Vikan


Vikan - 12.09.1968, Síða 22

Vikan - 12.09.1968, Síða 22
EFTIR E. V. CUNNINGHAM - 2. HLUTI - TEIKNING BALTASAS Ég var flæktur í þetta, en ég hafði ekki löngun til að vera flækt- ur í það, og eini möguleikinn til að komast undan því að vera flæktur í þetta var að láta lykilinn af hendi. Þeir vissu hvar ég fór í vagninn og ef þeim var nógu ofar- lega í huga að fó lykilinn myndu þeir vera þar á morgun. Það kom mér ekki við, né heldur kom það mér við að gamall maður að nafni Shlakmann hafði dóið. Ég ótti við mína eigin örðugleika að stríða og þeir voru nægjanlegir, svo þegar þeir kæmu að sækja lykilinn næst ætlaði ég að láta þó hafa hann. Ef til vill með ofurlítilli útskýringu, til að hreinsa loftið. — Hér er lykillinn. Ég vissi ekki að ég væri með hann, en ég fann hann ( vasanum, þar sem gamli maðurinn hlýtur að hafa stungið honum. Ég vil ekki hafa hann. Ég veit ekki að hverju hann gengur og ég vil ekki vita það. Ég er ekki einu sinni forvitinn. Ég vil bara geta gleymt þessu. Þetta hljómaði skynsamlega. Ég hafði ekki farið til lögreglunnar. Hann hafði ógnað mér, sem þýddi að ég hefði getað farið til lögregl- unnar — og svo bætti ég við þess- ari spurningu fyrir sjálfan mig — Með hvað? — Með lykilinn? og hvers konar lögregla hefði lótið sér nægja minna en alla sólarsöguna — og svo hefði komið þessi óhjókvæmilega spurn- ing: — Drópuð þér, eða drópuð þér ekki, herra Shlakmann á neðan- jarðarjórnbrautarstöðinni? Ég skrifa þetta og læt hugann líða aftur á bak og í mínum aug- um er þetta jafn heimskulegt og í ykkar. Það var enginn sönnun fyr- ir því, nei, ekkert, sem benti til þess að ég þekkti Shlakmann eða hefði nokkru sinni séð hann áður eða hefði neina ástæðu til að drepa hann, en þegar ég nam staðar og hikaði eitt andartak á dimmri út- hverfisgötu, komst ekkert annað að í huga mínum en morð, ekki slys, heldur morð, og mér leið þannig að við lá, að ég ímyndaði mér að ég hefði hrint Shlakmann. Ég leit um öxl. Alla leiðina heim, sex húsaraðir frá strætisvagnastöð- inni, horfði ég um öxl. Ég snerti varla kvöldmatinn. Alisa hafði matreitt önd í grillofninum, snúið henni hægt, þar til hún var komin með góða skorpu og safa- ríka að innan, og eins góð og yfir- leitt er hægt að hafa endur og hún bar hana fram með rís og appelsínu- sósu, en ég snerti hana varla og þegar ég reyndi að neyða mig til að borða, brást mér það eins og annað. Ég var uppstökkur og óþægileg- ur og beindi önuglyndi mínu að því, að Polly skyldi vera sofnuð, þegar ég kom heim. Eins og það væri ekki nógu slæmt að koma heim örþreyttur, hreytti ég út úr mér, þó að það bættist ekki ofan á, að mað- ur sæi ekki sitt eigið barn. — Hefurðu nokkurn tíma reynt að halda lítilli stúlku vakandi? spurði Alísa, — jafnvel þótt mig langaði til þess? — Þig hefur ekki langað til þess. — Þakka þér fyrir. Þú talar eins og ég hafi gefið henni svefnmeðal. Væni minn, þér líður betur, þegar þú ert búinn að borða. — Ég er ekki svangur. — Ef þú vildir aðeins reyna að slappa af, gætirðu borðað. Ondin er góð. — Það kemur ekki málinu við, hvort ég slappa af eða ekki. Ég er ekki svangur. Getum við ekki látið þar við sitja? Eða varðar það hjóna- bandsslitum, ef ég vil ekki éta grill- aða önd? Alísa starði á mig og hristi höf- uðið hægt. Svo sagði hún: — Johnny, hvað gerðist ( dag? — Hvað gerist alla daga? spurði ég þráalega. — Ekkert gerist. Það gerist andskotann ekki neitt. Ég sit við andstyggilegt teikniborð og vinn fyrir