Vikan


Vikan - 22.08.1968, Blaðsíða 43

Vikan - 22.08.1968, Blaðsíða 43
nákvæmur sjálíur og vildi hafa allt sitt á hreinu. Þau eyddu sælum hveitibrauðs- dögum á Korsíku. Þau lágu á ströndinni og Harriet varð kol- brún, nema þar sem þessi ofur- litlu bikinibaðföt hlífðu henni, en þau hafði Robert teiknað sér- staklega handa henni og gefið henni í morgungjöf. Robert upp- götvaði ánægjuna af því að fækka fötum á konum — allt aðra ánægju en þá, sem hann hafði af því að framleiða föt og máta á þær. Eftir hálfan mánuð í sælunni var Robert orðinn dálítið eirð- arlaus á ströndinni og í hótelinu. Ekki af því að hann væri ístöðu- laus. Áhugi hans var að öllu leyti starfslægur. — Lélegur stuðningur þarna, muldraði hann og rak olnbogann í Harriet. — Og þessi þarna sólbrennda, hún þyldi einn með tvíverkandi stuðningi. Og þessi, hvemig lízt þér á hana? Hann sá sér til gleði að þrjár vel klæddar, ungar konur voru í nýjasta módelinu hans. Aðeins af því hvernig kjólarnir fóru þeim, gat hann séð hvað undir lá. En hann tók ákaflega nærri sér að sjá það, sem gat ekki ver- ið annað en sníðagalli í haldars þeirra fjórðu. Nú var kominn tími til að snúa aftur heim, aftur til starfs- ins. Þau fengu sér hús í Chelsea með garði og háum veggjum. Litli bíllinn hans Roberts vék fyrir tveimur stærri og þau lifðu hamingjusöm það sem eftir var. Já, ánægð að minnsta kosti. Jæja . . . þetta gekk allt laman. Harriet var dásamlegur kokk- ur. Hún hélt húsinu flekklausu. Hún helgaði sig málaralistinni meira núna, þegar hún þurfti ekki að fara út að vinna, og Ro- bert gladdist yfir því að hún skyldi hafa skapandi tómstunda- starf. Það hafði kannski ekki upp á eins mikið að bjóða og hans eigið, en það hefði heldur ekki verið sanngjarnt að krefjast bess. Að því er Robert gat bezt séð, eftir nokkurra ára hjóna- band hafði Harriet aðeins tvo galla. Annar var sá hve mjög henni hætti til að gleyma sér í dagdraumum; hún átti það til að stara framfyrir sig á eitt- hvað í fjarska og setja upp alls- konar annarlega svipi, eins og hún heyrði hornaþyt frá huldu- landi, einhvers staðar utan úr blámanum — og þegar hún var í þessu stuði heyrði hún ekkert, sem sagt var við hana. Hinn gallinn var sá hve hún var al- gjörlega hjálparvana gagnvart jafnvel einföldustu tæknihlutum. Vatnskranar duttu í sundur í höndunum á henni og spúðu vatni yfir allt eldhúsið. Hún meiddi sig á dósahnífum, hræri- vélar gereyðilögðu það sem í þær var látið, þvottavélar tættu niður skyrturnar og blönduðu beim saman við sín eigin inn- ýfli, og ef hún svo mikið sem kom við sjálfvirku stillitækin á miðstöðinni varð óhjákvæmilega sprenging einhvers staðar í hús- inu. Robert var vanur því að kon- urnar, sem unnu hjá honum væru skilningsgóðar og fimar í fingr- unum og botnaði alls ekki í þess- um algjöra tæknilega vanmætti konu sinnar. En hann reiknaði með að allar konur hefðu ein- hverja galla og hann umbar þessa, og þegar hinn síðari varð svo erfiður að um þverbak keyrði, sendi hann einhvern úr verksmiðjunni til að greiða úr vandræðunum. Þess vegna var það þegar Harriet lánaðist á sól- björtum maídegi að eyðileggja saumavélina sína og hringdi í verksmiðjuna til Roberts, að hann andvarpaði þreytulega að vanda og lofaði að senda einhvern til að dytta að vélinni. Já, þegar í stað. Nei, hún var ekkert að trufla hann, alls ekkert. Hann sagði einkaritaranum sínum að senda einhvern til Chelsea og laga saumavélina. Svo sneri hann sér aftur að hálf- nöktu módelinu og sókkti sér óð- ar niður í íhugun vegna ljótrar, rauðrar rákar eftir hlírann. Þetta var hræðilegt og truflunin hafði ekki bætt skapið. Hann togaði í hlírann og lét hann smella aftur á sinn stað í sadis- tískri reiði. Nokkru seinna lagði Ambrose Tuttle af stað frá verksmiðjunni með verkfæraskjóðu sína. Örlögin, sem höfðu leitt Ro- bert Blossom á braut sinnar frjó- sömu framleiðslu, voru nú reiðu- búin til að láta til skarar skríða öðru sinni. 2. Ambrose Tuttle var riðvaxinn, ungur maður með miklar, svartar augabrúnir, sem gerðu hann her- skáan á svipinn. Lág, hikandi röddin var í algjörri andstæðu við þessar augabrúnir. Hann hafði unnið hjá Blossom í tvo mánuði og stúlkurnar í verk- smiðjunni vissu ekki enn hvern- ig þær áttu að skilgreina hann. Hann hafði mörg áhugamál, svo- sem ekkert eitt fremur en annað. Hann las mikið til að mennta sig, en námsefnin voru valin af handahófi og hann vissi að hann vantaði stefnuskyn. Hann hefði átt að hafa áhyggjur af því, en svo var ekki. Það var þægilegt að láta hugann reika frá einu efninu til annars, þægilegt að reka nefið í sem flest, að læra ögn af þessu og ögn af hinu og gleyma öllu því, sem væri of leiðinlegt til að vera þess virði að muna það. Að svo miklu leyti, sem hann langaði eitthvað sér- stakt, langaði hann að koma því þannig fyrir að hann þyrfti ekki að sýsla við nein dagleg skyldu- störf, að fara á fætur og fá sér í svanginn og fara í verksmiðj- una og vinna tilbreytingarlaust starf. Hann vildi fá að blunda og lesa og hugsa. Á öðrum tím- um og í annarri þjóðfélagsstétt hefði hann komið sér í einhverja stöðu, þar sem hann gat látið hverjum degi nægja sína þján- ingu í akademiskri einangrun. En eins og nú var málum hátt- að var Ambrose aðeins meðal vélvirki á leiðinni til að gera við saumavél eiginkonu húsbóndans. Svartar augabrúnirnar höfðu sigið örlítið neðar en venjulega. Hann var dagfarsgóður og jafn- lyndur, en engu að síður var hann óánægður með truflunina. Hann hafði verið að lesa Sjálfs- nám í höfðinglegu líferni undir vinnuborðinu og var óánægður með að vera hrifinn burtu frá hinum athyglisverða kafla um Kunnáttusamlegan Klæðaburð. Hvernig átti hann nokkurn tíma að geta lært hin fínni blæbrigði — dásamlegt orð „blæbrigði', hann hafði nýlega bætt því við orðaforða sinn eftir nákvæman lestur á Sjálfsnám í fögru mál- fari — hvernig? spurði hann sjálfan sig aftur, gat hann nokk- urn tíma orðið tungulipur og menntaður í samræðum ef sí- fellt var verið að draga hann burtu, til að gera við grófar og sálarlausar vélar. 33. tw. yiKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.