Vikan


Vikan - 12.09.1968, Qupperneq 14

Vikan - 12.09.1968, Qupperneq 14
HÍS OG HUSBMUH NYTTFOLK - NfR snu Um þessar mundir mun helmingur þjóðar- innar vera undir 24 ára aldri. Ný og vel menntuð kynslóð er að vaxa úr grasi, kyn- slóð með ákveðnar skoðanir og betri yfirsýn margra hluta vegna en sú sem var ung fyrir 20 til 30 árum. Þetta gildir ekki bara fyrir ísland, heldur alls staðar. Auk þess er í tízku að vera ungur og það er tekið meira tillit til skoðana ungs fólks en nokkru sinni áður. Sú hreyfing komst að nokkru leyti á með Bítlunum og Bítlamenningunni, ef hægt er að komast svo að orði. Unga fólkið hefur eignazt sinn stíl í klæðaburða, í músik, í framkomu, viðhorfum og það hefur mótað sérstakan stíl í húsbúnaði. Sá stíll byggist á því, að öllu gömlu verði að taka með eía. Nýtt fólk þurfi nútímalegan stíl þar sem ný efni séu notuð. Hugsunarhátturinn hefur fæðzt í því gamla og rótgróna Bretlandi, en hann hefur smitað út frá sér og farið sem eldur í sinu um allar jarðir. Nokkrir hús- gagnateiknarar af yngri kynslóðinni í Lond- on hafa riðið á vaðið með form, sem eiga sér naumast hliðstæðu og sumt af þessum húsgögnum hefur það eitt sér til ágætis að vera nýtt, en sumt er vel gert og ber vott um hugmyndaflug og góðan smekk. ítalir hafa tekið þessa hreyíingu upp á sína arma með sérstökum ákafa. Þeir eru frægir fyrir formskyn sitt og dirfsku í form- teikningu, en auk þess nota þeir málma og gerviefni meira en hingað til hefur þótt ráð- legt. Bandaríkjamenn og fleiri hafa fylgt á eftir og nú sér dagsins ljós heil skriða nýstár- legri húsgagna, en áður hafa verið dæmi um. ☆ Bandarískt matborð, sófaborð, kollar og stól- ar, sem allt er unnið í meginatriðum á sama hátt, þ. e. úr stálvírasívalningum. í annarri borðplötunni er gler en í hinni er gerviei'ni. f stólunum eru steyptar plastskálar, yfir- dekktar með svapmi og áklæði. ♦ Djarfar hugmyndir í húsagerð ryðja sér til rúms og maður framtíðar- innar, sem efni hefur á því, mun likt og sést hér, finna sér afvikinn stað, kannski undir sjávarhömrum í stað þess að kaupa lóð í finu hverfi. Þar mun hann byggja hús, sem ber vott um hugmyndaflug hans og arkitektsins og kannski verður líkt og sést á myndinni að hafa sérstaka lyftu niður bergið til þess að komast að húsinu. Innan í þessu hringlaga tilrauna- húsi er margt með ólíkindum, en gluggarnir eru þó ekki mjög stórir, aðeins nægilega fyrir birtu og út- sýni. Húsið stendur á háum, hring- laga stöpli og innan í honum er hringstigi niður. Húsgögnin eru Iíka sérkennileg; stólarnir steyptir úr hvítu plasti á „jólatrésfæti" og borðið með Iiku sniði. Ungir húsgagnateiknarar hafa orð- ið fyrir miklum áhrifum af skúlp- túr og húsgögnin verða hvort- tveggja í senn: Nytjahlutir og list- munir í ætt við skúlptúr, líkt og sófaborðið hér, sem búið er til úr steyptum plasteiningum. Höfundur: Leonardo Fiori í Milano.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.