Vikan - 12.09.1968, Qupperneq 28
SVNGUR EINS OC
ENGIIl
Engelbsrt Humperdinck er nú í hópi alvin-
sælustu dægurlagasöngvara í Englandi. Ný-
lega hafði lagið hans, „Release me“, verið í
heilt ár á listanum vfir 50 vinsælustu lögin
þar í landi. í Englandi gengur hann almennt
undir nafninu „Engillinn", en aðdáendur
hans í Skandinavíu kalla hann gjarnan
„IIumpe“.
Nýlega fór Humperdinck í sumarleyfi til
Mallorka. Áður en hann gat flogið þangað
til að baða sig í sólinni, varð hann að enda-
sendast úr einum sjónvarpssalnum í annan.
Teknir voru upp sex sjónvarpsþættir, þar
sem hann kom fram, og átti að sýna þessa
þæt'i á meðan har.n flatmagaði á baðströnd
Mallorka. Umboðsmenn hans töldu ekki ráð-
lega, að ekkert heyrðist í honum á meðan
hann væri í sumarleyfi sínu, og þess vegna
varð Humperdinck að vinna af sér fríið.
Þegar fríinu lýkur mun hann sannarlega
hafa í mörgu að snúast. Hans bíða ótal verk-
efni, til dæmis æfingar á fyrstu kvikmynd-
inni, sem hann leikur í. Hann segist alltaf
hafa langað til að spreyta sig á kvikmynda-
leik og hugsar því gott til glóðarinnar. Hon-
um lýzt vel á handrit myndarinnar, sem
verður að sjálfsögðu rómantísk eins og lög-
in sem hann syngur.
Þegar töku myndaiúnnar er lokið, heldur
Humperdinck til Bandaríkjanna. Þar er hann
ráðinn til að syngja í næturklúbbum, m. a. í
Las Vegas og New York. Hann segist kvíða
svolítið fyrir þeirri ferð, því að hann hefur
aldrei sungið á næturklúbbum fyrr. „Von-
andi fer allt vel,“ segir hann.
ANDRÉS INDRIÐASON
„Þau verkefni hafa oftast tekizt bezt, sem ég
hef kviðið mest fyrir.“
Nýjasta lag Humperdincks heitir „Quan-
do minnamoro“ og er ítalskt. Hann er mjög
ánægður með það. Hann segir, að ítölsk lög
eigi bezt við rödd sína og söngstíl.
Humperdinck fæst við að semja í tóm-
stundum sínum. — Hann hefur aldrei sungið
lög eftir sjálfan sig en eitt af lögum hans
hefur söngvari að nafni Peter Gordeno sung-
ið inn á plötu nýlega.
„í sumar samdi ég nýtt lag, sem ég vona
að ég geti notað sjálfur einhvern tíma,“ seg-
ir Humperdinck. „En Gordon Mills ræður
því, hvort ég fæ að syngja það inn á plötu
eða ekki. Hann hefur stjórnað öllum hljóm-
plötuupptökum mínum og ég treysti honum
fullkomlega í þeim efnum.“
10 ÁRA
Clii'í' Richard og The Shadows
eiga um þessar mundir 10 ára af-
mæli sem skemmtikraftar. Af því
tilefni munu þeir skemmta í Palla-
dium leikhúsinu í London í sept-
émber og október. Fyrsta skemmt-
unin verður 10. september. Auk
The Shadows mun Sammy Davis,
jr., koma fram. Víst má teija, að
þeir, sem koma í Palladium leik-
húsið muni fá ósvikna skemmtun
fyrir aurana sína.
v____________________________________v
JOAN BAEZ
GIFTIR SIG
I apríl síðastliðnum giftist hin 27
ára gamla og' umdeilda þjóðlágasöng-
kona, Joan Iiaez. Hinn hamingjusami
er 22 ára stúdent frá New York, David
Harris að nafni. Brúðkaupið fór fram í
lútherskri kirkju og voru 150 manns
viðstaddir. Var sá hópur ærið sundur-
leitur að sögn.
Pau höfðu eklci þekkzt nema í fáein-
ar vikur, þegar þau ákváðu að gifta sig.
Og' auðvitað var það fangelsinu að
þakka, að þau fundu hvort annað. Þau
lentu saman í fangaklefa; höfðu bæði
verið handtekin eftir óspektir, sem
spunnust út af mótmælafundi gegn
stríðinu í Vietnam.
Joan Baez hefur sungið síðan hún var
barn. En það var ekki fyrr en 1959,
þegar hún söng á Newporl-jazzhátíð-
inni fyrir 15.000 áheyrendur, að hinn
sérkennilegi söngur hennar vakti at-
hygli. Hún komst þegar á sannring hjá
stóru hljómplötufyrirtæki, og fvrsta
LP-plata hennar var ofarlega á öllum
vinsældalistuin vestan hafs.
Hún svngur fyrst og fremst þjóðlög
og mótmælasöngva. ITún berst gegn
kynþáttamisrctti, hvers konar ofbeldi
og síðast en ekki sízt stríðinu í Vietnam.
Þær eru ekki svo litlar peningaupp-
hæðirnar, sem hún hefur þénað á söng
sínum síðustu árin. En hún hefur eng-
an áhuga á þeirri veröld glaums og
prjáls, sem peningar liafa up]j áað bjóða.
Hún neitar að taka við greiðslu, þegar
hún syngur á samkomum, sem haldnar
eru til styrktar málefnum, sem hún tel-
ur að eigi rétt á sér. Ilún segist svngja
til þess að láta gotl af sér leiða, en ekki
til að græða peninga. ★
28 VIKAN 36' tbl'