Vikan


Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 23

Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 23
( ÖMMUR Á VILLIDÝRAVEIÐUM Fimm brezkar ömmur, sú elzta 66 ára, en sú yngsta 53, lögðu af stað í ágústmánuði síðastliðnum í ævintýraferð lífs síns. — Þær fóru á villidýraveiðar til Ástra- líu. Þær fóru á tveimur Land- rover-jeppum og óku um Evr- ópu, Mið-Austurlönd, Afghanist- an og frumskóga Malaysiu. — Þá fyrst byrjar lífið, þegar maður er kominn yfir fimmtugt, búinn að koma börnunum sín- um til manns og gegna hlutverki sínu í lífinu, segir Melanie Del- mont frá London, en hún átti upptökin að þessari óvenjulegu ferð. Þær hafa undirbúið sig lengi og rækilega undir ferðalagið. Þær æfðu sig í frumskógaakstri á tilraunasvæði uppi í sveit, og eftir þá þjálfun telja þær sig færar í flestan sjó á því sviði. Illgjarnar tungur hafa brosað að ferð þeirra og sagt, að ekki verði mikið um veiðar hjá þeim, þar sem engin þeirra kunni að handleika byssu. En þeim vin- konunum kom aldrei til hugar að fara að skjóta saklaus dýr, þótt villt séu. Þær ætla bara að skoða dýralífið og náttúruna og njóta lífsins. Og þær eru óhrædd- ar og segjast vera vel brynjað- ar gegn hvers konar hættum. Þær hafa nefnilega meðferðis mikið magn af sterkasta pipar sem til er og að auki langa hatt- prjóna! Með þessum vopnum ætla þær að verja líf sitt, ef á þarf að halda. Og eins og sést á myndinni hafa þær lært það nauðsynleg- asta í sambandi við bílaviðgerð- ir, eins og til dæmis að skipta um dekk. L FYRRVERANDI KONA CHAPLINS Þannig lítur fyrsta eiginkona Charlie Chaplin út. Hann var kvæntur henni, á meðan hann átti hvað mestri vel- gengni og vinsældum að fagna í Hollywood. Hún heitir Lita Grey og á myndinni er hún í fylgd með öðrum kvik- myndajöfri, Neil Hamilton. Þau eru að í'ara á frumsýningu nýrrar kvikmyndar. Svo einkennilega vildi til, að myndin fjallaði einmitt um þá „gömlu og góðu daga“ í Hollywood, þegar Chaplin var upp á sitt. bezta. ☆ MEÐ DEMANT Á NAFLANUM Kvikmyhdaleikarar vita ekki upp á hverju þeir eiga að finna. t.il að vekja á sér athvgli. Nýverið mætti Kim Novak á frumsýningu kvikmyndar, sem hún leikur í, og hafði kmnið fyrir demanti í naflanum á sér! Auðvitað vakti demantnrinn miklu meiri athygli en kvikmyndin hennar. 42. tw. VIKAN 23 4

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.