Vikan


Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 26

Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 26
Þeir voru aftur farnir að leika í Cavern klúbbnum og áttu þar tryggan hóp aðdáenda. Neil Aspinall, sá sem teiknaði stundum fyrir þá auglýsingaspjöld og áður er getið, keypti sér um þetta leyti gamlan bíl fyrir 80 pund og tók að sér að aka JBítlunum. Hann gerðist einskonar einkabílstjóri þeirra. Bítlarnir greiddu Neil 5 shillinga hver fyrir hverja ferð, enda sá Neil um að sækja þá og aka þeim og hljóðfærum þeirra á þá staði, þar sem þeir áttu að spila hverju sinni. Þannig varð Neil smátt og smátt fyrsti aðstoðarmaður Bítlanna, og hefur unnið í þjónustu þeirra alla tíð síðan. Fyrr á þessu ári gerðu þeir hann að framkvæmdastjóra Apple Corps, en það er eitt af aðal fyrirtækjum þeirra. En þrátt fyrir þetta gerðist í raunmni ekkert, og Bítl- arnir urðu æ daprari og leiðari. Löng bréf, sem John skrifaði Stu í Hamborg eru til vitnis um það. Bréfum Johns fylgdu gjarnan löng og þunglyndisleg kvæði. I lok ársins 1961 veiktist Stu skyndilega, er hann var í kennslustund í listaskóla í Hamborg. „Hann hafði oft. fengið slæman höfuðverk,“ segir Astrid. „En við héldum, að hann stafaði af ofþreytu, því að Stu lagði jafnan hart að sér og vann gífurlega mikið.“ f apríl 1962 lézt Stu, — sá af Bítlunum, sem allt- af var talinn bezt gefinn og listrænastur. Banamein hans var blóðtappi. Skömmu áður en Stu veiktist fyrst, gerist það í Eng- landi, 28. október 1961. að unglingur í svörtum leður- jakka gengur inn í hljómplötuverzhmina North End Music Stores í Liverpool og biður um plötu, sem heiti „My Bonnie“ og sé leikin af hljómsveit, sem kallist Beatles. Brian Epstein, sem var við afgreiðsluborðið, sagðist því miður aldrei hafa heyrt minnzt á þessu plötu, hvað þá hljómsveit með þessu nafni. John Lennon hafði sagt í bréfi til Stu: „Eitthvað nnm gerast, en hvað er það og hvenær gerist það? Þetta dularfulla „eitthvað“, sem John beið eftir, var nú loksins i þann veginn að gerast. Ellefti kafli BIHAN EPSTEIN Afi Brians Epsteins, Isaac, lagði grundvöllinn að auði fjölskyldunnar. Hann var Gyðingur og flýði frá PóIIandi. Hann stofnaði húsgagnaverzlun, I. Epstein and Sons, í Walton Road í Liverpool. Við fyrirtækinu tók síðar eldri sonur hans, Harry, faðir Brians. Margir í Liverpool álíta, að Epsteins-fjölskyldan hafi alltaf átt fyrirtækið NEMS, North Ends Music Stores, en þetta nafn gerði Brian síðar frægt í borginni með hljómplötuverzlun sinni. En fyrirtækið NEMS hafði veiið til löngu áður en Epsteins-fjölskylda.n gerði það frægt. Jim McCartney, faðir Pauls, segist eitt sinn hafa átt píanó, sem hafi verið frá NEMS og keypt löngu áður en Epsteins-fjölskyklan komst yfir fyrirtækið. NEMS komst ekki í eigu Epsteins-fjölskyldunnar fyrr en á fjórða tug aldarinnar. Það var til húsa í enda sambyggingar í Wilton Road, þar sem húsgagnaverzl- unin hafði aðsetur sitt. Þeir höfðu lengi haft augastað á fyrirtækinu með stækkun í huga. Harry sá, að það fór ekki illa saman að verzla ]neð húsgögn og hljóm- plötur i sömu búðinni, en fyrst og fremst var það lóð- in og húsnæðið, sem liann sóttist eftir, þegar hann keypti NEMS. Ilarry kvæntist inn í aðra Gyðingafjölskyldu, sem einnig verzlaði mcð húsgögn og var jafnvel enn auð- ugTÍ en Epsteins-fjölskyldan. Þetta var Hymans-fjöl- skyldan frá Sheffield. Hann giftist konu sinni, Queenie, árið 1930. Hún var þá átján ára en hann tuttugu og níu. Eldri sonur þeirra hjóna var Brian. Hann l'æddist 19. september 1934. Tuttugu og einum mánuði síðar eignuðust þau annan son, og vár hann skírður Clive. Þar sem þau áttu nú tvo syni, virtist framtíð Epstein- húsgagnanna tryggð. Skömmu eftir að Brian fæddist, fluttust Harry og Queenie í nýtt og glæsilegt einbýlis- hús í Childwall, en það er eitt. eftirsóttasta einbýlishúsa- hverfi í borginni. T þessu húsi bjó Epsteins-fjölskyldan næstu þrjátíu árin. Epsteinsfjölskyldan bjó fjarska ríkmannlega, þar til styrjöldin brauzt út. Á heimilinu voru tveir þjónar, barnfóstra, kokkur og fleira þjónustufólk. Hin eina, sem frú Epstein man um bernsku Brians, er, að hann hafi verið eitthvert fegursta og geðfelldasta barn, sem hún hal'i nokkurn tíma kynnzt. „Hann var fljótur að byrja að ganga og tala; óvenju bráðþroska og greindur vcl. Ilann vildi fá að vita allt.“ Skýrasta minning Brians sjálfs er, þegar liann fékk að heimsækja ættingja sína í Sheffield. Arið 1940, þcgar Brian var sex ára, voru ákafar loftárásir gerðar á Liverpool. Fjölskyldan hraktist fyrst lil Prestatyn í Norður-Wales og síðan til Southport, en þar var stór Gyðinganýlenda. Brian var látinn þar i skóla og hófst þar ærið brösótt og söguleg ganga hans á menntabrautinni. „Ég var einn af þeim strákum, sem lentu einhvern veginn utangarðs. Ég lcunni aklrei við mig í neinum skóla. Strákarnir stríddu mér og kennararnir skömm- uðu mig. Foreldrar mínir voru í öngum sínum út af þessu öllu saman.“ 1943 fluttist fjölskyldan aftur til Liverpool og Brian var settur í rándýran einkaskóla. Árið eftir, þegar hann var tíu ára, var hann rekinn úr skólanum. „Ástæðan fyrir brottrekstrinum var slæleg ástund- un og slæm kunnátta, og að auki voru mér bornar á brýn alls kyns vammir og skammir fyrir ókurteisi og illa hegðun.“ Brian man, þegar hann kom hcim, eftir að hann hafði vej’ið rekinn úr skólanum. Hann s;it fyrir framan föður sinn, sem var ærið þungbúinn á svip. Faðir hans sagði: 26 VIKAN 42’ tbl'

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.