Vikan


Vikan - 22.08.1968, Blaðsíða 5

Vikan - 22.08.1968, Blaðsíða 5
 I:í: | p|j||||| henni nieð gervihjartalokum. Að lokum var það Magnus Korsgren við Sahl- grensk sjúkrahúsið í Gautaborg sem ráðlagði henni að leita til Sviss. Professor Áke Senning, sem er einn af færustu læknum Svía, er yfirlæknir á handlæknisdeild háskólasjúkrahússins í Zurich. Hann var reiðubúin til, ásamt öðrum læknum, að reyna eina af liættu- legustu skurðaðgerðum innan hjarta- skurðlækninganna: sem sé að búa til nýj- ar hjartalokur úr hinum teygjanlega vef undir yfirhúðinni á læri sjúklingsins. TELFT UM LÍF OG DAUÐA Áhættan við slikan vefjaflutning er auðvitað gífurleg, og þá er um að ræða hvort hinar nýju hjartalokur láta að stjórn. Það er einnig mjög mikil hætta á að blóðtappi myndist. En bæði Jan Westerlund og konan hans voru orðin svo vondauí að þau vildu liætta hverju sem var. — Maðurinn minn og ég vorum alveg sammála, segir Britt-Marie. — Ég hafði um tvennt að velja, annars vegar að deyja og liins vegar að vera fær um að lifa eðlilegu lífi. Við vorum í sólskins- skapi, þegar við fórum frá Borás til Zúricli. Ég hafði aldrei komið inn á skurðstofu, og ég hafði engan tíma til að hugsa um livað biði mín, því ég var eiginlega strax svæfð. Seinna fékk ég Britt-Marie Westerlund og Jan maður hennar. — Við vorum sammála. Ég varð að velja á milli þess að deyja eða lifa eðlilegu lífi! að vita að Jan beið í sex klukkutíma, meðan á aðgerðinni stóð. NÚ GETUR HÚN EIGNAZT BÖRN Nú hefir Britt-Marie tuttugu og tveggja sentimetra langt ör á vinstra læri, alveg frá mjaðmabeini og niður undir hné. Örið kemur til með að minna hana á það að líf hennar lá á vogar- skálum, þessa sex klukkutíma. Professor Áke Senning skar átta fer- sentimetra stórt stykki af undirhúðinni á lærinu. Þetta stykki skar hann svo til og bjó til úr því hjartalokur, sem hann kom fyrir í hjarta hennar. Hún fékk að fara heim til sín fimm dögum áður en búizt var við, og hefir nú góða von um að hún sé alveg orðin heilbrigð. Átta vikum síðar var hún kornin til vinnu sinnar við bensínstöð í Borás, þar sem hún vann áður, og nú Ijómaði hún af hamingju. Loksins gat lnin lifað eðli- legu lífi. — Mér finnst eins og ég sé nýfædd, segir hún. — Þessir sextán dagar í Zii- rich eru í huga mínum eins og furðu- legur draumur. Og nú vonast ég eftir að fá heitustu ósk mína uppfyllta, að eign- ast barn! Britt-Marie Westerlund fær 17.000 krónur í laun á mánuði. Maður hennar hefir helmingi meiri laun. Þau eiga þriggja herbergja íbúð við Nolhagagat- an í Borás. Þau gátu ekki sjálf greitt þær 140.000 krónur sem aðgerðin kost- aði, en bæjarstjórnin í Borás hjálpaði þeim. Britt-Marie fékk styrk lir sér- stökum sjóði til að ganga í gegnum þessa skurðaðgerð, sem bjargaði lífi hennar. Það var töluvert rætt um það hver ætti að hjálpa henni og mörgum fannst að ríkið ætti að hlaupa undir bagga. En nú er annað hljóð i strokknum og allir Borásbúar samgleðjast innilega Westerlundhjónunúm. 33. tw. viKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.