Vikan


Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 46

Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 46
Frystikista. ís- og frystiskápur. ® Það færist í vöxt, að heimili eigi frystikistu eða frystiskáp, til þess að geyma fryst matvæli, hvort sem þau eru heimafryst eða keypt í búð. Rétt notkun á frystiílátum getur verið mikill sparnaður á vinnu og í innkaupum, og getur þar að auki orðið til þess, að máltíðirnar verði betri og fjölbreyttari, þar sem hægt er að kaupa vör- una á þeim tíma, sem hún er bezt og auðveldast að ná í hana. Q Alls konar matvæli er hægt að frysta, mis- lengi og með misjafnlega góðum árangri. Kjöt, fiskur, grænmeti og sumir ávextir eru vel fallnir til frystingar, sömuleiðis ýmsir tilbúnir eða hálf- tilbúnir réttir og brauð og kökur. Hægt er að létta sér störfin með því að vinna mikið í einu fram fyrir sig, þótt það sé ef til vill ekki al- gengt að hafa það eins og danska húsmóðirin, sem margar hafa lesið um, sem útbjó 28 mál- tíðir á einum degi mánaðarins og geymdi síðan í frysti til að nota sem eftir var mánaðarins. Hún hélt því fram, að með þessu móti þyrfti hún ekki að eyða nema 10 mínútum daglega við matar- gerð, auk þess sem hún losnaði við búðarferð- ir og heilabrot vegna matseðilsins. Hins vegar er talsvert verk að útbúa matvælin til geymslu í frystihólfin, réttar umbúðir eru nauðsynlegar og það þarf að fylgjast vel með geymslutíma og hafa allt í röð og reglu, svo að auðvelt sé að komast að matnum. Öðru hverju þarf að hreinsa ílátin og töluverður kostnaður er auð- vitað ( byrjun við kaup á hlutnum, síðar við reksturinn, en áætlað er að frystikistur og skáp- ar eyði ca. IV2—3 kílóvöttum af rafmagni á dag, eftir stærð og ýmsum aðstæðum. • Margir nota frystihólfin í ísskápnum sem matvælageymslur á sama hátt og frystikistur eða skápar eru ætlaðir. Það byggist á misskilningi, eins og fram kemur hér á eftir, og fer ekki hjó því að gæði matvörunnar minnki stórlega við slíka geymslu. Það eru nefnilega ýmis grund- vallaratriði, sem ekki er hægt að ganga fram- hjá, þegar rætt er um frystingu matvæla, en það er lágmarkskuldinn við langa geymslu og sá há- markstími, sem það má taka, að matvælin nái tilskyldu kuldastigi. Kuldinn við langa geymslu matar verður að vera -M 8 stig allan tímann, og þegar nýjar vörur eru settar inn til frysting- ar. barí að vera hægt að stilla kuldann hærra, ca. 25 stig, til þess að maturinn nái 18 kulda- stioum á mjög stuttum tíma. Matvaran verður að ná 10 kuldastigum á ekki lengri tíma en 2 dögum, en við 10 stig eiga sóttkveikjur að hafa drepizt, en til að vinna á sveppum og myglu þarf 15 kuldastig, en eins og áður er sagt, þurfa allar vörur í geymslunni að ná sem allra fyrst 18 kuldastigum og því þarf hærri kuldastillingu meðan nýjar vörur eru að ná því, allt að 25 kuldastig. Slíkt fæst aldrei í frystihólfum (sskápa, við venjuisga stiliingu skápsins eru þar sjaldan meira en 7—10 kuldastig. Suma skápa er hægt að stilla allt upp að -5- 18 stig, en aðeins um iturtan tíma, til þess að matvælin í skápnum siálfum verði ekki alltof köld, því að einangrun milli frystihólfs og skáprýmis er ekki svo öflug, að hægt sé að halda hámarksstillingu dögum eða vikum saman án áhrifa á vörurnar í kælirýminu. Þannig er ekki hægt að frysta matvælin nógu fljótt niður í visst kuldastig ( ískápum og heldur ekki að hafa réttan kulda á þeim við langa geymslu. Matvæli, sem keypt eru fryst, má geyma nokk- urn tíma í frystihólfi ísskáps óskemmd, og reyndar nokkuð langan tíma, þannig að þau verði ekki hættuleg til neyzlu, en gæðin minnka óhjákvæmilega við langa geymslu við ófullnægj- andi skilyrði. í góðri frystikistu eða skáp á að vera hægt að frysta 10 kg af kjöti á hver 100 I rúmmál á tveim sólarhringum. ® Hægt er að fá bæði frystikistur og frysti- skápa, sem eru sami hluturinn í raun, en lagið og annað fyrirkomulag frábrugðið, eins og orð- in gefa til kynna. Líka er hægt að fá frystiskáp sambyggðan við venjulegan kæliskáp, en þá eru tvær hurðir á skápnum og þeir stilltir hvor fyrir sig og vandlega einangraðir hvor frá öðrum. Verður hér á eftir gerð grein fyrir kostum og ókostum þessara tveggja tegunda frystigeymslna, kistunnar og skápsins. Kistan er nokkuð ódýrari, t. d. spurði ég í einni verzlun um verð á kistu og skáp með sam- bærilegu rými (kistan 210 I, skápurinn 225 I., tekur álíka mikið) og var verðmismunurinn milli fjöaur ofl fimm þúsund krónur. Kistan tekur meira, rýmið notast 100% í stað 80—90% í skáp. Hafa má í huga, að 1 kg af frosnum vörum af meðalstærð fyllir ca. 2—2Vá I. Kistan eyðir venjulega minna rafmagni, getur farið allt að 25% minna, en nánar verður rætt um það viðvíkjandi skápunum. Hitatapið er minna við opnun kistunnar. Auðveldara er að gera kistuna hreina. Minna hrím sezt inn í kistuna og þarf því sjaldnar að hreinsa hana. Kistan þarf merra gólfpláss en skápurinn. Það er erfiðara að halda reglu og finna matinn í kistu en í skáp, m. a. vegna þess, að það þarf að gæta þess, að nota alltaf fyrst elztu, og þá oft neðstu matvælapakkana. Kistan þarf að standa aðeins frá vegg, þannig að hægt sé að opna hana vel, og má bæta því plássi við, þegar reiknað er með ummáli hennar. Aðalkostur skápanna er, að þeir taka minna gólfrými og getur það haft mikið að segja, t. d. >' eldhúsi. Skáparnir hafa oft hraðari frystingu á nýjum vörum, en sumar tegundir af skápum og kistum líka, hafa orðið sérstök hólf þar sem hægt er að flýta fyrir frystingu óháð kuldastigi annars stað- ar í frystinum. Það er miklu auðveldara að fá yfirsýn yfir vörurnar í skápnum en kistunni og þægilegra að ná i þær. Það er að sumu leyti erfiðara að gera skáp- inn hreinan, fleiri hillur og körfur. en á hitt má líta, að þægilegra er að standa uppréttur við það verk en beygja sig ofan [ kistuna. Skápana er hægt að tá, eins og marga ís- 46 VIKAN 42- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.