Vikan


Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 29

Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 29
— Við ráðum fram úr málunum á morgun, þegar morgundagurinn kemur. Nú skulum við vera saman og temja okkur að læsa dyrunum, þar sem við förum. Hún læsti dyrunum kyrfilega, þegar við fórum. Jenny Harris í næsta húsi kom ó bilnum og spurði hvort eitthvað væri að og hvort hún gæti gert nokkuð. — Það er undir því komið hvern- ig maður lítur á málin, sagði Alísa. — Ég skal segja þér alla söguna einhvern tíma. — Eruð þið að fara að sækja Pollý? — Við komum seint, sagði Alísa. — Þið ættuð að stanza í stórverzl- uninni á leiðinni heim, það er ver- ið að kynna þar þvottaefni og ef þeir velja þig til þess að halda á handklæði og veifa því fyrir framan myndavélina, færðu tuttugu dollara og heilan kassa af þvottaefninu. Þeir vilja að vísu líka að konurnar segi nokkur orð — en þú þarft ekki einu sinni að læra þau utan að, þeir halda því uppi á spjaldi fyrir fram- an myndavélina — og þeir verða áreiðanlega stórhrifnir af enska hreimnum þínum. Meðan ég bakkaði út á götuna, sagði Alísa. — Skelfing verð ég þreytt á öllum þessum athugasemd- um um hreiminn minn. Hefur ekki nokkrum hér um slóðir dottið í hug að þið getið haft hreim, en ég tali rétt? — Þess háttar dettur fólki ekki ( hug. Ætlarðu að segja henni frá þessu? — Auðvitað ekki. — Af hverju lofaðirðu henni því þá? — Það var ekki loforð, það var t'l að kaupa sér frið. Jenny er ósköp indæl. Þú sagðir að þeir væru í svörtum cadillakk? Ég sé hann hvergi hér, sem betur fer. Það var minna en míla til skól- ans. Ég lagði fyrir framan. Svo fór- um við inn að sækja Pollý. Börnin fengu að vera í leikskóla nokkrar klukkustundir eftir að skólanum lauk og þar gættu þeirra tvær kennslukonur, sem voru hættar kennslu fyrir aldurssakir, fröken Pruitt og fröken Clementine, báðar afar viðkunnanlegar konur á átt- ræðisaldri og báðar hæst ánægðar með að fá að vinna nokkrar klukku- stundir á dag, tvisvar eða þrisvar í mánuði. Við komum eins seint og frekast var leyfilegt og það voru aðeins tvö börn eftir, hvorugt þeirra Pollý. Fröken Clementine kom til okkar undrandi á svip og spurði hvort nokkuð væri að. — Nei, svaraði Alísa. — Hvar er Pollý? — Er hún ekki komin heim, frú Camber? — Heim? Alísa fölnaði og ég fann ógleðina leggja yfir mig aftur, ógleði ótta og skelfingar. — Þér haf- ið þó ekki látið hana fara heim eina? — Auðvitað ekki. Þér vitið að ég myndi aldrei gera það, frú Camber. En þegar systir herra Cambers kom að sækja hana fannst mér allt í lagi að láta hana fara. — Systir herra Cambers? Ég var í þann veginn að buna því út úr mér að ég ætti enga syst- ur, að öskra á þessa gömlu og heimsku kerlingu, en Alísa herti takið á handlegg mér svo neglurn- ar stungust inn í holdið. Svo sagði hún eins og ekkert hefði í skorizt: — Hvor systirin, það þætti mér gaman að vita. Hvernig leit hún út, fröken Clementine? Þegar fröken Clementine sá fram- an í mig fór hún að stama, en Alísu heppnaðist að róa hana. — Ég — ég vona að ég hafi ekki gert neitt rangt. — Herra Camber á tvær systur, sagði Alísa. — Fyrir alla muni, frök- en Clementine, þetta er allt í lagi. En ég verð að fá að vita hvor syst- irin það var. Hvernig leit hún út? — Það var afskaplega hugguleg kona, frú Camber. Annars hefði ég ekki látið Pollý fara með hsnni, það fullvissa ég yður um. — Hvernig leit hún út? — Hún var mjög dökk. Með dökk augu, dökkt hár og mjög fögur. Hún var hreint með fallegustu konum, sem ég hef séð. Mjög ung. Það er ekki mikill svipur með ykkur, herra Camber. — Og fór Pollý fúslega með henni? spurði ég. — Hún sagði Pollý að þið hefð- uð sent hana að sækja hana og hún var með þessa brúðu, alveg dásam- lega