Vikan - 12.09.1968, Síða 29
JOHN MED
JAPANSKRI USTAKONl
Síðan Bítlarnir sögðu skilið við
indverska dulspekinginn Mahar-
ashi, hafa hjónabandsmál þeirra
aðallega verið til umræðu. Sagt er,
að John og Cythia Lennon séu
skilin og hafi farið livort sína leið.
Cynthia á að vera í slagtogi með
Roberto Bassanini, L2(i ára gömlum
syni hóteleigenda frá Pesaro á
Italíu. Hún neitar því að vísu, að
nokkuð sé á milli þeirra eins og
sagt er, en þau hai'a skrifazt á
lengi og Roberto fullyrðir, að um
ástarbréf sé að ræða. Eini „mað-
urinn" í lífi mínu, segir Cynthia, að
sé fimm ára gamall sonur hennar
og Jolms, Julian. — John Lennon
hefur að undanförnu sézt aftur og
aftur með japanskri listakonu,
Yoko Ono að nafni. Hún er með
óvenjulega sítt og mikið hár, eins
og meðfylgjandi mynd sýnir, og
þykir ekki sérlega girnileg í útliti
og klæðaburði.
0110 EXPRESS
Bandaríska hljómsveitin Ohio Express hafð'i sent t'rá sér þrjár metsöluplötur í heimalandi sínu, þegar hún varð þekkt í Bretlandi. Lagið',
sem kom þeim á vinsældalistann þar, var „Yummy Yummy“. Hljómsveitin Ohio Express er ein af mörgum bandarískum hljómsveitum,
sem nýlega hafa kveðið sér liljóðs víðar en í sínum heimahögum. Á brezka vinsældalistanum hafa að undanförnu verið margar óþekktar
hljómsveitir, einkum bandarískar, og hefur áhugi á bandarískri pop músik farið ört vaxandi þar í landi. Síðan „Yummy Yummy“ kom á
markaðinn hafa tvær tveggja laga plötur komið' út með Ohio Express. Lögin heita „Down at Lulu‘s og „Chewey Chewey“. *
36. tbi. VIKAN 29