar þetta safn, og hann
leyfir henni að sitja í einrúmi
og horfa á gömlu kvikmyndirnar,
sem hún lék í.
Oftast skoðar hún „Kristínu
Svíadrottningu", þar sem hún lék
á móti John Gilbert. Það er sagt
að þau hafi verið að því komin
að ganga í hjónaband, og að
hann hafi dáið af sorg, þegar
hún hætti við á síðustu stundu.
Sjálf minnist hún aldrei á ástar-
ævintýrið sem hún átti með John
Gilbert, sambandið við hljóm-
sveitarstjórann Leopold Sto-
kowski, Gaylord Hauser og Ge-
org Schlee, sem nú er látinn.
Margir hippar í listamanna-
hverfum stórborga í Ameríku
skreyta veggi með plakötum sem
sýna Garbo og Charlie Bickford
í kvikmyndinni „Anna Christie".
Greta Garbo á ennþá margar
fasteignir í Stokkhólmi, síðan á
fyrstu frægðarárunum. Þær hafa
auðvitað hækkað í verði og eru
nú álitnar fleiri milljón dollara
virði. Hún á líka íbúðir í New
York, sem hún keypti fyrir lítið
verð, fyrir mörgum árum.
Þrátt fyrir auðæfi sín lifir hún
einföldu lífi. Hún notar sjaldan
skartgripi, en oft sést hún fyrir
utan gluggana hjá Tiffany, og
virðir fyrir sér skrautgripina þar.
Nafn hennar hefur ennþá ein-
hvern töframátt, sem sjá má á
þessari sögu: Ein af hinum fögru
sýningarstúlkum í New York
hitti David Granger, hinn þekkta
tízkuframleiðanda og sagði: —
David, þú getur aldrei gizkað á
hvern ég sá í dag á Fimmtu tröð.
Hann svaraði: — Ef það var ekki
Garbo, hefi ég engan áhuga á
því!
Brúðkaup í
Krýsuvík
Framhald af bls. 9.
andi hrauni ofar í landið. Tilgát-
ur hans um byggð í Krísuvík eru
forvitnilegar og sennilegar, en
ekki er rúm til að rekja þær
frekar að þessu sinni.
Fyrir nokkrum árum fundu
einhverjir óhappamenn hjá sér
köllun til að brjótast inn í Krísu-
víkurkirkju og ræna þaðankerta-
stjökum kirkjunnar ásamt fleiru.
Ekki hefur hafst upp á þessum
mönnum, né heldur gripum þess-
sem stolið var. En á þessu ári
gerðist það, að hjón nokkur
hringdu til þjóðminjavarðar og
sögðust hafa fundið kertastjaka
í ruslatunnu; gátu þau sér þess
til, að þar væru komnir stjakar
Krísuvíkurkirkju. Þjóðminja-
vörður skoðaði stjakana og sá
þegar að svo var ekki, heldur
voru þetta mun merkilegri stjak-
ar og frá eldri tíma. Ákváðu þá
finnendurnir að láta hreinsa
stjakana og lagfæra, en gefa síð-
-an kirkjunni. Eru þeir hinir beztu
gripir og vonandi fá þeir að vera
í friði fyrir lítilsigldum þjófum.
En víkjum nú að brúðkaupi
því, sem um getur í fyrirsögn
þessarar greinar. Þar voru gefin
saman ungfrú Edda Larsen og
Guðmundur Ásgeir Sölvason, en
Guðmundur og tengdafaðir hans,
Larsen, hafa tekið jörðina Krísu-
vík á leigu og reka þar búskap
og kaffisölu. Það þótti því vel
viðeigandi, að hjónavígslan færi
fram á þessum forna kirkjustað,
og kom séra Garðar Þorsteinsson,
prófastur í Hafnarfirði, til Krísu-
víkur þeiman fagra júnídag
þeirra erinda. Kirkjan er ekki
stór, en athöfnin fjölsótt, svo
ekki fengu allir sæti. Að lokinni
athöfn í kirkjunni fóru kirkju-
gestir heim til Krísuvíkur, þar
sem hinir nýju ábúendur voru
að koma sér fyrir, og þágu góð-
ar veitingar. *
50 VIKAN 33-tbl-