kaupinu mfnu. Ekkert gerist. Ekkert hefur gerzt. Ekkert kemur til með að gerast. — Allt ( lagi, sagði Alísa blíð- lega. — Það hefur bara verið einn af slæmu dögunum. Kannske verð- urðu svangur seinna. Við skulum reyna að slappa af. — Hvernig? - Hvað? — Hvernig? Hvernig gerum við þið? Hvernig slöppum við af? — Við skulum horfa á sjónvarp- ið, sagði Alísa. — Ojá, við skulum horfa á sjón- varp. — Hvað meinarðu með þvi? — Ekkert. Ekkert. Ég er bara sammála þér. — Þú ert ekki sammála mér, Johnny. Þú ert að reyna að ögra mér. Eftir fimm mínútur verðum við eins og hundur og köttur. Er það það, sem þú vilt? — Veiztu, hve oft núna síðustu vikurnar þú hefur setið á móti mér hérna við borðið og sagt mér að reyna að slappa af? — Ég elska þig, Johnny. Stund- um ertu yfirspenntur. Þá segi ég þér að slappa af. Er það svo hræði- legt? — Ég er eldri en tvævetur. Ef ég gæti slappað af, myndi óg gera það. Ég er eldri en tvævetur. — Ég veit það. Hvað kom fyrir, Johnny? — Ég sá mann falla fyrir neðan- jarðarbrautina, sagði ég, og svo sagði ég henni frá því. En ekki frá Þunnleit með lykilinn, aðeins frá gamla manninum á brautarpallin- um. Hún hlustaði þegjandi, andlit- ið fullt af meðaumkun og sársauka, meðaumkun með mér, gamla mann- inum og öllum heiminum. Hún var afar falleg, það flaug að mér með- an ég var að tala, ennþá ung og tilfinningarík og enn vakti hún með mér undrun yfir því, að hún skildi nokkru sinni hafa viljað giftast mér. — En hræðilegt! sagði hún, þeg- ar ég var búinn. — Ég tók til fótanna. Ég var gagntekinn af þeim sjúkdómi, sem kemur manni til að hugsa eingöngu um sjálfan sig — og forðast samfé- lag við mannlegt fólk. — Nei. — Jú. Þú getur verið montin af mér. — Við Polly, sagði hún og reyndi að brosa. — Við erum mannlegar verur. — Þú veizt hvað ég meina. — Elskan mín, maðurinn var dá- inn. Þú gazt ekkert gert fyrir hann. Sumt fólk laðast að sl(ku. Það heill- ast af því og það er því eins og nautnalyf. Ég man, að ég sá einu sinni trukk aka yfir konuvesaling, og mannfjöldinn stóð ( kringum hana og stympaðist til að komast sem næst og sjá. Það var enginn að reyna að hjálpa henni, allt fólk- ið var að reyna að komast nær og sjá. Mér finnst það ekki aðdáunar- vert. Ég held, að það sé ekkert rangt við það að vilja ekki sjá. — Það var ekki þess vegna, sem ég flúði. — Að hluta. — Ekki einu sinni að hluta. Ég var hræddur. Ég var hræddur um, að einhver hefði séð mig og myndi segja, að ég hefði hrint honum. Ég hrinti honum ekki. Hann hörfaði frá mér. En ég var samt hræddur. — Er það ekki eðlilegt? — Ó, það er eðlilegt og fallegt. Ég á skilið medalíu fyrir það. Ég þori ekki að segja upp leiðinlegri og andlausri vinnu. Ég þori ekki að horfast í augu við sjálfan mig, og það sem ég nákvæmlega er. Ég þori ekki að taka mér neitt betra fyrir hendur né reyna neitt annað. Ég er líka hræddur við að vera maður. Það er rökrétt afleiðing. — Auðvitað er það eðlilegt. Ég var að fara í bólið. Ég var kominn í náttfötin og AKsa í nátt- kjólinn, þegar hún sagði: — Veiztu það, Johnny, við höf- um svo margt til að vera þakklát fyrir. Þig og mig og litla stúlku eins og Polly og þetta hús — Þriggja herbergja hús á tvö hundruð og fimmtíu fermetra lóð. — Það er gott hús með góðu fólki. — Hvers virði er gott fólk ! þeim heimi, sem við lifum í? Athuga- semd eins og þessi er ekki ein- ungis gamaldags, heldur beinlínis heimskuleg. 22 VIKAN 36-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.