Vikan


Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 30

Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 30
ONSON KVEIKJARAI Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumbofi: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hvorfisgata 89, ReykjaviV, STJÖRNUSPÁ -• f- Mi Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Ef þú lætur vera að ergja þig yfir smámunum verð- ur vikan hagstæð. Einkum mun föstudagurinn verða til heilla. I>ú ættir að gæta varúðar í allri um- gengni við kvenfólk. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Síðari hluta vikunnar munu berast ánægjuleg tíð- indi sem gera lundina léttari en nokkru sinni fyrr. Ef þú reynir að komast hjá öllum þessum útgjöld- um mun fjárhagurinn fljótlega batna. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Stjörnurnar segja að vikan verði fremur hagstæð, á flestum sviðum. Þér er óhætt að taka skjótar ákvarðanir og hafðu ekki fjárhaginn alltaf í huga. Heillatala er þrír. ¥ Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú átt von á góðum fréttum frá yfirboðurum þín- um og ef til vill færðu viðurkenningu fyrir sam- vizkusemi og dugnað. Aðlöðunarhæfileiki þinn fleyt- ir þér yfir margar torfærur. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Blómleg framtíð virðist bíða þín og þú munt njóta aðstoðar og hjálpar margra er þú hafðir alls ekki reiknað með. Forðastu deilur og missætti. Þú getur hagnazt á verkum þínum. % Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Gættu þess að gleyma ekki því sem þú hefur lof- að, það getur haft slæmar afleiðingar. Innan tíðar færðu gott tilboð sem mun setja þig í mikinn vanda. Þú skemmtir þér mjög vel. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú hefur verið of ábyrgðarlaus og léttlyndur í sam- bandi við verk þín og kemur það sér illa einmitt nú. Lífið er ekki bara spaug, það er hætt við að þú verðir að horfast í augu við það. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Reyndu að komast hjá því að skipuleggja störf þín út í æsar; eins og stendur er það ekki heppilegt. Það ríður á að þú getir verið til taks á fleiri en einum vígstöðvum. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Það kann að vera að fyrri hluti vikunnar verði erf- iður, en ef þú leggur þig fram spá stjörnurnar góð- um árangri. Ottastu ekki að koma nýjum hugmynd- um á framfæri. AM Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Vlkan verður nokkurs konar prófraun fyrir þig og ef þú stendur þig vel muntu hafa mikið gagn af í framtíðinni. Vertu ekki margmáil, það gæti spillt fyrir þér. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Það gætir nokkurs kala í samskiptum þínum við vissa aðila. Sökin er að nokkru leyti þin megin og vegna friðarins skaltu reyna að sættast. Föstudagur er viðskiptadagur. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú getur búizt við að einhver ættingi þinn geri þér gott tilboð og bjóði þér fjárhagslegan stuðning í því sambandi. Þú lærir mjög nytsama lexíu. Þú ferð í leikhús.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.