Vikan


Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 3

Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 3
r rviKII DDn? Jrinu Dnuð \ IÞESSARIVIKU PÓSTURINN Bls. 4 DAGLEGT IIEILSUFAR Bls. 6 MIG DREYMDI Bls. 7 VIKAN í MAROKKÓ Bls. 8 SAGA FORSYTEÆTTARINNAR Bls. 12 IIUNDUR FANGANS BIs. 16 ÁTJÁN STUNDA VINNUDAGUR BIs. 18 SÆLURÍKI FRÚ BLOSSOM Bls. 20 SÍÐAN SÍÐAST BIs. 22 SAGA BÍTLANNA Bls. 24 VIKAN OG HEIMILIÐ Bls. 46 VÍSUR VIKUNNAR: Heimurinn lagast heldur smátt og hæg er sóknin í friðarátt öflugar þjóSir í illum ham ennþá berjast í Vietnam. Rússarnir líkir sjálfum sér siga í vestur rauðum her aðrar þjóðir að frelsa frá frelsi sínu og æðstu þrá. Ástandið sýnist ennþá bágt og alls staðar kvartað hátt og lágt um saltfisk jafnvel í seinni tíð suðrænir kaupmenn hefja stríð. ÞAÐ STÓÐ í BLAÐINUj: - ' „Vilja ekki einhverjir smiðir taka að sér að láta tvær hurðir og lítið þil á gamla Kópavogshælið, svo líft verði í því í vetur. Þessi grindahjallur heldur hvorki vindi né vatni og er því ekki íbúðarhæfur, nema sem sumarbústaður í góðri tíð. — Sími 41506.“ Auglýsing í Vísi 7. okt. FORSÍÐAN: rNffSTD Nancy Sinatra nýtur vinsælda sem dægurlagasöngkona, þótt sumir vilji meina, að hún eigi frægð sína fyrst og fremst að þakka föður sínum, Frank Sinatra. En nú hafa bæði systkini hennar, Frank yngri og Tina, ákveðið að feta í fótspor systur sinnar og föður. Foreldrar þeirra skildu fyrir nítján árum. — Frank kvæntist síðar leikkonunni Mia Farrow, en eru nýskilin. VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaöa- tnaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 40.00. Áskriftarverð er 400 kr. ársfjórðungslega, eða 750 kr. mlsserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrir- fram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst. „Það var rigning, þegar við komum til Taípei, en þó lend- ingarfært. Það var eins gott, því að Formósa er aðeins 22.000 ferkílómetrar og venju- lega sama veður á eynni allri. Þegar ekki er hægt að lenda þar, verður því að fljúga til Okinava eða Hongkong, sem er æðispölur til hvors staðar- ins sem er. Auðvitað væri stytzt að bregða sér yfir sund- ið til Kína — það er hundrað og fimmtíu mílur, þar sem það er mjóst — en flugmenn China Airlines, sem er flug- félagið þeirra á Formósu, myndu víst telja öllu skárri kost að steypa sér beint í sjó- inn.“ Þannig hljóðar upphafið að viðtali við Ólaf Agnar Jóns- son, yfirflugvélstjóra Loft- leiða, Steiktir ánamaðkar í liátíðamat. Ólafur hefur dval- izt sex vikur á Formósu og segir frá dvöl sinni þar. í næsta blaði birtum við einnig fjórar myndasíður af Tízkunni 1969, ásamt stuttu viðtali við Pálínu Jónmunds- dóttur. Þá birtist síðasti þátt- urinn í greinaflokki Helga Sæmundssonar í dagfari nú- tímans, Nútíminn á Njálu- slóðum. Þar geyr ei hundur né gal- ar hani. nefnist grein um Lettland; einnig er grein og myndir frá Brússel og ótal margt fleira. 42. tbi. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.