Vikan - 22.08.1968, Side 44
HÁGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
juria
” SMJÖRLÍKI
Aieins úpvals oarnteoindir
Franska
Danska
garnið
Parísartízkan í litum
og áferð.
7 tegundir.
Vinsælasta ullar-
garnið á markaðnum
5 tegundir.
Framleiða glæsileg-
ustu garntegundirn-
ar í samkvæmis-
peysur og sam-
kvæmissjöl.
4 tegundir.
Prjónar - Heklunálar - Nýjustu prjóna-
blöðin
Verzlunin HRINGVER
Austurstræti 4 - Sími 1-79-00
Enska
Hann fór með verkfæraskjóð-
una fram í búningsherbergið og
smeygði sér í rauða hereinkenn-
isjakkann. Þessi jakki hafði ver-
ið kjarakaup í ákaflega athyglis-
verðri verzlun, sem hann fór
alltaf framhjá á leiðinni úr og
í vinnu. Þessi eldrauði jakki með
gullslaufunum á öxlunum fór
einstaklega vel við gult og rautt
mótorhjólið hans. Satt var það,
að rússakraginn nuddaði á hon-
um hálsinn, þegar hann hneppti
jakkann alveg upp, en hann
hafði tamið sér að hafa hann op-
inn í hálsinn og hann bræddi
með sér að kaupa hersveitarbindi
í litum, sem væru í algerri and-
stæðu við svarta og hvíta skyrt-
una.
Hann þeysti á mótorhjóiinu
eftir King's Road og fór fram-
hjá flokkum af háfættum stúlk-
um á gangstéttunum, en gaut
ekki auga til þeirra. Hann var
að hugsa um frú Blossom. Hann
hafði aðeins séð hana nokkrum
sinnum á hinum sjaldgæfu heim-
sóknum hennar til verksmiðj-
unnar. Sennilega kom hún ekki
nema þegar hana vantaði verzl-
unarpeninga úr vasa eiginmanns-
ins; en hann sá hana ljóslifandi
fyrir hugskotssjónum sér. Það
var eitthvað sérstakt við frú
Blossom. Ambrose hafði lesið
nóg um stíl til að vita, án þess
að geta lýst því í smáatriðum,
að frú Blossom hafði stíl.
Þegar hann kom í götuna sá
hann að þetta var einmitt þess
konar virðuleg 'gata sem hæfði
virðulegu lífi frú Blossom. Hún
var meira að segja svo fín og
virðuleg að það var ekki númer
á einu einasta húsi. Ambrose ók
götuna á enda og aftur til baka
og fór svo inn í nýlenduvöru-
verzlunina á horninu. Kaupmað-
urinn benti honum á eitt af
stærstu húsunum.
Ambrose leiddi mótorhjólið
upp stutta, malborna heimreið-
ina og lagði það upp við vegg,
bak við runna, við hliðina á hús-
inu. Hann skoðaði sig vandlega
í bakspeglinum og ýfði hár-
íð á listrænan hátt.
Fyrrverandi hermaður átti leið
framhjá hliðinu, leit inn fyrir,
stirðnaði, heilsaði að hermanna-
sið og leit síðan aftur með van-
trúarsvip á einkennisbúning
Ambrose.
Ambrose lagaði á sér jakkann
og þrýsti á bjölluhnappinn.
Virðulegur bústaður það
var það sem hann vantaði. Hús
með malbornum stíg heim að
aðaldyrunum, steindu gleri í kló-
settgluggunum og fallegri konu,
sem beið eftir honum þegar hann
kæmi heim af verðbréfamarkað-
inum eða frá því að stýra Eng-
landsbanka.
Frú Blossom opnaði dyrnar.
Hún var nákvæmlega eins og
Ambrose minnti að hún væri.
Hún var með bók í annarri hend-
inni og fjarrænt augnaráð. Skrýt-
— Var þetta nú einasti dulbúningur-
inn, sem þér datt í hug?
— Ég gct ekki ákvcðið mig, stiginn
hcima er með flciri þrepum!
— Það er öðruvísi með mig, ég liefi
það alltaf á tilfinningunni að mér á-
skotnist peningar, þegar ég geng und-
ir stiga!
44 VIKAN 33-tbI'