Vikan - 22.08.1968, Side 6
IUNDIRFATATIZKUNNI
undirkjólar meö aföstum
brióstanöldum komnir á
ÍSLENZKAN MARKAÐ
GÆDAMERKIÐ/^^fec^t^y
frá Marks & Spencer
tryffffir yöur vANDADA
voru a HÓFLEGU veröi
-i-IÐUNN
A-------
^STRÆTI
LÍFSLEIÐI
Kseri Póstur minn!
Mig langar til að biðja
þig að leysa úr vandamáli,
sem alltaf þjakar mig meir
og meir. En fyrst ætla ég
að þakka þér fyrir, hvað
oft ég hef haft ánægju-
stund við að lesa Póstinn.
Þú ert alveg einstakur í
því að leysa öll vandamál.
Mitt vandamál er það,
að ég þjáist af lífsleiða. 'Ég
er 22 ára gömul, gift og á
þrjú börn. Ég er orðin leið
á manninum mínum, sem
er drykkjumaður, heimil-
inu, umhverfinu, sjálfri
mér; hreint út sagt öllu,
nema krökkunum mínum.
Mér finnst ég svo ung og
vera svo bundin, og mig
langar til að slá mér upp
og skemmta mér. Hvað á
ég að gera? Það þýðir ekki
fyrir þig að segja, að þetta
lagist með aldrinum. Það
versnar alltaf. 5Sg elska
ekki manninn minn, og allt
er ómögulegt. Hvað á ég
að gera?
Með fyrirfram þökk og
kærri kveðju,
Ein lífsleið.
Lífsleiði er fyrirbæri,
sem allir reyna einhvern
tíma á ævinni, sérstaklega
þó þegar þeir eru milli tví-
tugs og þritugs. Sumir
kalla þetta „vonbrigði full-
orðinsáranna". Frelsi og
áhyggjuleysi æskunnar og
sú ferska skynjun, sem
ungt fólk er gætt, er iiðin
tíð. Ekkert virðist vera
framundan nema óendan-
lega langur og leiðinlegur
tími: strit, áhyggjur og
basl. Við þetta kannast lík-
lega flestir.
Við mundum álíta, að
höfuðorsök óhamingju
þinnar væri drykkjuskap-
ur ciginmanns þíns. En er
ekki hugsanlegt, að hann
stafi einmitt af lífsleiða
þinum og vonleysi? Ef
hann veit og finnur á
hverjum degi, að þú elskar
hann ekki, þá er kannski
ekki nema von að líf hans
fari úr skorðum og hann
leiti sér huggunar í áfeng-
inu.
Þú segist ekki elska
manninn þinn. Samt gift-
istu honum, og þið eigið
þrjú börn. Þú hlýtur því
að hafa eiskað hann í upp-
hafi, að minnsta kosti nóg
til þess, að þú gazt hugsað
þér að giftast honum og
búa með honum. En við
skulum hafa í huga, að þó
ástin kvikni stundum mjög
skyndilega og óvænt, þá
verður að hlúa að henni
og rækta hana með sjálf-
um sér. Hún kemur að inn-
an en ekki að utan. Það
hendir margan að verða
allt í einu óskaplega ást-
fanginn og lifa í sæluvímu
um skeið. Siðan er ástin
allt í einu rokin út í veður
og vind! Þetta getur staf-
að af þvi, að viðkomandi
hefur gert of miklar kröf-
ur til ástarinnar og þess,
sem elskaður var. Hann
hefur ekki lagt rækt við
ást sína; hún hefur ekki
fest rætur í brjósti hans;
honum hefur ekki tekizt
að aðlaga hana hinu hvers-
dagslega lífi og umhverfi.
Þér hefur eflaust dottið
í hug að skilja við mann-
inn þinn og verða aftur
„frjáls“ eins og í gamla
daga og geta „slegið þér
upp og skemmt þér“ hve-
nær sem þú vilt. En skiln-
aður leysir því miður ekki
vandann, heldur eykur
hann. Hann bitnar fyrst og
fremst á börnunum þínum
og getur gert þau óham-
ingjusöm um aldur og ævi.
Og þú munt komast að
raun um, að það „frelsi“,
sem þig dreymir um að
öðlast aftur, er ekki leng-
ur fyrir hendi.
Við ráðleggjum þér að
reyna að leysa vandamál
þin við þær aðstæður, sem
þú hefur sjálf skapað þér.
Og ráðið til þess er fyrst
og fremst að reyna að fá
manninn þinn til að hætta
að drekka. Sýndu honum
ástúð, vináttu og skilning
og vittu hvemig hann
bregzt við. Ef hann vill
hætta að drekka, en getur
það ekki, skaltu leita að-
stoðar læknis.
Að lokum þökkum við
þér fyrir bréfið og vonum,
að þú eigir bjartari daga í
vændum. Þrátt fyrir allt
mótlæti, sem á mann er
lagt, hefur lífið sínar
björtu hliðar — ef maður
bara gefur sér tíma til að
koma auga á þær.
DRAUMUR í FJÓSI
Háttvirti Póstur!
Ég hef séð, að sumir les-
G VIKAN 33- tbl-