brúðu. Um leið og Pollý sá þessa brúðu, hugsaði hún ekki um annað Ég vona að ekkert sé að? — Nei, hvíslaði Alísa. — Það er ekkert að. Svo leiddi hún mig út að bílnum aftur, án þess að sleppa nokkru sinni takinu á handleggnum á mér. 7: MONTEZ Við settumst inn ( bilinn. Það var komið fram á kvöld og sólargeisl- arnir brutust milli trjágreinanna of- an á götuna. Þetta var mjög snemma vors, en samt var komið ofurlítið grænt á sum trén. Tveir rauðbrystingar stóðu á flötinni fram- an við skólann og drengur og stúlka leiddust ofan eftir götunni í fjarska. Þetta var ósköp venjulegur stað- ur drungalegur, venjulegur hæga- gangur eins og gerist í úthverfum New York borgar, en mér fannst al't voðalegt. Heimurinn var geng- inn úr skorðum. — Þú skilur ekki slíkt, þú skilur ekki, sagði ég við Alísu, vegna þess að mér fannst að enginn ! heimin- um gæti skilið þetta á sama hátt og ég, eða þennan gapandi tómleika innan í mér eða ógleðina, sem ætl- aði að yfirtaka mig. — Ég skil, sagði hún kuldalega. — Þau tóku Pollý. Rændu henni. — Ég veit það. Rödd hennar var dauf, ekki reið eða æst né full af ótta og móðursýki, bara dauf. — Ég veit það. Jómfrúin þin tók hana. Þessi andskotans jómfrú tók hana. — Alísa, ég óskaði ekki eftir þessu. Datt mér í hug að það myndi fara svona? Drottinn minn, ég myndi höggva af mér hendurnar ef það væri til nokkurs gagns. — Ætli þú yrðir ekki að minna gagni þannig. — Ég hef þá haft rangt fyrir mér, sagði ég. — Ég hef alltaf haft rangt fyrir mér. Nú fer ég til lögreglunn- ar. Andskotinn hirði allt. Andskot- inn hirði hvað um mig verður! Ég iæt mig það engu varða. Ég fer til lögreglunnar og kasta öllu í kjöltu þeirra. — Hversvegna gerðirðu það ekki í gær? — Ég ætla að gera það núna. — Nei, þú gerir það ekki núna, sagði Alísa kuldalega. — Hvað? Viltu ekki að ég geri það? — Ég vildi að þú gerðir það — en það var áður en þau tóku Pollý. Nú eru þau búin að ná i Pollý. Skil- urðu ekkert? Þau hafa rænt dóttur minni. Þau hafa hana. — Það er einmitt það. — Og þú ætlar að hlaupa til lög- reglunnar? Hvað býstu við að lög- reglan geri. Þau tóku Pollý vegna þess að þau vilja fá lykilinn. Onei, Johnny. Þú ferð ekki til lögregl- unnar. — Þú ert frá þér! hrópaði ég. — Þú ert hreint gengin af göflunum. Hún er líka dóttir mín. Ætlastu til að ég sitji bara aðgerðarlaus og láti þá hafa dóttur mína? Ætlastu t:l að ég haldi að mér höndum og geri ekki neitt? Hvað geturðu orð- ið kaldrifjuð? — Ég skal segja þér hvað ég get orðið kaldrifjuð, sagði hún lágt. — Ég man ekki fyrr eftir mér, Johnny, en mig langaði að eiga börn. Mik- ið af börnum. Mig dreymdi um hús fullt af börnum, en það fór ekki þannig. Eitt barn — og þau verða ekki fleiri, bara Pollý. Þá sérðu hvað ég er kaldrifjuð, Johnny. — Fyrirgefðu. — Það þýðir ekkert að biðjast fyrirgefningar. — Jæja, hvað eigum við þá að gera, Alísa? Ég leyfi mér að bera fram þá spurningu: — Hvað eigum við að gera? — Veiztu hvað við eigum að gera, Johnny? — Við eigum að fara heim og við eigum að setjast, við tvö, og við eigum að hugsa málið ræki- lega. Við eigum að vera eins ró- leg og skynsöm og tvær manneskj- ur geta verið á stundu sem þessari. Ég ætla ekki að gráta, Johnny, og ég ætla ekki að láta hræðslu eða hatur ná yfirhöndinni. Það hjálpar okkur ekki og það hjálpar ekki Pollý. Og ég ætla ekki að hlaða neinum ásökunum á þig, ég hef sagt nóg þegar. Héðan í frá er um líf og dauða að tefla fyrir barn, sem við unnum bæði mjög mikið og við skulum reyna að fara rétt að. Ef til vill er rétt að fara til lögreglunnar, ef til vill ekki. Ég veit það ekki, en Framhald á bls. 44. FRAMHALDSSAGAN 8. HLUTI EFTIR E. V. CUNNINGHAM - TEIKNING BALTASAR l y 42. tbi. VIKAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.